Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Side 16
16 DV. LAUGARDAGUR 23. APRlL 1983. Bækuroii brikaisöfnun XX Ljóst er, aö prentun aö Leirár- görðum hefur staöiö meö mestum blóma á fyrstu árum starfseminnar þar, en upp úr aldamótum hefur tekið aö dofna yfir henni, þar til hún aö lokum lagðist niöur meö öllu um tíma. Eru ekki tök á í þessu stutta yfirliti aö gera viöhiítandi grein fyrir hinum ýmsu þáttum, sem hér höföu samverkandi áhrif, þótt þeir væru af mismunandi toga spunnir, jafnvel tengdir erlendum og innlendum stórviöburöum. Magnús Stephensen störfum hlaðinn Má í upphafi telja líklegt, aö aukin umsvif Magnúsar Stephensen aö embættis- og landsmálum hafi smám saman gert aðstööu hans erfiöari viö aö sinna bókaútgáfustörfum í sama mæli og áöur. Var hann sem fyrr getur skipaöur dómstjóri viö lands- yfirréttinn viö stofnun hans í júlí 1800, en í tilskipun þeirri, er setti réttinum reglur, var svo ákveðiö, að hann skyldi haldinn einu sinni í viku mánuöina maí-október, en einu sinni í hálfum mánuöi hinn hluta ársins, nema nauðsyn bæri til aö halda hann einnig þá vikulega. 1 reynd var f ram- kvæmd þessara mála þó á annan veg þar sem rétturinn kom mun sjaldnar saman, enda heföi M. St. þá verið búseta aö Leirá ógerleg. Hinsvegar fluttist hann nokkru síðar, 1803, aö Innra-Hólmi og því nokkru nær Reykjavík, en um leiö fjær Leirár- göröum. Hefur þaö því einnig gert honum erfiðara um vik viö umsjón meö starfsemi prentsmiðjunnar. Hún var reyndar í góöum höndum hjá Guömundi Jónssyni Schagfjörö prentara, en ólíklegt er, aö M. St. hafi taliö þaö nægja, svo mjög sem hann lét þessi mál til sín taka. Fór líka svo aö lokum, er hann hafi stofnaö heimili hiö þriöja sinni í Viðey, aö þangaö flutti hann einnig prentsmiöjuna. Guðmundur Schagfjörð prentari Um fyrrnefndan Guðmund Schag- fjörö er skylt aö geta, aö hann hafði, er hér var komið sögu, starfaö nær látlaust viö prentun í 30 ár. Kom hann aö Hólum áriö 1772, þá 14 vetra, og hóf störf við prentsmiöjuna sem aðstoöardrengur, en síðar sveinn og aöalprentari fram til ársins 1782, er starfsemin lagöist þar niður um hríö. Þá lá leiöin til Hrappseyjar í stuttan tíma, en þaöan til Kaupmanna- hafnar, einnig til prentstarfa. I Kh. kynntist Guðmundur Magnúsi Stephensen, er þar var viö nám, og réöst í framhaldi af því sem skrifari hjá fööur hans Olafi Stephensen, stiftamtmanni, í Viðey. Viö stofnun Leirárgaröaprentsmiðju 1795 gerðist hann þar yfirprentari og síðan áfram látlaust fram til ársins 1830 í Viðey, en þar mun hann hafa starfað enn fram til ársins 1832, er 60 ár voru liöin frá því hann fyrst hóf nám í iön sinni. Hlýtur GuðmundarSchagfjörð ávallt aö veröa minnst sem eins hinna merkustu frumherja íslenzkrar prentlistar. Syrtir í álinn Áöur hefur komiö fram, aö dregið hafi mjög úr starfsemi Leirárgarða- prentsmiðju fljótlega eftir aö nítjánda öldin gekk í garö, og hafi breytt aöstaöa Magnúsar Stephen- sen átt þar nokkurn hlut aö máli. Verður þaö ekki dregið í efa. Hinsvegar er lítill vafi á, aö ástæðn- anna er að mestu lengra að leita. Meö byltingunni miklu í Frakklandi, sem oft er talin hafa átt upptök sín í París h. 14. júlí 1789, hófst mikiö óróa- og upplausnartímabil þar í landi, sem leiddi til verulegra þjóöfélags- legra breytinga. Höfðu átök þessi áhrif víða um lönd, en þó fyrst og fremst í Evrópu þar sem lengi haföi verið grunnt á því góða milli stærri og smærri ríkja eða héraða, en inn á viö milli stétta og ýmissa hagsmuna- hópa. Brátt tók líka aö draga til enn meiri tíðinda, og má segja, aö meö