Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1983, Qupperneq 8
8
DV. MANUDAGUR18. APRlL 1983.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Danskurákæröur
fyrirnjósnir
Danskur blaöamaöur, sem hand-
tekinn var af v-þýsku lögreglunni
fyrir njósnir í þágu A-Þjóðverja,
kemur fyrir rétt á morgun. Flemm-
ing Sörensen, fyrrum formaður
samtaka útlendra fréttamanna í
Bonn, er sakaður um að hafa af-
hent a-þýskum leynierindrekum
leyndarmál í hinum og þessum
borgum austantjalds á árunum
1970—1979. Hann hefur veriö í varð-
haldi síöan hann var handtekinn í
septemberl982.
Brottvísanir
James Callaghan, fyrrum for-
sætisráðherra Breta, segir að
brottvísun sovéska diplómatsins í
síðustu viku hafi verið „hálf bama-
leg” af hálfu breskra stjómvalda.
— Tveim Bretum hafði skömmu
áður veriö vísað brott úr Sovétríkj-
unum vegna brottvísunar á tveim
Rússum úr Bretlandi fyrr í vetur.
I úfvarpsviðtali sagði Callaghan
að það væri almennt álitiö aö Sovét-
menn heföu aukið mjög n jósnir sín-
ar á síðustu árum. Því hefði fjölda
sovéskra diplómata veriö vísað
burt úr ýmsum vestrænum ríkjum.
En hann sagðist ekki sammála
brottvísun þriöja sendiráösritara
sovéska sendiráðsins í London. Sá
maður hefði ekki verið sakaður um
njósnir.
Kvaðst Callaghan velta því fyrir
sér hvort Francis Pym utanríkis-
ráðherra hefði fengið „snert af sól-
sting” þegar hann var á ferðalagi
um austurlönd nær í síðustu viku.
FerjuslysíKína
Níu fómst og óttast er um tvo til
viöbótar eftir aö ferja sökk
skammt frá Kanton í Suður-Kína á
laugardaginn. Með ferjunni vom 65
farþegar.
Um 120 fómst meö annarri ferju,
sem hvolfdi og sökk á þessum
slóðum í síðasta mánuöi.
Kattarvæl
oginnbrot
Breska lögreglan leitar innbrots-
þjófs sem virðist kvelja kött sinn
svo aö veinin í honum yfirgnæfi
hávaöann þegar hann brýst inn í
hús.
I sex innbrotum sem framin hafa
verið í Mordenhverfi í London hafa
vitni borið að þau heyrðu kött veina
ámátlega á sama tíma og brotist
var inn. Telur lögreglan aö þjófur-
inn hafi köttinn með sér til umbrota
og kippi í rófuna á honum í „sömu
andránni og hann brjóti rúðu til
þessaðkomastinn.
Mótmælagáma-
flutningum
Hafnarverkamenn eru í eins
sólahrings verkfalli í helstu hafnar-
borgum Japans í dag til þess að
fylgja eftir kröfum um tryggari
vinnu. Þeim finnst atvinnu sinni
ógnað af aukinni gámanotkun.
Einnig stendur til að leggja niður
vinnu við gámaafgreiðslur á níu
stöðum næstu fimm daga og aftur
um þriggja daga bil eftir 26. þessa
mánaöar. — Það eru aöaliega
gámaflutningar innanlands sem
þeirmótmæla.
Beinagríndur
íhelli
Hermenn í Colombíu fundu
beinagrindur 44 manna í afskekkt-
um helli í norðurhluta landsins í
síðustu viku. Eru uppi getgátur um
að fólk þetta hafi verið drepiö af
maríjúanasmyglurum fyrir sex
árum.
Kínverjar beita fallbyssum óspart gegn Víetnömum á landamærunum.
Kínversk stórskotahríð
dynur á Víetnam
Fréttir f rá Peking kalla aðgerðimar svar við árásum Víetnama
Kínverskt stórskotalið lét skothríð-
ina dynja í gær á skotbyrgi og vígi
handan landamæranna í Víetnam en
fréttir herma að átök hafi harðnað á
iandamærunum.
Fréttir frá Peking greina frá því að
Víetnamar hafi byrjaö skothríðina í
gærmorgun og kínverskt landamæra-
liö í Yunnan-héraði svaraö henni.
Sömu heimildir segja aö víghreiður
Víetnama séu í rústum.
Á laugardag var sagt frá því í
Peking að kínverskt landamæraliö í
Guangxi-héraði hefði svarað skothríð
víetnamskra hermanna og valdið
miklum usla. — Þessar sömu fréttir
greina jafnframt frá því að skærur
hafi verið tíðar viö Víetnama á landa-
mærunum síðasta mánuð og ótil-
greindur fjöldi kínverskra smábænda
er sagöur hafa verið drepínn.
Víetnömum er borið á brýn að hafa
laumast yfir í landamærahéruð Kín-
verja og borið eld í skóga og gúmmí-
plantekrur. Auk þess eru þeir sakaðir
um að hafa rofið símalínur og unniö
fleiri spjöll.
