Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Blaðsíða 10
10
DV. LAUGARDAGUR 23. APRlL 1983.
„Þarna er ég 4ra ára. Þú sérð að á húfunni stendur Gullfoss. ,,Þetta er ég með ftiður mínum, Sigurði Péturssyni, og afa, „Foreidrar minir, Sigurður og Ingibjörg Óiafsdóttir. Myndin er
Þetta voru borðar, sem menn settu á húfur í tilefni af skips- Pétri Sigurðssyni. Myndin er tekin 1918, skömmu áður en afi tekin 1906 eða 7 og er ein fyrsta myndin, sem tekin var af
komunum. En þarna var Gullfoss að koma til landsins árið dó. Ég er 7 ára gamall." þeim saman. Þau giftu sig árið 1904."
1915 og var myndin tekin við það tækifæri, enda pabbi
skipstjóri um borð."
„Þetta er tekið dagínn sem ég varð stúdent, árið 1931. Það er „Þarna er ég um borð í Gullfossi með pabba. Ég var háseti „Ég um borð I Fyllu. Líklega er ég undiroffiseri þegar þessi
Ólafur bróðir minn sem með mér er á myndinni. Hann var þegar þetta var." mynd er tekin árið 1933."
tveimur bekkjum á eftir mér í skólanum."
1:
Pétur með klippumar frægu. „Þeir gáfu mér
þetta, félagar minir hjá Gæslunni, þegar óg
lót af störfum '81." Á hillunni má sjá tikan af
TF-Rón, þyrlu Gæslunnar.
Cr fjölskyldualbiímiiiu:
S vi pm vnd ir úr
lífi Péturs
Sfgurðssonar
Pétur Sigurðsson er landsmönnum að góðu kunn-
ur. Um tæpra 30 ára skeið var hann forstjóri Land-
helgisgæslunnar og á þeim tíma stýrði hann ís-
lendingum í hverri landhelgisdeilunni á fætur
annarrioghverjuþorskastríðinuáfæturöðru...
Hann er fæddur árið 1911 og varð stúdent frá
Reykjavíkurskóla ’3L Ungur fór hann að starfa hjá
Gæslunni, reyndar strax í skóla, og ungur gerðist
hann háseti á Gullfossi. Er stúdentsprófi lauk fór
bann í danska flotann og er náminu þar Iauk ’37,
starfaði hann við sjómælingar hér við land. Enn var
hann í tengslum við Gæsluna því að sjómæling-
arnar voru framkvæmdar um borð í varðskipunum.
Það var svo ’52 að hann var gerður að forstjóra
Landhelgisgæslunnar og þar var hann til ’81 er hann
lét af störfum fyrir aldurs sakir.
Ekki situr hann auðum höndum þótt sestur sé í
heigan stein. „Ég hef nóg að gera,” segir hann
aðspurður. „Auk þess sem ég hjálpa konunnl við
heimilisstörfin er ég aö ganga frá ýmsum skýrslum
sem ekki vannst tími til meðan ég var í starfi. Þá er
ég ásamt öðrum að koma upp safni af líkönum af
íslensku varðskipunum en þau eru öll til eftir Sigurð
Jónsson módelsmið í hlutföllunum einn á móti
hundrað. Já, og svo les ég auðvitað blöðin.”
Við hcimsóttum Pétur á dögunum og fengum að
líta með honum í f jölskyldualbúmin.
-KÞ.
Já, þessi mynd. . . heyrðu, hún er tekin
. . " Pétur Sigurðsson gluggar í albúmin.
(DV-mynd Loftur Ásgeirsson)