stríösyfirlýsingu Frakka á hendur Austurríki í apríl 1792 hæfist sá ófriður í Evrópu, sem stóö með stuttum hléum í rúma tvo áratugi og lauk ekki fyrr en á vígvöllunum við Waterloo og ósigri Napóleons þar áriö 1815. $ íaufíut'' ^ófíutímt* Sutftí Sítgóugjn; ft;cic á.ci& 1818. iTofu&ui og ótfenöuo fif a ð tt ú f i <5 t c v í) e n f e n , futíúngícgvav ^áíignrtt’ (Confetencccá&t og Dúfh’' tíavtQ í DsíanOð Foiiúagícga áLcjn&eyftt; vctíi, og íTíeöíimí ýmtjtva Fottúnflí. S, ee v t> q m & ^eittfíeöum/ i 8 i 8. $y?nírti>ui’ af SaFíóví og iBóffvýcFirtU (&* Q c í; <x g f j qx Titilsíða af fyrsta árgangi Klaustur-póstsins, Beitistöðum 1818. Valdarán Jörundar Áöur en lengra er haldiö fer vel á aö geta eins eftirminnilegasta atburöar í sögu landsins á síöari öld- um, komu Jörgens Jörgensens eða Jörundur Hundadagakóngs, sem hann hefur venjulega verið nefndur af Islendingum. Veröur sú saga ekki sögö hér, en aöeins rifjaö upp, aö h. 25. júní 1809 gengu menn á land í Reykjavík af brezku freigátunni „Margaret and Ann” undir forustu skipstjórans John Liston og Danans Jörgensens. Handtóku þeir æðsta yfirmann landsins, stiftamtmanninn Trampe greifa, og fluttu um borð í skip sitt. Hófst nú valdatími J.J., sem nefndur var hæstráðandi Islands er stóö í tvo mánuöi eða þar til á hann var bundinn endi af skip- herra annars brezks herskips, „The Talbot”. Á þessu tímabili gaf Jörgensen út fjölmörg fyrirmæli varöandi stjóm landsins og aðrar ráöstafanir, en veigamestu auglýsingamar, dags. 26. júní og 11. júlí vom prentaöar í Leirárgörðum. Eru þær báöar tilgreindar í „Fiske- skrá” I, Ithaca, N.Y. 1914, bls 310, en auk þess er hin fyrri sýnd í heild og sú síðari aö hluta í „Öldin sem leið” — Minnisverö tíöindi 1801—1860, Rvík 1955, bls. 35—36. Um þessa atburði eru til miklar heimildir og eru nokkrar þeirra skráöar í lok þessarar greinar. Prenthúsið á faiianda fæti Áöur hefur verið getiö helztu ástæöna fyrir samdrætti í starfsemi Leirárgaröaprentsmiðju, einkum vegna vöntunar á ýmsum nauðsynjum til hennar. Fleira kom og til s.s. aö prenthúsiö var orðið mjög lélegt um þessar mundir og raunar aö lokum talið ónothæft. Er líklegt, að smiðshöggið hafi veriö rekiö, er áin Leirá flæddi yfir bakka í leysingum, stórskemmdi húsiö og eyöilagði pappír og bækur. Var því framhald prentunar af þeim sökum einum útilokaö aö óbreyttum aðstæðum. Magnús Stephensen haföi flutt búferlum frá Innra-Hólmi til Viðeyjar áriö 1806, eöa um sama leyti og faöir hans Olafur Stephensen lét af embætti fyrir aldurs sakir, þá fullra 75 ára. Mun M. St. hafa haft áhuga á aö flytja prentsmiðjuna Böðvar Kvaran skrlf ar um bækur og bökasöfnun áfangastaö, a.m.k. að nafni til, fram á mitt ár 1819, en í júlí þaö ár var prentsmiöjan flutttil Viðeyjar. Traustar heimildir Um bækur og ritlinga frá Beitistöðum er hægara aö ræöa en Leir árgaröaprentiö, því aö þar er viö aö styðjast grein Olafs Pálmasonar, cand. mag., bókavarðar viö Landsbókasafn, er nefnist Beitistaðaprent, og birtist í Helga- kveri, Afmæliskveöju til Helga Tryggvasonar bókbindara á áttræðisafmæli hans 1. marz 1976, Rvík 1976, (bls. 71-77). Var hún auk þess sérprentuð í 16 eintökum, Kópa- vogi 1976. Hér er sem vænta mátti um mjög ítarlega og vandaða skrá aö ræöa, en jafnframt óvenjulega aö því leyti, aö getiö er f jölda prentaðra eintaka af hverju riti. Reyndist það mögulegt þar sem þessar upplýsingar er aö finna í reikningum prentsmiöjunnar, sem varðveitzt hafa, og geymdir eru í Þjóðskjala- safni. Hinsvegar verður tæpast sagt, aö hin prentuðu rit hafi verið að sama skapi eftirtektarverö, ef undan eru skilin örfá, sem nefnd verða hér á eftir og í næstu grein. Alls eru skráö 26 rit eða titlar, aö langmestu leyti smáprent, þ.