Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1983, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1983, Page 20
20 DV. MÁNUDAGUR18. APRlL 1983. gunnar ornislev. GUNNAR ORMSLEV - JASS í ÞRJÁTÍU ÁR BROT URISLANDSSOGU Hinn tuttugasta og annan mars síðastliöinn hefði Gunnar Ormslev orðið fimmtíu og fimm ára. I minningu hans efndi Jazzvakning til glæsilegra tónleika. En hún gerði betur. Þá loks- ins kom út plata sem jassunnendur höfðu beðið eftir — minningarhljóm- platan um Gunnar Ormslev. Nítján hundruð fimmtíu og tvö hefst sagan, því elsta hljóðritun á plötunni er frá því ári, Vermalandsvísan á plötu frá H.S.H. Síðan er ferillinn rakinn eins og unnt er með hljóðritunum af ýmsu tagi, en oft var nánast hending hvað var til hljóðritað og guð má vita með hvaða aðferðum og tækni. Nærri má geta aö ekki hefur það verið heigl- um hent að vinna margar upptökurnar upp í plötuhæft ástand og held ég að þar hafi endurvinnslumenn unnið þrekvirki. Upptökugæði gilda einu, því sama er hvar gripiö er niður á plötunni — þar vitnar allt jafnan um snillinginn sem blæs í saxófóninn. Þennan hvíslandi seiðmagnaöa tón, sem samkvæmt kokkabókum í blásturspedagógik var hreint ekki myndaöur samkvæmt ritúalinu. En það sýnir okkur aðeins hvemig theorían getur stundum staöið berrössuð þegar praktisku dæmin segja annað. Og þessi ljúfi tónn var í algjörri harmóníu við fljúgandi létta tæknina og hugmyndaauðgina í sólóum Gunnars. En ljúfust er minningin um Gunnar, þegarhanná laugardagseftir- miðdegi klappaði léttilega á öxlmanni, táningsspjátrungi sem þóttist geta spilað, og spurði, „viltu djamma?”. Þannig var Gunnar — aldrei yfir það hafinn að deila snilli sinni, jafnvel með unglingum sem vom að stíga sín fyrstu spor á jassbrautinni. Mörg lögin vekja með manni minningar og kennd um að maður hafi upplifað merkisatburöi Islandssögunn- ar. Eg held að elsta upptakan sem ég þekki af eigin raun hafi veriö útvarps- útsendingin frá djamminu með Konitz og ég má segja að þá hafi ég sannfærst um að jass væri alls ekki þetta stór- hættulega fyrirbæri sem gamlar konur nefndu heist ekki upphátt, frekar en þaöíneðra. Svo var það svonefnt Gulda djamm. Þá hélt maður að þakiö ætlaði af Framsóknarhúsinu. Ja,þá var gaman í henni Reykjavík. Seinna heyrði ég Gulda segja að djammið hefði veriö hápunktur Islandsfararinnar og einn albesti jassleikur sem hann hefði tekið þátt í. Eða lokalag á hlið tvö og upp- hafslag á hliö þrjú. Þarerþaðtríó Jóns Páls,tenórsax, bassioggítar. Stórkost- leg samsetning — sannkallað virtúa- ósatríó. Eitt sinn spiluðu þeir í Tjamarcafé hjá' Jazzklúbbi Reykja- víkur og þá sagöi Pétur östlund í hléinu — ,,það var eins gott að þeir tóku pásu, því annars hefði ég orðið að pissa í buxumar”. Já menn gengu ekki að óþörfu út frá slíkum snilldarleik. Á f jórða og síðustu hliöinni em nýrri upptökur með betri tækni. En tæknin er það eina sem breytist. Gunnar Ormslev er sá hinn sami. Snillingur- inn, sem með leik sínum yljar manni um hjartarætur. Saga hans, rakin á fjómm plötusíðum, er einnig saga jassins á Islandi um þrjátíu ára bil — brot úr Islandssögunni. Annálar nú- tímans era ritaöir á tón eða myndbönd og þótt margir dýrgripir glatist varð- veitist vonandi nóg til að geyma minn- inguna um skemmtilegt tímabil. Jazz- vakning hefur lagt fram gagnmerkan skerf til íslenskrar sagnfræöi. Hún hefði átt skilið betri umbúðir um sitt gagnmerka framlag. Ekki nægja skreytingar Tryggva Olafssonar og Áma EKars til að upphefja hroðviikni íslensks iönaöar, þar sem frágangur umslags og plötu era síst til að hvetja menn til að hafa yfir slagoröiö „veljum íslenskt”. Kálfsskinn varðveitti innihald Is- lendingasagna áöur fyrr og oftast var það handverk betur í stíl við listaverk- iö innan í en frágangurinn á þessari plötu og umslagi. En allt að einu er minningarplata Jazzvakningar um Gunnar Ormslev góð, alþýðleg sagn- fræði á tuttugustu öld. EM. JOAN ARMATRADING - THE KEY: LYKILL AÐ VELGENGNI? Enn einu sinni kemur Joan Arma- trading með plötu sem aðdáendur hennar geta verið ánægðir með. The Key heitir nýjasta afkvæmi hennar og er nafnið tekið eftir lykli sem hún ber að jafnaði um hálsinn og er hennar lukkutákn. ÞróunarferUl Joan Armatrading er nokkuö sérstakur. I byrjun notaðist hún mikið við kassagítar sem hún spil- aöi sjálf á, en meö tímanum hefur tónlist hennar orðið rafmagnaðri og á síðustu plötu hennar Walk Under Ladder var rafmagnsgítarinn búinn að taka völdin þótt ekki hafi hún spUað sjálf. En á The Key tekur hún í raf- magnsgítar og tekur meöal annars sóló í einu lagi, TeU Tale, einu af ágæt- um lögum á plötunni. Það er nokkur munur á The Key og Walk Under Ladders þótt ekki sé það beint gæðamunur heldur liggur munurinn í lögunum sjálfum. Á Walk Under Ladders voru mjög góð lög sem skáru sig nokkuð úr heildinni að gæö- um. En á The Key era lögin mun jafn- ari og í heild léttari blær yfir lögunum, sem aö sjálfsögöu era ÖU samin af J oan Armatrading, bæði ljóð og tónlist. The Key er áttunda plata Joan Armatrading, sem fædd er í Vestur- Indíum en fluttist sjö ára tU Englands og hefur búið lengst af í Birmingham. Að mínu mati hefur henni farið fram sem lagahöfundi en hennar veika hUð era textarnir, þeir láta aö vísu vel í eyrum, en eru frekar innihaldslausir. En hún vinnur þaö upp með ágætum útsetningum og heUlandi og sérkenni- legri rödd. Þaö er nokkuð erfitt að flokka tónlist Joan Armatrading í dag. Þótt hægt sé að segja að tónlistin sé létt rokkuð þá hefur maður á tilfinningunni aö meira búi undir og The Key sé aðeins hluti af' þróun hennar sem tónlistarmanns. Það er erfitt að gera upp á miUi lag- anna á The Key. Eitt lagið, Drop The PUot, hefur notið nokkurra vinsælda að undanförnu, en það sker sig ekkert úr þegar hlustað er á aUa plötuna. Er aöeins eitt af eUefu lögum sem öll láta velíeyrum. Joan Armatrading á aö baki tíu ára feril sem poppstjama og þrátt fyrir þennan langa feril er ekki að heyra nein þrejdumerki á henni, það er eins og áður sagði, að búast má við meiri afrekumafhenni. HK KLORAÐIBAKK- ANN - ÞOKKALEGA Hljómsveitin Black Sabbath er að mínu mati búin að vera sem skapandi þungarokksflokkur, eins og hann var að nokkra leyti framan af ferU sínum. Lög og plötur Sabbath hafa á síðustu árum verið frekar hvimleiðar endur- tekningar á því sem þeir höföu þegar unnið sér markvert til framdráttar. MeðUmir hljómsveitarinnar (sem raunar era að týna tölunni, aðeins þrír NYJAR PLOTUR eftir að upprunalega gengi) virðast vera staðnaðirtónlistarlega séð. Nýjasta hljómplata flokksins, Live E vil, sem hér er tU umfjöllunar, er tvö- föld hljómleikaskífa, tekin upp á þrennum tónleikum, í borgunum Seattle, San Antonio og DaUas. Þar gefur að heyra ÖU helstu lög hljómsveitarinnar frá fyrri tíð. Farin er nokkurs konar yfirferð yfir tónUstarlega þróun og sögu flokksms. Svo virðist sem ágætlega hafi tekist að velja lögin og raða niður á plöturnar, að mmnsta kosti era þær allar saman komnar þarna, fegurstu baUöðurnar, grimmasta rokkiö og þyngstu dúndrm frá ferli Sabbath. TU þess að gera er platan eiguleg fyrir þá sem vUja kynn- ast því besta sem strákarnir hafa gert í tónUstmni. Sem tónleikaplata er Live Evil í meðaUagi. Vissulega er krafturinn og keyrslan fyrir hendi sem svo mjög hefur emkennt tónlist grúppunnar. Og þéttleikinn, fyUingin mUU trommu, gít- ars og bassaleiks er líka á sínum stað. Þá er söngurinn hjá Dio óaðfmnan- legur og kemst hann vel tU skUa, hverf- ur hvorki né yfirgnæfir, heldur líður hann áfram, þægilega eggjandi miUi hljóðfæraleiksins. En það sem vantar í þessa tónleikaplötu eru impróvíseríng- arnar og leikurinn að melódíum. Það er örlítið gert af slíku, en hvergi nógu mikið svo manni finnist sem virkilega sönn konsertskífa sé undir nálinni. Þá er það ókostur aö samleikur þeirra Tommi og Butler við aðstoðarhljóð- færaleikara Hljómleikanna er ekki nýttur sem skyldi. Með honum hefði mátt skapa fleiri blæbrigði og krydda gömlu lögin meira lífi. Þetta er þannig þokkaleg tónleika- plata. Gömlu Sabbathlögin komast sæmilega til skila, en heldur ekkert umfram það. -SER. ELECTROLUX WH 810 Tekur inn á sig heitt og kait vatn. Vinduhraöi 800 sn/mín. Hefur öll viöurkennd þvotta- kerfi. Sérstakur „sparnaóar- rofi“. Tekur 5 kg. af þvotti. ■m m o0 5K Electrokix WH 810 ÞV0TTAVEL Vörumarkaðurini hf. ARMULA 1a S: 86117

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.