Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Side 19
DV. LAUGARDAGUR 23. APRIL1983.
Popp
Popp
Popp
Popp
Popp
Sagan af fátæka
drengnum §em
vard stjarna
Suöur í Karíbahafi á eyjunni
Barbados hefur hinn blakki Eddy
Grant komiö sér fyrir ásamt konu
sinni og fjórum bömum á gömlu
þrælasetri sem um langa hríö haföi
verið í niðumíöslu. Milljón pundum
síðar fer vel um fjölskylduna og
öllum líöur vel. