Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1983, Síða 5
DV. MÁNUDAGUR18. APRIL1983.
5
Ummæli fólks í könnuninni:
„Erfítt iþessum frumskógi”
)fAllt almennilegt fólk hlýtur aö
kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eftir aö hafa
séö hvemig þessi ríkisstjóm hefur
komiö fram,” sagði kona á Reykja-
víkursvæðinu, þegar hún svaraöi
spumingunni í skoðanakönnun DV.
„Það em alveg hreinar linur. Eg kýs
Sjálfstæðisflokkinn,” sagði önnur.
,4Cýs Sjálfstæðisflokkinn, er of vana-
bundin til að fara að skipta um skoð-
un,” sagði kona úti á landi. „Mér hefur
fundist gegnum tíðina, að Sjálfstæðis-
flokkurinn væri eini flokkurinn sem
eitthvað hefur látið kveöa að sér,”
sagði karl úti á landi.
,JViér líkar mjög vel við það sem
Hvemig skiptast
hinir óákveðnu?
Sú spuming er brennandi, hvort
unnt sé að komast nær því að ráða í
hvemig hinir óákveðnu í svona
skoðanakönnun muni skiptast, mið-
að við fyrri reynslu. DV sneri sér í
því sambandi til Þorvalds Búasonar
eðlisfræðings, sem hefur kannað
þessi efni. Reynslan af fyrri könnun-
um DV, sem gerðar hafa verið með
sömu aðferðum og nú, hefur verið sú
að Sjálfstæðisflokkurinn eigi til
dæmis lægra hlutfall meðal hinna
óákveðnu en hann hefur átt meöal
þeirra sem taka afstöðu. Fram-
sóknarflokkurinn hefur haft hærra
hlutfall meðal hinna óákveðnu en
hinna ákveönu og sama hefur gilt um
Alþýðubandalagið. Þorvaldur Búa-
son hefur reiknaö þessar tilhneiging-
ar, miðað við fyrri reynslu, og sam-
kvæmt formúlum hans gætu niður-
stöður þessarar síðustu skoðana-
könnunarþýtt að úrslit kosninganna
y röu sem hér segir:
Alþýðuflokkur 6,8%
Framsóknarflokkur 25,0%
Bandalagjafnaðarm. 9,1%
Sjálfstæðisflokkur 34,8%
Alþýðubandalag 17,5%
Kvennaframboð 6,0%
BB-listi 0,5%
T-listi 0,3%
Yrðu úrslitin þessi, fengi Alþýðu-
flokkurinn 4 þingmenn. Framsókn
fengi 15 miðaö við atkvæðahlutfall,
sem samsvaraði 16 eða 17 vegna
kjördæmaskipunarinnar. Bandalag
jafnaðarmanna fengi 5. Sjálfstæðis-
flokkurinn fengi 22 miðaö við at-
kvæðahlutfall eða 21, þegar tillit væri
tekið til kjördæmaskipunarinnar. Al-
þýðubandalagið fengi 11 miöaö við
atkvæðahlutfall og 10, þegar kjör-
dæmaskipunin hefur verið tekin í
dæmiö. Kvennaframboðiö fengi 3
þingmenn. Þar sem sum framboðin
eru ný, hefur Þorvaldur reiknað
hugsanlegt fylgi þeirra miðað við þá
útkomu, sem orðið hefur í fyrri könn-
unum hjá framboðum utan gömlu
flokkanna f jögurra.
HH
Framsóknarflokkurinn hefur gert,”
sagði kona úti á landi. ,,Ég hef kosið
Framsókn frá því ég byrjaði að
kjósa,” sagði 75 ára gömul kona úti á
landi. „Framsóknarflokkurinn er ill-
skástur,” sagði karl á Reykjavíkur-
svæðinu. „Það er svo erfitt að gera upp
hug sinn í þessum frumskógi. Trúlega
kýs ég þó Alþýöubandalagið,” sagði
karl úti á landi. „Kýs G-lista, því að
þeir eru á móti hernum,” sagöi kona á
Reykjavíkursvæðinu. ,,Kýs Alþýðu-
bandalag, því þar er álmálið ofar-
lega,” sagði karl á Reykjavíkursvæð-
inu.
„Vilmundur viröist traustvekjandi,”
sagði kona á Reykjavíkursvæðinu.
„Ég myndi kjósa Vimma, það er allt
klárt meö það,” sagði karl á Reykja-
víkursvæöinu. „Mér lízt ekkert á þetta
stjórnarfar. Ætli ég kjósi ekki Vil-
mund,” sagöi kona í sveit. „Ég slæ á
kvennaframboðið, þannig stendur það
í dag,” sagði karl á Reykjavíkursvæð-
inu. „Kvennalistann. Ég styð alltaf
konur,” sagði kona á Reykjavíkur-
svæðinu. „Ég kýs kvennalistann, en
þaö get ég svarið að það þyrði ég ekki
að segja þér ef bóndi minn heyrði til,”
sagöi öldruö kona á Reykjavíkursvæð-
inu. „Alþýðuflokkurinn er ekki góður,
þó skástur af þeim,” sagði karl úti á
landi. „Ég kýs hana Sigurlaugu mína
aösjálfsögðu,” sagðikarlá Isafirði.
Flytjast til Danmerkur?
„Þetta eru allt sömu asnarnir,”
sagði kari úti á landi. „Eg er alveg
ruglaður á þessu. Það stendur ekki á
loforðunum og það stendur heldur ekki
á svikunum hjá þessum háu herrum,”
sagði karl á Reykjavíkursvæðinu.
„Þaö er nóg að ákveða sig daginn sem
maður fer á kjörstað,” sagði karl á
Reykjavíkursvæðinu. „Ég er skúffuö á
svo mörgum. Þetta er allt vonlaust. Ég
er að hugsa um að flytjast hreinlega til
Danmerkur,” sagði kona á Reykja-
víkursvæðinu. „Ég veit bara það að ég
kýs ails ekki gömlu flokkana. Þeir lofa
öllu en svíkja allt,” sagði karl úti á
landi. „Ég hef ekki trú á neinum,”
sagði kona á Reykjavíkursvæðinu.
„Ég er algerlega óákveðinn, stend á
núlli,” sagði karl á Reykjavíkursvæð-
inu. „Ég ætla engan að kjósa. Eg er
ekkert spennt fyrir þessum kosning-
um,” sagöi kona á Suðurlandi. „Eg er
ósammála öllum flokkum. Mér finnst
þeir hæla sjálfum sér alltof mikið,”
sagði kona á Norðurlandi. „Þetta eru
allt sömu aumu grautarpungarnir,”
sagöi karl úti á landi. „Mér finnst þetta
allt botnlaust,” sagöi kona á Austur-
landi. -HH
REVÍULEIKHÚSIÐ
Hafnarbíó
Hinn sprenghlægilegi gamanleikur
KARLINN I
KASSANUM
Vegna óstöðvandi aðsóknar veröur enn ein aukasýning
á þriðjudagskvöldkl. 20.30.
Miðasalan opin frá kl. 16—19 alla daga. Sími 16444.
SÍÐAST SELDIST UPP
MICHELIN R4DIAL
ERLMÝKRl
OG E\T)AST MIM LE\GIR
Michelin Radial dekk eru mjúk og með
breitt yfirborð, sem gefur gott grip ogeykur
öryggi í akstri.
Michelin Radial dekk laða fram bestu
akstureiginleika hvers bíls.
, UMBOÐ
ISDEKKHF
Smiðjuvegi 32 - Kópavogi
Sími78680