Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1983, Síða 10
10
DV. MÁNUDAGUR18. APRÍL1983.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Morðið á Issam Sartawi:
Hótun við hófsamari
Palestínuaraba?
Þaö er ekki hægt aö segja hversu
mikið áfall það var fyrir friðarhorfur
í Mið-Austurlöndum að Issam
Sartawi var myrtur á þingi Alþjóða-
sambands jafnaðarmanna í Portú-
gal, því það er alls ekki ljóst, hversu
miklu hann hafði áorkaö í sinni ára-
löngu friðarviðleitni. Að sönnu hafði
hann átt viðræður við ýmsa ísraelska
aðila, en til þessa hafa stjórnvöld í
Israel ekki viljaö viðurkenna slíkar
viðræður. Og sannarlega varð Sart-
awi að teljast talsmaður minnihluta-
hóps innan PLO, þar sem margir
valdamiklir aöilar litu starf hans
hornauga. En þó Sartawi hafi ekki
gegnt nokkurri opinberri stöðu innan
PLO, var hann náinn samstarfsmað-
ur Arafats, og víst að dauði hans er
Arafat mikiðáfall.
Sartawi var persónulega boðiö til
þings Alþjóðasambandsins af hinum
portúgölsku gestgjöfum. Þegar
þangað kom reyndist staða hans
nokkuð óljós, þar sem ekki fékkst
samþykkt að hann ávarpaði þingið.
Að lokum var sú málamiðlun gerð að
ritari Alþjóðasambandsins, Svíinn
Bernt Carlsson, las ávarp hans upp
undir lok þingsins. En Sartawi sjálf-
ur fékk ekki að sitja þingið, og þegar
hann var myrtur stóð hann frammi í
inngöngusal hótelsins Montchoro,
þar sem þingið var haldiö, og ræddi
þar við sendiherra Tanzaníu í Portú-
gal og áheyrandafulltrúa frá Kýpur
sem sat þingið. Tilræöismaðurinn
skaut fimm skotum aö Sartawi, sem|
léstþegarístað.
Haukur sem varð að dúfu
Æviferill Sartawis var um margt
óvenjulegur. Þegarhann varbarnaö
aldri flúöi fjölskylda hans frá borg-
inni Accra til Irak, þegar ríkið Israel
varð til árið 1948. Þaðan hélt hann
síðar til náms í Bandaríkjunum og
lærði þar til læknis. Hann var hjarta-
skurölæknir að mennt. En eins og fór
með svo marga Palestínuaraba,
varð auðmýking araba í stríðinu 1967
honum óbærileg, og hann hélt til Mið-
Austurlanda þar sem hann varð einn
stofnfélaga A1 Fatah og áhrifamikill
ráðgjafi Arafats.
Hann barðist sem skæruliði í Irael
og særðist í átökunum þar. Árið 1968
sleit hann sambandi sínu við Arafat
um tíma á þeirri forsendu að Arafat
væri ekki nógu einbeittur í barátt-
unni gegn Israel. En ári seinna var
hann orðinn bandamaður Arafats að
nýju.
Meö dauða Sartawis hefur einnig
lokið gömlu sakamáli í V-Þýska-
landi. Arið 1970 réðust hermdar-
verkamenn á flugstöðina í Miinchen
og í átökum þar lést einn Israels-
maöur og þrettán aðrir meiddust.
Saksóknari Bæjaralands, Otto
Heindl, segir naumast nokkurn vafa
leika á því að Sartawi hafi skipulagt
árásina. Fyrir því ber hann vitnis-
burð tveggja Palestínumanna, sem
handteknir voru eftir árásina.
Sartawi sjálfur kom aldrei til V-
Þýskalands. Og hefði hann gert það
hefði hann verið handtekinn.
En hann varð afhuga hryöjuverk-
um og morðum innan skamms og lét
af vopnaðri baráttu. Hann varð með
tímanum talsmaöur hófsamari aðila
innan PLO og tók upp áróður fyrir
friðarsamningum.
Vegna friðarviðleitni sinnar varö
hann illa séður af ýmsum innan PLO
og hélt því sjálfur fram, skömmu
fyrir dauða sinn, aö honum hefðu
verið sýnd 25 morðtilræði. Þau
fylgdu í kjölfar funda hans viö Isra-
elsmenn, sem voru sama sinnis og;
hann sjálfur. Einn síðasti fundurj
sem Sartawi átti með Israelsmannij
var við Liova Eliav og ræddu þeir.