á m. 9 líkræður, æviminningar og grafskriftir og önnur 9 margvíslegs efnis. Þekkt- asta ritið var hinsvegar Klaustur- pósturinn, sem hóf útkomu að PREVITMIM ÁtVÖK AB VERJAST Dönum settir úrsiitakostir Veigamikill þáttur í stríðsátökun- um var sú viöleitni Frakka aö koma í veg fyrir alla verzlun Evrópuþjóða við höfuðóvinina Englendinga. Skipti þar afstaöa Dana verulegu máli, en: auk þess aö ráöa yfir miklum skipa- flota var lega Danmerkur og skatt- lands hennar Noregs, hernaðarlega mikilvæg sem næstu nágrannar Eng-, lendinga í austri. Ottuöust hinir síö- ast nefndu, aö Frakkar heföu í hyggju að ná danska flotanum á sitt vald og buöu Dönum bandalag og aö afhenda sér skipin, meöan styrjöldin geisaöi. Þessumafarkostumhöfnuöu Danir, en hlutu aö launum árás og umsátur um Kaupmannahöfn í september 1807, sem lauk með upp- gjöf eftir f imm daga. Héidu Englend- ingar á braut meö danska flotann, en Danir slitu viö þá friönum og gerðust stuðningsmenn Frakka. Einangrun landsins Þessir atburöir urðu örlagaríkir Islendingum þar sem heita má, aö allar samgöngur viö landið hafi rofnað. Varð því lítið um nauðsynleg- ustu aödrætti hvaö þá annaö, sem frekar mátti án vera undir þessum kringumstæöum s.s. pappír og önnur prentföng. Er mér t.d. ekki kunnugt um, aö annaö hafi veriö prentaö í Leirárgörðum á árinu 1808 en síðasti hluti Minnisveröra tíðinda, Hl.bindis, 2. deildar. Eftir það kom sáralítiö út fram til ársins 1812 og eingöngu smárit, ef undan er skiliö hiö síðasta, „Hentug handbók fyrir hvöm mann” eftir Magnús Stephensen um ýmis lögfræöileg efni. Varö þá hlé á prentun um tíma, þar sem ekkert var prentaö hér á landi á árunum 1813—1815, fyrst og fremst af fyrrgreindum erfiðleikum viö útvegun pappírs. þangaö frá Leirárgörðum, þegar út- lit tók aö batna í þessum málum í ófriöarlok, en þaö var þá talið Landsuppfræöingarfélaginu ofviða vegna erfiörar fjárhagsstöðu. Hafði félagið oröiö fyrir miklu tjóni árið 1813 viö gífurlegt gengisfall, er stafaöi af stööugt aukinni skulda- söfnun danska ríkisins og takmarkalítilli seðlaútgáfu í samræmi viö það. Var því sú ákvöröun tekin að flytja prentsmiöjuna frá Leirárgörðum aö Beitistööum, í næsta nágrenni, og byggja yfir hana þar. Aö sjálfsögöu var ástæöan einnig sú, aö prentarinn, fyrmefndur Guömundur Schagfjörö, bjó á Beitistööum, en þá jörö hafði hann keypt árið 1805 og því sótt prentstörfin þaðan eftir því sem tilefni gáfust til. Var byggingu hins nýja prenthúss lokiö á árinu 1815, en fyrst prentað þar áriö eftir, 1816. Hélst starfsemin á þessum Beitistööum áriö 1818 og þar prentaður 1. árgangur og fyrri hluti 2. árg. (1.-6. tbl., bls. 1-96). Var framhaldiö síöan prentaö í Viðey og m.a. sagt, að útgáfa þessa nýja tímarits Magnúsar Stephensen hafi átt djúgan þátt í, að hann flutti prentsmiöjuna þangaö. Heimildir um Jörgen Jörgensen a) Saga Jörundar Hundadagakóngs. Eftir Jón Þorkelsson. Kaupmannahöfn 1892. b) Almanak Hins íslenzka þjóðvinafélags um árið 1893. Kaupmannahöfn 1892, (bls. 52-73) c) Helgi P. Briem. Byltingin 1809. Rvík 1936. d) Journal of a tour in Iceland in the summer of 1809 by William Jackson Hooker. Vol. I.—II. London 1813. (i Vol. n., bls.3-102). e) James Francis Hogan. The convict king. London 1891. f) Sami. En deporteret Konge eller Beretn- ing om Jörgen Jiirgensen. Kjöbenhavn 1892. Böövar Kvaran

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.