Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1983, Blaðsíða 16
16
DV. MÁNUDAGUR18. APRIL1983.
Spurningin
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Hefurðu farið á
hestbak nýlega?
Skúli Einarsson sjómaður: Nei, ekki í
vetur. Ég held ég hafi bara einu sinni
komið á hestbak á ævinni.
Stefán Unnarsson nemi: Nei, ekki
neitt. Einhvern tíma hef ég nú komiö á
hestbak, ætli það séu ekki tólf ár síðan.
Guðmundur Guðnason strætisvagna-
stjóri: Já, já, ég fer þetta fjórum til
fimm sinnum í viku og hef mikla
ánægju af. Fjölskyldan á sjö hesta alls.
Pétur Axel Pétursson járnsmiður:
Nei. Ég held það séu komin tuttugu ár
síðan ég fór síðast á hestbak.
Arna Valsdóttir, nemi í MHÍ: Ekki ný-
lega, nei, en ég á ein níu stykki. Ég er
frá Akureyri og hrossin eru þar. Þetta
er gífurlega skemmtilegt, ég er alin
upp viö aö vera á hestbaki.
Björn Kristinsson, frystihússtarfs-
maður frá Stöðvarfirði: Nei, ég hef
ekki gert þaö og það er langt síðan ég;
fór síðast. Nú er að byrja lífið í hesta-j
mennskunni úti á landi, eftir veturinn. i
Börn að leik.
„Hvergi pláss fyrir
dagvistun bams”
Foreldrar i
vandræðum:
3965-9727 hringdi:
Ég, kona mín og systir hennar höf-
um verið að leysa dagmömmuvanda-
málið. Systir konunnar býr í Kópavogi
og við í Hafnarfirði. Systir konunnar
hafði samband við Félagsmálastofn-
un Kópavogs til að athuga hvort ein-
hver laus dagmamma væri en hvergi
var laust pláss fyrir daggæslu barns.
Hún hefur stundum velt því fyrir sér að
taka sjálf böm í gæslu og taka okkar
bam líka og fleiri. Hún býr í einbýlis-
húsi og við góðar aöstæður. Hún spurði
því hvort hún gæti fengið leyfi til dag-
gæslu barns sjálf en þá varhenni svar-
að því að þessum leyfum væri ekki út-
hlutað nema á tímabilinu frá 1. ágúst
til 15. október.
Þegar hún spuröi hvaö dagmömmur
fengju í gjald fyrir gæslu var henni
svarað að þaö væri engum gefið upp
nema þeim sem væm meö böm í gæslu
hjá dagmömmu.
Mig langar til að spyrja Félags-
málastofnun Kópavogs hvort hún sé til
aö gæta hagsmuna dagmæðra eða
leysa félagsvandamál fólks í bæjarfé-
laginu.
Ef þetta er ekki misskilningur þá
þætti mér vænt um aö fá svör.
Sigurlaug Einarsdóttir f óstra:
Það eru 65 dagmömmur og 178 börn
í daggæslu í heimahúsum í Kópavogi.
Við fáum mikið af upphringingum dag-
lega og því er erfitt aö rifja upp eitt
einstakt atvik. Leyfisveitingar eru frá
1. ágúst til 15. októbér og við gerunT
ákveðnar kröfur til dagmæðra. Þær
þurfa meöal annars að sækja nám-
skeið um uppeldis og fræðslumál sem
haldin em árlega á vegum Félags-
málastofnunar Kópavogs. Veittar hafa
verið undanþágur í einstökum tilvik-
um þar sem brýn þörf hefur verið á og
mikil eftirspum. I fyrstu grein reglu-
geröar um dagvistun barna í Kópavogi
segir: ,,FélagsmálastofnunKópavogs
(Félagsmálaráð) veitir leyfi til gæslu
bama í heimahúsum og skulu leyfis-
hafar einir hafa heimild til aö taka
greiðslu fyrir slíka gæslu í Kópavogi.”
Gjaldskráin er unnin af Samtökum
daggæslukvenna í Kópavogi.
Kosningarogloforð:
Alþingismenn
svikið öll sín
0769-6078 hringdi:
Ég var að hlusta á Gull í mund í
morgunútvarpinu 14. apríl og þá sagði
kona aðenginnmyndiráðatilsínfólk
sem mætti ekki til vinnu og hefði svikiö
öll sín loforð. Þetta hafa alþingismenn
gert sagði hún og ég tek undir þaö.
Samt fara þeir fram á að viö ráðum þá
áframhaldandi til starfa.
Svavar Gestsson hefur til dæmis
margoft sagt að það væri ekkert mál
fyrir sig að leggja á nýja skatta til að
geta tryggt fólki sem er að byggja í
fyrsta sinn 80% af kaupverði eignar.
I dag hefur fólk hins vegar ekki einu
sinni efni á að greiða húsaleiguna sína
sem er svipuð hjá mörgum og
mánaðarkaupiö þannig að ekki grillir í
lausn.
Ég vona að hann komist ekki á þing
eða hans fylgifiskar sem hugsa svona.
Þessir menn þykjast þó vera að berj-
ast fyrir láglaunafólkið. Er þetta trú-
verðugt?
Frammistaða
flugmáiastjóra
ísjónvarpi:
Sýnir að
Stein-
grímur
gerði rétt
Jónas Jóhannesson skrifar:
Ég get ekki orða bundist vegna
frammistöðu Péturs Einarssonar flug-
málastjóra í sjónvarpinu nú á dögun-
um. Hann stóð sig frábærlega vel og
sýndi yfirgripsmikla þekkingu á öllu
sem að f lugmálum lýtur.
Þótt ég hafi upphaflega verið efins
um réttmæti skipunar Péturs í
embætti flugmálastjóra þá er ég nú
iþeirrar skoðunar að Steingrímur Her-
Steingrimur Hermannsaon.
mannsson hafi gert rétt með því að
skipa Pétur í embættið. Ég er ekki
alltaf sammála því sem Steingrímur
segir eða gerir en hann má eiga það að i
í þessu máli sýndi hann kjark sem fáir
aðrir stjórnmálamenn hefðu þorað að
sýna. Ég óska Steingrími og Pétri til|
hamingju með frammistöðuna.
Vestfirðingar:
Kjósið Sigurlaugu
Ólöf Kristjánsdóttir hringdi:
Mig langar til að Vestfirðingar meti
störf Sigurlaugar Bjarnadóttur og sér-
staklega Dýrfiröingar, aö þið kjósið
hana af heilum hug í hvaða flokki sem
þið standið. Árnaðaróskir til Sigur-
laugar Bjarnadóttur. Hennar besta
vinkona, Olöf, og kveöja til Vestfirð-
inga einnig.
Ég bý í Reykjavík og kýs Sjálf-
stæöisflokkinn af heilum hug. Ef ég
væri hins vegar heima í Dýrafirði
myndi ég kjósa Sigurlaugu Bjarnadótt-
ur.
Sigurlaug Bjarnadóttir.