Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1983, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1983, Qupperneq 3
DV. FEMMTUDAGUR 3. FEBRUAR 1983. 3 Utanríkismálanefnd klofnaði i afstöðu til hvalveiðibanns — meirihluti lagði til að banni við hvalveiðum yrði ekki mótmælt Utanríkismálanefnd Alþingis haföi hvalveiðimálið svokallað til umf jöllun- ar síðan á mánudag og hélt fjölda funda um það. Vegna umfangs þess og einnig ágreinings innan nefndarinnar gat álit ekki legiö fyrir fyrr en laust eftir klukkan 15.00 í gær. kallaðir voru til viðtals margir fulltrúar hags- munaaöila í hvalveiðum og sérfræðing- ar, þar á meðal forstjóri Hvals hf., full- trúi Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna, Þórður Ásgeirsson fyrr- verandi forseti Alþjóðahvalveiðiráös- ins, fulltrúi Hafrannsóknarstofnunar og fleiri. Nefndin klofnaði í afstöðunni um hvort mótmæla ætti samþykkt Alþjóða- hvalveiðiráðsins um bann viö hval- veiðum. Meirihlutinn sem i voru Hall- dór Ásgrímsson, Olafur Ragnar Grímsson, Eyjólfur Konráð Jónsson og Albert Guðmundsson skrifaði undir eftirfarandi: „Utanríkismálanefnd hefur að undanförnu fjallað itarlega um hvort samþykkt Alþjóðahvalveiði- ráösins varðandi bann við hvalveiðum skuli mótmælt. Nefndin hefur kallað til fundar fjöl- marga aðila sem veitt hafa margvís- legar upplýsingar. Að athuguðu máli er það niðurstaða meirihluta nefndar- innar, aö ekki sé ráðlegt að bera fram mótmæli. Undirritaðir nefndarmenn telja, að mikilvægt sé að auka enn rannsóknir á hvalveiðistofnunum, þannig að ávallt sé til staðar besta mögulega vísindaleg þekking, sem liggi til grundvallar um- ræðum og ákvörðunum um veiðar í framtíðinni. Með tilliti til ofangreindra sjónar- miða leggur meirihluti nefndarinnar til, að tillögugreinin orðist svo: „Al- þingi ályktar að samþykkt Alþjóða- hvalveiðiráðsins um takmörkun hval- veiða, sem kunngerð var með bréfi til ríkisstjómarinnar, dagsett 2. sept. 1982, verði ekki mótmælt af Islands hálfu.” Minnihluti utanríkismálanefndar en í honum eru Geir Hallgrímsson, Jóhann Einvarðsson og Kjartan Jóhannsson lagði eftirfarandi til: „Al- þingi ályktar í framhaldi af ákvörðun rikisstjómarinnar 1. febrúar sl., að samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um algert bann við hvalveiðum frá og með árinu 1986 verði mótmælt. Jafnframt beinir Alþingi því til ríkisstjómarinn- ar, að auka enn rannsóknir á hvala- Kæmumfrá okkur litlum hluta skreið■ arbirgðanna — ef fregnir um nýjustu ákvörðun Nígeríumanna um innf lutning í ár eru réttar Ljóst er að samdráttur í skreiðarút- flutningi til Nígeríu á árinu sem leið er gífurlegt áfall fyrir þjóðarbúið enda þótt endanlegar tölur liggi ekki fyrir. Samkvæmt Hagtölum mánaðarins, tímariti Seðlabankans, nam heildar- verðmæti skreiðarútflutnings fyrstu tíu mánuöi siðasta árs alls um 150 milljónumkróna. Árið á undan, sem að visu var metár, nam verðmætið, miðað við sömu mánuði, um 500 milljónum króna. Þær eru því ófáar milljónirnar sem landsmenn hafa orðið af. Á árinu 1982 tókst aðeins aö selja rúmlega tvö þúsund tonn af skreið til Nígeríu miðað við átján þúsund tonn árið 1981. Samdráttur í sölu á hausum varð ekki eins mikill en þó töluverður. I fyrra tókst að selja um þrjú þúsund tonn miöaö við um sjö þúsund tonn árið á undan. Talið er að skreiðarbirgðir í landinu séu milli tólf og þrettán þúsund tonn. Verðmæti þeirra hefur verið áætlað um einnoghálfur mill jaröur króna. „Það er afskaplega erfitt að segja um horfumar,” sagði Atli Freyr Guðmundsson í viðskiptaráðuneytinu. „Eftir þeim upplýsingum sem við höfum bestar er mjög lítil hreyfing kominá þetta,” sagðihann. Sögursagnir hafa að undanförnu gengið um að Nígeríumenn hyggist leyfa, þetta ár, innflutning á í allt milli fimm og sex þúsund tonnum af skreið. Stjórnvöld hérlendis hafa hins vegar ekki fengiö neina staðfestingu á þessu. Sé eitthvað hæft í þessum lausa- fregnum má gera ráð fyrir aö þriðj- ungur af þessu magni, í, mesta lagi, komi í hlut Islendinga. Það myndi þýöa að Islendingar kæmu frá sér í ár innan viö sjötta hluta af þeim birgðum sem til eru. Utlitið er því dökkt í þessari grein sjávarútvegsins. -KMU. SAGÐISIG ÚR JAFNRÉTTISNEFND Fulltrúi Alþýðuflokksins í jafnréttis- nefnd Reykjavíkur, Helga G. Guömundsdóttir, hefur sagt sig úr nefndinni og úr flokknum. Er hún gengin til liðs við Bandalag jafnaðar- manna. Helga tilkynnti skrifstofu Alþýðu- flokksins og borgarstjórn um þetta fyrir um það bil hálfum mánuði. Hún hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Alþýðuflokkinn. Meðal annars var hún varaformaður Sambands ungra jafnaöarmanna í fyrra. Þá var hún ritari fulltrúaráðs flokksins í Reykjavík. stofnum hér við land, í samvinnu við vísindaráö Alþjóðahvalveiðiráðsins í því skyni að fyrir liggi sem full- komnust þekking á þessum hvala- stofnum, við frekari meðferö máls- ins.” Frá úrslitum málsins er sagt á forsíðu og baksíðu blaðsins. JBH Meðan umræður um hvalamálið fóru fram á Alþingi gekk ekki á öðru en frestunum funda Sameinaðs þings vegna funda í þingflokkunum og utan- rikismálanefnd. Menn ræddu málin í lokuðum herbergjum og í baksölum þingsins. Þarna voru auk þingmanna menn sem hagsmuna eiga að gæta í sambandi við hvalveiðar. Á myndinni ræða þeir saman Kristján Loftsson for- stjóri Hvals hf. og Eiður Guðnason sem flutti þingsályktunartillöguna um að samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um algjör bann við hvalveiðum yrði mótmælt. DV-mynd: GVA Skóverslun, Laugavegi 24 Halldór Matthíasson, skídagöngugarp- urinn lands- kunni, leiöbeinir viðskiptavinum í versluninni um val og meðferð Fischer göngu- I skíða, föstudag- inn 4. febrúar | kl. 15—18. /A\ GÖNGU- AUSTRIA SKÍÐI ## \\ ÁRANGUR OG ÁNÆGJA. FALKINN SUÐURLANDSBRAUT8 SÍMI 84670. A -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.