þar fangaskipti eftir Líbanonsstríö-
ið.
Á fundi Þjóðarráðs Palestínu í
Alsír, sem fram fór í febrúar, varð
Abu Nidal. Þessi öskýra mynd var
tekin af israeisku leyniþjónust-
unni fyrir nokkrum árum og er sú
eina sem birst hefur afhonum.
mikiö uppistand þegar Sartawi hót-
aði að segja sig úr samtökum
Palestínuaraba. Það var vegna þess
að hann komst ekki á mælendaskrá,
og mun það hafa verið vegna þess að
þingforsetar töldu ekki ráðlegt aö
leyfa honum að tala um frið, þar sem
það hefði getað kostað opinberan
ágreining innan ráðsins. Þó óttuöust
menn að úrsögn Sartawis gæti leitt
til klofnings innan ráösins, og varð
það ekki útkljáö fyrr en Arafat hafði
rætt við ráðgjafa sinn og tjáð honum
að úrsögn hans yröi ekki tekin gild.
Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Sart-
awi hafði gripið til þessa ráðs til að
rödd hans heyrðist innan PLO.
Árangur starfsins
En það verður að varast það að
gera of mikið úr árangri Sartawis í
friöarumleitunum hans. I fyrsta lagi
leikur ekki nokkur vafi á þvi að hann
Þaö er því ljóst að árangur af starfi
Sartawis varlítill.
En þó verður það að teljast nokkur
áfangi að viöræöur hafi fariö fram,
þó milli minnihlutahópa hafi verið.
Því þó Sartawi hafi veriö fulltrúi
minnihlutahóps innan PLO heyrðist
rödd þess hóps þó innan samtak-
anna. Og mun heyrast áfram þó hans
njóti ekki lengur við. En það er óviss-
ara með undirtektirnar.
Abu Nidal
Abu Nidal-hópurinn á ekki aðild að
PLO. Leiðtogi hópsins, kallaður Abu
Umsjón:
ÓlafurB. Guðnason
var fulltrúi minnihlutahóps innan
PLO. Að vísu hefin- borið á nokkurri
slökun á stefnu PLO gagnvart Israel
hin síðari ár. Arafat hefur lýst sig
reiðubúinn að viðurkenna tilverurétt
Israelsríkis gegn því að landakröfum
PLO verði fullnægt. En meira að
segja Arafat helst ekki uppi að sýna
of mikinn sveigjanleika gagnvart
Israel. Það kom glögglega í ljós á
fundi Þjóðarráðs Palestínu í Alsir í
vetur, þar sem Arafat komst ekki hjá
því að taka mikið tillit til
einstrengislegri afla innan samtak-
anna. Því Arafat er það fulUjóst að
gangi hann of langt gerist annaö
tveggja; PLO klofnar eða Arafat
missir ÖU völd og áhrif.
I öðru lagi hafa öll sambönd
Sartawis við Israela verið við minni-
hlutahópa innan ríkisins. Að sönnu
mótmæltu 40 þúsund Israelar innrás-
inn í Líbanon, enda benti Sartawi
gjama á það þegar hann vUdi sann-
færa viðmælendur sína um friðar-
vilja almennra borgara í Israel. En
við stjórnvölinn í Tel Aviv situr
Menachem Begin og styðst við litla
hópa ofsatrúarmanna og þjóðernis-
sinna á þinginu. An þeirra hefði hann
ekki meirihluta. Og þess konar
stjórn mun aldrei semja við
Palestínuaraba um eftirgjöf í landa-
kröfum. Meira að segja Verka-
mannaflokkurinn undir stjórn Shim-
on Peres hefð: lítið svigrúm til eftir-
gjafar í samningaviðræðum viö
Palestínuaraba, eða fulltrúa þeirra,
svo sem Hussein Jórdaníukonung.
Sartawi og Arafat voru vinir og Sartawi einn hans nánasti ráðgjafi einnig.
Nidal, en heitir réttu nafni Sabri al
Banna, var upphaflega meölimur í
A1 Fatah-samtökunum. Þegar A1
Fatah varð kjarninn í PLO var Abu
Nidal gerður að sendimanni samtak-
anna í Súdan en vann þar fá afrek.
Kunnugir segja að Abu Nidal hafi þá
þegar verið illa haldinn af minni-
máttarkennd og hatri í garð yfir-
manna A1 Fatah, þar sem hann taldi
sig ekki vera virtan að veröleikum.