Að margra mati hafa Kínver jar hert
aögerðir gegn Víetnömum á landa-
mærunum til þess að dreifa athygli
hinna síðamefndu frá skæruliöum í
Kampútsíu en Víetnamar hafa haldið
uppi öflugri sókn gegn Kampútsíu-
skæruliöum viö landamæri Thailands.
— Pekingstjórnin hefur stutt Rauðu
khmerana í Kampútsíu og baráttu
þeirra gegn víetnamska innrásarliðinu
og leppstjórn þess í Phnom Penh.
Þúsundir Kampútsíumanna búa í
flóttamannabúðum við landamæri
Thailands og Kampútsíu en Víetnöm-
um leikur grunur á að þessar búðir séu
höfuðstöðvar skæmliðahópa Noro-
doms Sihanouks prins og Son Sann
fyrrum forsætisráöherra.
1979, eftir innrás Víetnama í
Kampútsíu, háðu Kína og Víetnam
styrjöld á landamærunum án þess að
til úrslita drægi. Síöan hafa brotist út æ
ofan í æ skærur en flestar minniháttar
þar til núna um helgina að Kínverjar
gera mikiö úr árásum Víetnama.
Það er taliö að fyrir Pekingstjóm-
inni vaki aö vara Hanoistjómina við aö
efna til ýfinga á landamærunum sem
gætu leitt til styrjaldar. Nú heyrist þó
ekki í yfirlýsingum Pekingstjómarinn-
ar að kenna beri Víetnam lexíu, eins og
sagt var í átökunum 1979.
Víetnam hefur krafist þess aö Kína
hætti failbyssuskothríðinni á víet-
nömsk skotmörk en lýsir annars
ábyrgð á hendur Kína á afleiðingunum
ella.
Utanríkisráðuneyti Thailands hefur
sagt fréttamönnum aö það telji að-
gerðir Kínverja réttmætar vegna ögr-
ana og yfirgangs Víetnama gagnvart
nágrönnumsínum.
Síðustu viku hefur allt verið meö
kyrrum kjörum á landamærum Thai-
lands og Kampútsíu. Frést hefur þó að
víetnamskt herlið sitji um Ban Sa-
Ngae, sem er um 300 km austur af
Bangkok. Þar voru stærstu bækistööv-
arskæruliða khmeranna.
Walesa var fagnað sem þjóðhetju þegar hann kom ti' messu í stærstu kirkju Pól-
lands í gær. „Ekkert frelsi án Einingar, ”hrópaði fólkið.
ÓKYRRD f VARSJÁ
VEGNA FYRSTA
MAÍ AÐGERÐA
Lögreglan í Varsjá dreifði í gær um
1000 manna safnaði sem sækja ætlaði
opinbera athöfn til heiðurs hetjunum í
uppreisn gyðingahverfisins gegn nas-
istum fyrir 40 árum. Að þessari minn-
ingarathöfn stóðu fylgismenn Eining-
ar-
Janusz Onyszkiewics, einn af for-
vígismönnum hinnar bönnuöu verka-
lýöshreyfingar, sagði í ræðu að hann
teldi að hetjur „gettósins” hefðu verið
sömu hugsjóna og Eining. — Oein-
kennisklæddir lögreglumenn leiddu
hann burt eftirfundinn.
Hið opinbera hefur sett upp tveggja
vikna dagskrá til minningar um upp-
reisnina í gettóinu en upp komu hug-
myndir meðal gyðinga og Einingar-
manna að sniðganga þær athafnir og
minnast sjálfir með sínum hætti hetju-
dáðanna sem drýgöar voru í barátt-
unni við hemámsliö nasista.
Josef Glemp kardínáli hefur hvatt til
sátta alþýöu og stjómvalda eftir hand-
tökur stjórnarandstæðinga í kjölfar
áskorana Einingarmanna um mót-
mælaaðgeröir verkalýösins 1. maí. Átti
hann viöræður við Lech Walesa í gær
um áhyggjur kirkjunnar þjóna af
hugsanlegum árekstrum við yfirvöld
vegna fyrirhugaðra mótmælaaðgerða.
Walesa sótti guðsþjónustu í kirkju
heilagrar Maríu og var fagnað eins og
þjóðhetju af söfnuðinum enum25þús-
und manns voru þar við messu. Þegar
hann hélt frá messu hrópaöi fólkið í sí-
fellu nafn hans og eins slagorðið „Ekk-
ertfrelsián Einingar”.
1. maí aögerðimar, sem kirkjunnar
menn kvíöa, gætu sett strik í reikning-
inn um fyrirhugaða heimsókn Jóhann-
esar Páls páfa til Póllands (í júní) en
pólsk yfirvöld hafa ítrekað að „að-
stæður heima fyrir verði að vera rétt-
ar”.
Nánustu samstarfsmenn Walesa
segja að lögreglan vinni enn að rann-
sókn og yfirheyrslum vegna leynifund-
ar Walesa á dögunum meö neöan-
jarðarforingjum Einingar. Walesa hef-
ur boðað til fundar með erlendum
blaðamönnum á miðvikudag.