Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1983, Síða 15
DV. MÁNUDAGUR18. APRlL 1983.
Veikindi
þungaðra
kvenna
— Iftið dæmi um réttleysi
hinnar vinnandi konu
Ef barnshafandi kona innan raða
Alþýðusambandsins verður veik á
fyrri hluta meðgöngu og veikindin
tengjast þunguninni er undir hælinn
lagt að konan fái greidd laun í þeim
veikindum sinum. Það er háð góð-
mennsku atvinnurekandans hvort
hún fær greidd laun þann tíma eða
ekki.
Hvemig stendur á því, kann ein-
hver að spyr ja. Eru ekki lög í landinu
sem tryggja launþegum laun í veik-
indum? Jú, að vísu. I lögum um rétt
verkafólks til uppsagnarfrests frá
störfum og til launa vegna sjúkdóms-
og slysaforfalla er kveðið á um rétt
verkafólks er það forf allast frá vinnu
vegna sjúkdóma eða slysa. Réttur-
inn er mismikill eftir því hversu
lengi fólk hefur unnið hjá sama at-
vinnurekanda, en á fyrsta starfsári
má segja að hann sé tveir dagar fyrir
hvem unninn mánuð. Þess ber að
geta hér að aðrir viðsemjendur laun-
þega en Vinnuveitendasambandið
hafa viðurkennt rétt kvenna til
greiðslu vegna veikinda á með-
göngutíma.
Þrátt fyrir lögbundinn rétt fólks til
greiðslu í veikindum er að finna
eftirfarandi dæmi í bókinni „Vinnu-
mál I, túlkun kjarasamninga”, sem
Vinnuveitendasamband Islands gaf
útí janúarl978:
Sp.:
Teljast veikindafjarvistir kvenna
á meögöngutíma vegna þungunar
til almennra veikinda?
Kjallarinn
Lára V Jútíusdóttir
honum verið í lófa lagið að taka slíkt
fram við setningu laganna.
Því get ég ekki annað séð en þung-
uð kona haldi áunnum rétti sinum til
greiðslna i veikindum skv. 1. 1979 ef
hún veikist á meðgöngutíma þótt í
ljós séu leidd tengsl þungunar og
sjúkdóms. Þungun er ekki veiki,
heldur fullkomlega eölilegt ástand
konu. Allar hártoganir í þá átt að þá
hafi kona tekið á sig aukna áhættu og
við það eigi réttur hennar að skerð-
ast brjóta í bága við anda jafnréttis
og lýsa löngu úreltum viðhorfum og
fordómum í garð kvenna.
Sv.:
Stafi veikindafjarvistimar af
meðgöngunni hefur verið talið að
þær féllu ekki uridir hin almennu
veikindadagaákvæði, þannig aö
ekki ber skylda til að greiða kaup
eftir almennum veikindaregl-
um.”
Með öðrum orðum, konan getur
sjálfri sér um kennt.
I tilvitnuðum lögum nr. 19/1979 er
fjallað um sjúkdóma og veikindi án
þess aö nánari skilgreining á þvi
hvað átt sé við fylgi. Ekki er heldur í
greinargerð sem fylgdi frumvarpinu
til L 19A979 aö finna nokkra leiðbein-
ingarreglu um hvað átt sé hér við.
Því verður að fara hefðbundnar
lögskýringarleiðir og athuga laga-
téxtann sjálfan. Ekki verður séð að
veikindi eða sjúkdómar konu á
fyrstu mánuðum meðgöngu séu hér
undanskildir, jafnvel þótt sýnt sé
fram á að þeir standi í sambandi viö
þungun konunnar. Ef þaö hefði verið
vilji löggjafans að undanskilja hér
ákveðna sjúkdóma eða veikindi hefði
En hvemig stendur á því að ekki
hefur verið látið reyna á þetta fyrir
dómi? Ekki er það vegna viljaskorts
Alþýðusambandsins, vegna þess að
það hefur óskaö eftir að á þetta
reyndi. En til þess að fara í mál þarf
þungaða konu, sem veikst hefur á
meðgöngutíma, konu sem þorir að
láta á það reyna fyrir dómi hvort hún
njóti þeirrar lágmarkstryggingar
vinnulöggjafarinnar að fá greiðslu í
veikindum. Því miður er það svo að
enn elur fólk á fordómum gagnvart
óléttum konum. Þær finna mætavel
fyrir því og vilja ekki auglýsa ástand
sitt eða auka á þær áhyggjur og
streitu sem fyrir er með máishöfðun
sem ef til vill kann að virðast tvísýn.,
Nóg er samt. Á meöan svo er ástatt
ganga vinnuveitendur á lagið og
neita þessum konum um greiðslur í
veikindum.
(Þess má geta að Jafnréttisráð
hefur mótmælt túlkun Vinnu-
veitendasambands Islands á launa-
greiðslum til kvenna vegna veikinda
á meðgöngutíma.)
Lára V. Júlíusdóttir hdl.
„Allar hártoganir í þá átt aö þá hafi kona
^ tekið á sig aukna áhættu og við það eigi
réttur hennar að skerðast brjóta í bága við
anda jafnréttis og lýsa löngu úreltum viðhorf-
um og fordómum í garð kvenna...”
15
Ævintýrið hefst með þriggja sólarhringa lúxussiglingu
með ms Eddu til Bremerhaven. Frá Bremen til Hanau
liggur röð upphaísborga Grimmsœvintýranna:
Brimarborgarsöngvaranna, Hans og Grétu, Þyrnirósu,
Mjallhvítar o.íl., o.íl. Þessa leið er œvintýralegt að aka
á nokkrum dögum í eigin bíl óháður öðru en duttlung-
um sjálís sín.
Frá Hanau er hœíileg ökuferð til Bernkastel-Kues ein-
hvers fegursta og írœgasta vínrœktarbœjar Moseldals-
ins. Við bjóðum siglingu með ms Eddu og bílinn með
og 5 daga dvöl með morgunverði á nýju glœsilegu
hóteli í Bernkastel fyrir kr. 8.994,- Gengi 14.4. '83.
Verð fyrir hvern í 4ra manna fjölskyldu. Tveir fullorðnir
og tvö börn, yngri en 12 ára.
Veitum allar nánari upplýsingar. rJru?
Almennar upplýsingar um Þýskaland eru fáanlegar
hjá: Tysk Turist-Central, Vesterbrogade 6d, 1620 Koben-
havn.
FARSKIP
AÐALSTRÆTI 7 REYKJAVÍK SÍMI 2 5166
SANYO
Offtía/ \fidoo Products
af LA1984 Otympics
Efþú átt 6000 krónur
í útborgun — eigum við
myndsegulband fyrírþig.
<2\
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðuriandsbraut 16 Sími 91 35200