Víst er að hann er til muna síður
menntaður en flestir frammámenn
Palestínuaraba.
Á sínum tíma var hann nátengdur
hryðjuverkasamtökunum Svarta
september, og þegar A1 Fatah-
samtökin fordæmu hryðjuverk uröu
vinslit með honum og meirihluta
PLO oghannhéltáframaðstarfaaö
hermdarverkum og skipuleggja þau.
Áriö 1974 féllust PLO-samtökin á
þá hugmynd að ríki Palestínuaraba
yrði á Vesturbakkanum. Þá taldi
Abu Nidal að Arafat hefði svikið
málstaðinn og sýndu samtök hans
Arafat morðtilræði í Damaskus.
Síöan hefur Abu Nidal-hópurinn
myrt sex fulltrúa PLO, auk fjölda
gyöinga. Þetta geröi hann lengi í
skjóli vinskapar við stjómvöld í Sýr-
landi. En 1976 snerist hann gegn Sýr-
lendingum og stóð fyrir sprengju-
tilræöum í sendiráðum Sýrlands, og
gegn utanríkisráðherra landsins. Þá
flúði hann til íraks og hefur haft þar
lengi aðsetur, en upp á síðkastiö
hefur heldur batnaö milli hans og
sýrlenskra stjórnvalda og hafa sam-
tök hans nú skrifstofu í Damaskus.
Abu Nidal hefur veriö dæmdur til
dauða af PLO og verður að fara
Franskur fuiitrúi á þingi Alþjóða-
sambands jafnaðarmanna, Jean-
Bernard Curial, krýpur við lík
Sartawis.
huldu höfði. Hann er nánast ekki
annað en leigumorðingi, sem þrífst
vegna þess hversu slæmt samkomu-
lag er milli arabaríkjanna innbyrð-
is. Þeir em fáir sem þykjast skilja
hver hans pólitíska afstaða er eða
fyrir hverju hann berst. En það kann
að vera vísbending um ágreining
innan PLO að dauöadómnum yfir
Abu Nidal hefur ekki verið fullnægt.
Arafat varaður við
Þegar talsmaður Abu Nidal-hóps-
ins lýsti sök á hendur hópnum fyrir
morðið á Sartawi benti hann m.a. á
grein úr málgagni Abu Nidal, sem
heitir , J^alasttine A1 Thawra”, eða
„Palestínska byltingin”. I grein sem
þar birtist fyrsta apríl, undir fyrir-
sögninni „Af hverju Issam
Sartawi?”, segir m.a.: Hið sjötta
skilningarvit, sem Arafat er svo ríku-
lega gæddur, sveik hann hvað varð-
aði eðli Sartawis. Leiðtogi vor ákvaö
að taka á sig ábyrgðina á því að út-
rýma þeim grunsamlega hópi, sem
þykist vinna að frelsun Palestínu, og
Sartawi er leiðtogi fyrir. ..”
Þetta verður varla skilið á annan
hátt en sem viðvörun til Arafats viö
því að slá af kröfum Palestínuaraba.
Það er að vísu staðreynd að Abu
Nidal er einangraður frá öömm
Palestínuaröbum. Hann á ekki aðild
að PLO og opinberlega geta þeir sem
aðild eiga að PLO ekkert átt saman
við hann að sælda. En skilaboðin eru
í sjálfu sér einföld: byssukúla getur
stöðvaö hvern sem er.
Hin óútkljáða spumingersú; fyrir
hvern myrti Abu Nidal-hópurinn
Sartawi? Margir arabar vilja kenna
ísraelsku leyniþjónustunni Mossad
um. öðram finnst þar leitað langt yf-
ir skammt, þar sem vitað er að
Sartawi átti marga andstæðinga
innan PLO sem utan. Auk þess hefur
Abu Nidal-hópurinn staðiö fyrir
hryöjuverkum gegn Israelsmönnum,
og slíkt fyrirgefa þeir seint eða
aldrei. Auk þess má benda á undar-
legt áhugaleysi sem virðist ríkja á
því innan PLO að fullnægja dauða-
dómnum yfir Abu Nidal og spyrja
hverjir þeir séu sem vemda hann.
Og að lokum má benda á samband
Sýrlendinga við hópinn, en það er öll-
um ljóst að af öllum Arabaríkjum er
það Sýrlendingum mest í mun að
ekki verði samið við Israelsmenn. Og
þá skiptir ekki máli hvort maðurinn
heitir Sarta wi eöa Arafat.