Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1983, Blaðsíða 32
40
DV. MÁNUDAGUR18. APRÍL1983.
Um helgina
Um helgina
Kosningaskjálfti og
inflúensa herja á landsmenn
Kosningaskjálfti er farinn aö
færast í landsmenn. Er varla á bæt-
andi flensuna sem nú herjar á land-
ann. Ekki vil ég giska á hvort
flensan eöa kosningaskjálftinn
leggi fleiri í rúmiö. En sem betur fer
er við því aö búast að hvorutveggja
veröi gengið yfir eftir um þaö bil
hálfanmánuð.
Sjónvarpiö hefur alltaf staðið sig
vel er kosningar hafa staöið yfir og
má sem dæmi nefna kosninga-
sjónvarpiö sem geysilega spennandi
er aö horfa á. Nú hefur komiö fram
nýbreytni, eða framboöskynningar
úr kjördæmunum. Nauðsynlegir
þættir svo íbúar hvers kjördæmis
geti borið saman frambjóðenduma,
hvem á sínum staö. Þó er nú ekki
alltaf aö marka hvað þessir ágætu
menn lofa. Einnig finnst mér aö hver
maöur hafi of stuttan tíma til
kynninga á sínum málum. Nefni ég
sem dæmi er frambjóðendur segja
„Okkarflokkifinnstaömeiri áherslu
eigi aö leggja á skólamálin,
sjávarútvegsmálin og efnahags-
málin.” Þá er nú ekki mikið eftir.
Ekki nægur tími til aö tíunda hvernig
eigi aö standa aö þessum málum.
Kosningasjónvarp hefur haft
áhrif á aöra dagskrárliöi, fært þá til,
en sem betur fer mun þaö ekki
standa yfir í langan tíma. Mikil ærsl
vom í dagskrá sjónvarpsins á laug-
ardagskvöldið. Fyrst breski gaman-
myndaþátturinn Þriggjamannavist
og svo kvikmyndin Lík í óskilum.
Furöulega samansett mynd. Vanda-
málum hrúgaö upp en allt skilið eftir
í ólestri. Minnir á íslensku ríkis-
stjórnimar sem hafa setið viö völd
undanfarin ár.
Dagskrá sjónvarpsins var ólíkt
rólegri á sunnudagskvöldiö.
Vissulega var Elías í Stundinni
okkar rólegur er hann bakaöi þessa
líka indælu köku fyrir móöur sína
fárveika. Góöur drengur Elías.
Vekur mikla lukku. Menningar-
þáttur Gluggar var með albesta
móti. Akaflega þægilegur þáttur og
fjölbreyttur hjá Sveinbirni I. Bald-
vinssyni. Ættaróöaliö er einnig ákaf-
lega þægilegur þáttur en ekki aö
sama skapi fjölbreyttur. Fátt
markvert sem gerist hjá þeim
Oxfordarháskólamönnum nema
fyllirí og aftur fyllirí. Sjónvarps-
helginni lauk meö þætti um land-
flótta tónlistarmanninn Rostropovits
sem kom hingað til lands á listahátíð
fyrir nokkmm ámm. Bráöhress
náungi.
Ekki er mikill tími til aö hlusta á
útvarp á meðan veriö er að horfa á
sjónvarp. Þess meiri athygli beinist
aö útvarpsmiölinum þegar slökkt er
á sjónvarpinu. Til dæmis hlusta ég
alltaf á fréttir og spumingaþáttinn á
sunnudagskvöldum. Svo reyni ég aö
hlusta á beinar lýsingar úr handbolt-
anum og fótboltanum þegar svo
stendur á. Annars var þessi helgi
mér minnisstæöust fyrir þaö aö
Manchester United komst áfram í
úrslitaleik í ensku bikarkeppninni.
En úrslitaleikurinn veröur háöur á
Wembley 21. maí næstkomandi.
Sennilega verður leikurinn sýndur
hér beint eins og í fyrra þannig aö til
einhvers er aö hlakka.
Eiríkur Jónsson.
Andlát
Pétur Geirdal rafvirki lést 11. apríl
1983. Hann fæddist á Isafiröi 16. ágúst
1916. Foreldrar hans voru hjónin
Vilhelmína Pétursdóttir og Guömund-
ur Eyjólfsson Geirdal. Pétur lauk prófi
í rafvirkjun frá Iðnskólanum. Aö raf-
virkjun vann hann alla tíö síöan. Utför
hans var gerö frá Fossvogskapellu í
morgun kl. 10.30.
Samúel Jónsson lést 11. apríl 1983.
Hann fæddist 7. janúar 1910 á Langeyri
viö Álftafjörö, sonur hjónanna Danielu
Samúelsdóttur og Jóns Bjamasonar.
Ungur að árum fluttist hann til Isa-
fjaröar og ólst þar upp. Árið 1925 hóf
Samúel störf viö smjörlíkisgerð Isa-
fjaröar og áriö 1958 yfirtók hann rekst-
ur smjörlíkisgeröarinnar sem aðaleig-
andi en fyrirtækiö seldi hann áriö 1975,
eftir 50 ára starf þar.
Skeljungsbúðin w
SíÖumúla33
símar81722 og 38125
Eftirlifandi eiginkona hans er Ragn-
hildur Helgadóttir. Þau eignuöust 5
böm. Samúel var formaöur leikfélags
Isafjaröar í 12 ár og sat í stjórn
Iðnaðarmannafélagsins þar. Hann var
einn af stofnendum Isafjaröardeildar
Oddfellowreglunnar og gegndi þar _
ýmsum embættum. Hann sat um skeiö
sem fulltrúi Sjálfstæöisflokksins í
bæjarstjórn ísafjarðar. Útför hans
veröur gerö frá Dómkirkjunni í dag kl.
15.
Olafía K. Jónsdóttir frá Langholti,
Vestmannaeyjum, veröur jarösungin
frá Fossvogskirkju mánudaginn 18.
apríl kl. 15.
Einar Jóhannsson, Jökulgmnni 3
Reykjavík, andaöist föstudaginn 15.
aprílaöHrafnistu.
Aöalsteinn Jóhannsson, Samtúni 16
Reykjavík, veröur jarösunginn frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 19. april
nk. kl. 15.
Óskar Halldórsson, fyrrv. dósent,
veröur jarösunginn frá Fossvogs-
kapellu miðvikudaginn 20. apríl kl.
13.30.
Anna Einarsdóttir, Vesturbergi 109,
áöur til heimilis aö Ránargötu 4,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni
þriöjudaginn 19. apríl kl. 13.30.
Jóhannes Sæmundsson, íþróttakennari
viö Menntaskólann í Reykjavík,
veröur jarösunginn frá Landakots-
kirkju þriöjudaginn 19. apríl kl. 13.30.
Einar Jóhannsson, Jökulgmnni 2
Reykjavík, andaöist föstudaginn 15.
aprílaöHrafnistu.
Geir Benedikt Benediktsson, Hvamms-
geröi 6, lést í Borgarspítalanum
miövikudaginn 13. apríl.
Sveinn Ellertsson, fyrrverandi
mjólkurbússtjóri, lést í Héraðshælinu,
Blönduósi, þann 14. apríl.
Guömundur Gislason umboössali,
Noröurbrún 1, veröur jarösunginn frá
Fossvogskirkju mánudaginn 18. apríl
kl. 13.30.
Haraldur Adolfsson varö bráökvaddur
aö heimili sínu, Kirkjubraut 15 Akra-
nesi,þann 14.april.
Ólöf Bjarnadóttir lést í Borgarsjúkra-
húsinuþann 15. apríl.
Loftur Jóhann Jónsson frá Lækjar-
botnum, Víöimel 49, lést 9. þ.m. Útför
hans fer fram frá Skaröskirkju í Land-
sveit þriöjudaginn 19. þ.m. kl. 14.30.
Tilkynningar
Hús & híbýli
Sumarbústaöir eru teknir til umfjöllunar í
nýjasta tölublaði tímaritsins Hús & híbýli.
Sagt er í máli og myndum frá heimsókn í fall-
egan bústaö viö Meðalfellsvatn en þann bú-
staö byggöi eigandinn sjálfur eigin hendi.
Einnig er sagt frá þeim möguleikum sem fólk
hefur á að láta smíöa sumarbústaði fyrir sig
og litið er á kostnaðarhliðarnar.
Þá er í blaðinu rætt við Kristin Ragnarsson,
formann samtakanna Lif og land. Kynnir
hann hugmyndir sínar að framtíðarskipulagi
höfuðborgarinnar. „Ný ævintýraborg sam-
ræmis og fjölbreyttra tækifæra”, er yfirskrift
viðtalsins,
Af öðru efni má nefna myndskreytta grein
um hjón sem stækkuðu hús sitt „niður í jörð-
ina”, sagt frá íbúðarmesta og dýrasta dúkku-
húsi veraldar, fjaliað um það tækniundur sem
laserspilarinn er, einnig ótrúlegar tilraunir
með vélmenni sem eiga að geta innt ýmis
heimilisstörf af hendi.
Auk þess er í blaðinu fjaUað um blómarækt,
matjurtarækt í gluggaborum og skúmaskot-
um, garðhönnun, prjónauppskrift er í blaðinu,
grein um eldvarnir í heimahúsum og loks
grein um þann snjaUa möguleika aö nota af-
rennslisvatn frá húsum til að bræða snjó af
heimkeyrslunni.
Ritstjóri H&H er Þórarinn Jón Magnússon
og útgefandi SAM hf. Blaðið kemur út sex
sinnum á ári og er ofangreint blaö þriðja tölu-
blað þessa árs.
Háskólafyrirlestur
Þriðjudaginn 19. april fytur dr. Vilhjálmur
Egiisson fyrirlestur í boði viðskiptadeildar
Háskóla Isiands og Félags viðskiptafræðinga
og hagfræðinga.
Fyrirlesturinn fjaUar um áhrif af stóriðju á
jafnvægi atvinnulífsins í Utlu bæjarfélagi. Dr.
Vilhjálmur greinir frá einföldum líkönum af
heildarjafnvægi (e. general equilibrium) og
gerö sUkra líkana af hagkerfi borga og bæja
og heilla þjóðfélaga. Hann skýrir jafnframt
frá niðurstöðum úr líkani sem hann hefur gert
af áhrifum stóriðju á hagkerfið við Reyðar-
fjörð.
ViUijáhnur Egilsson lauk kandidatsprófi
frá viðskiptadeUd Háskóla lslands árið 1977
og doktorsprófi í hagfræði árið 1982 frá Há-
skólanum i Suður-KaUforníu. Hann er nú hag-
fræðingur hjá Vinnuveitendasambandi Is-
lands.
Fyrirlesturúin verður haldrnn í stofu 101 í
Lögbergi og hefst kl. 17.15. öllum er heimill
aðgangur.
Líf og iand
Aðalfundur Lifs og lands verður haldinn aö
Lögbergi, húsi lagadeildar Háskóla Islands,
þriðjudaginn 19.04. 1983, kl. 20.30, í herbergi
101.
Dagskrá fundarúis verður:
1) Skýrsla stjórnar
2) Reikningarfélagsins
3) Lagabreytingar
4) Kosnúig nýrrar stjórnar
5) önnur mál
Stjórnin.
Fræðslufundur
um garðrækt
Mennúigarmiðstöðúi við Gerðuberg og Skóg-
ræktarfélag Reykjavikur halda tvo fræðslu-
fundi um garðrækt nk. mánudagskvöld í
menningarmiðstöðúini við Gerðuberg.
Mánudaginn 18. april verður rætt um kúpp--
ingu trjáa og svalagróður.
Mánudagmn 25. apríl verður svo rætt um
skipulagningu garða og val á trjáplöntum.
Vilhjálmur Sigtryggsson, framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, flytur
erúidi og svarar spurnúigum báða dagana og
sýndar verða litskyggnur.
Allir áhugamenn um garðrækt eru hvattir
til að koma.
Aðgangur ókeypis og hefjast fundirnir ki.
20.30.
Norræna húsið
Fyrirlestrar um andspyrnuna í Noregi á her-
námsárunum 1940—45.
Helga Stene, fyrrv. lektor við Oslóarhá-
skóla, heldur fyrirlestra í Norræna húsinu
mánudaginn og þriðjudaginn 18. og 19. april
og verða þeir fluttur kl. 20.30 bæði kvöldin.
Þessir fyrirlestrar eru bæði beint og óbeint
tengdir sýningu þeirri sem nú stendur í and-
dyri Norræna hússins og fjallar um leyniblöð-
in í Noregi á hernámsárum Þjóðverja og and-
spyrnuhreyfinguna.
Fyrri fyrirlesturinn nefnir Helga Stene:
„En ny sagatid í Norge 1940—45” þar sem hún
f jallar um það hvernig ýmis boð og upplýsing-
ar voru flutt munnlega. í siðari fyrirlestrúi-
um ræðir hún um þátt norskra kvenna í húini
pólitísku andspymu á þessum árum og nefnir
þann fyrirlestur: „Kvinners innsats í norsk
politisk motstánd 1940—45.
Helga Stene heldur einnig fyrirlestur
miðvikudaginn 20. april á vegum Friðarhóps
kveruia. Nefnist harin „Fra Abraham til Alva
Myrdal” og tekur þetta viðfangsefni til um
4000 ára tímabils þar sem starf að friði, af-
vopnun og mannréttindum er rauði
þráðurinn.
Helga Stene hefur lagt gjörva hönd á margt.
Hún er málfræðingur að menntun, lauk prófi í
uppeldisfræði og cand. philol-prófi frá Oslóar-
háskóla 1934, nam síðan viö Montpellier- og
Sorbonneháskóla sem og í Lundúnum. Hún
var dósent í norsku við Berlínarháskóla 1933,
iektor við ýmsa sænska háskóla um skeið,
rektor við menntaskóla í Osló 1937—1966 og
hefur síöan starfað við uppeldisfræðistofnun
Oslóarháskóla. Helga Stene vann í þjónustu
norsku útiagastjórnarinnar í London 1944—45.
Hún er í stjóm Den illegale presses forenúig,
en það félag er einn þeirra aðila sem standa
að sýnúigunni í anddyri Norræna hússins.
Helga Stene hefur gegnt ýmsum trúnaðar-
störfum í þágu skóla- og menntamála og hún
hefur mikið unnið að jafnréttis- og friðarmál-
um. Hún hefur hiotið margvíslega viðurkenn-
ingufyrirstörfsúi.
Sumarfagnaður
Húnvetningafélagsins
verður haldúin í Domus Medica 20. apríl
(síðasta vetrardag) kl. 20.30.
Húnvetnúigafélagið
Dregið í ferðahapp-
drætti Hvanneyringa
Nú í vor er ætlunin aö brautskráðir
búfræðingar frá Bændaskólanum á
Hvanneyri. fari í náms- og skemmtiferð til
Noregs og Svíþjóðar. Hin síðustu ár hefur
þetta verið árlegur viðburður og hefur þá
ýmist verið farið til Noregs, Færeyja eða
Skotlands. Þetta árið urðu Noregur og
Svíþjóð fyrir valinu. Flogið verður út með
flugvél Samvúinuferða þann 22. júní og lent í
Þrándheimi, þar verður rúta tekin á leigu og
ferðast um Noreg og Svíþjóð. Helsti skipu-
leggjandi ferðarinnar er Trausti Eyjólfsson
kennari og mun hann einnig verða fararstjóri.
Ýmsar leiðir hafa verið farnar til að fjár-
magna ferð þessa og má þar nefna verslunar-
rekstur og sölu happdrættismiða. Sl. laugar-
dag, 9. apríl, var dregið í happdrættinu og
komu eftirtalin númer upp:: 1.—1239,2.—918,
3.-1387, 4.-219,5.-818, 6.-1142,7.-274,8,-
1148,9.-1460,10.-1532.
Nemendur annars bekkjar á Hvanneyri
þakka öllum þeún er styrktu þá í happdrætti
þessu.
Grár högni í
óskilum í
Mosfellssveit
sást fyrst á vörubilspaili um páskana, gæti
veriö komúin langt aö. Hafiö samband í súna
67254.
Málfreyjudeildin
Björkin
Næsti fundur veröur haldúin þriðjudagmn 19.
april (ath. breyttan fundardag) og hefst kl.
20.30 aö Hótel Heklu. Gestir velkomnir.
80 ára veröur á morgun, 19. apríl,
Sigríður Guöjónsdóttir frá Bæ í Króks-
flröi, nú W heúnilis aö Háaleitisbraut
103. Hún tekur á móti gestum á heimili
sonar síns og tengdadóttur aö Fornu-
strönd 1, Seltjarnarnesi frá kl. 16 á af-
mælisdaginn.
Sprengju-
tilræðið
óupplýst
Sprengjutilræðiö við sendiráð
Bandaríkjanna aðfaranótt föstudags
er enn óupplýst, samkvæmt upplýsing-
um Rannsóknarlögreglu ríkisins í
morgun.
Aö sögn Þóris Oddssonar, vararann-
sóknarlögreglustjóra ríkisins, kom
ekkert nýtt fram í málinu um helgina
en unnið hefur veriö aö rannsókn þess.
I sprengingunni brotnuðu tveir
gluggar og útiljós auk þess sem úti-
dyrahurð laskaöist. -JGH
Kvennalistinn í Reykjavíh er til húsa að Hverfisgötu 50,
3. hæð, símar 13725,24430og 17730. Opið alla daga
frú 9—19. Girónúmer 25090-0. Valið er X-V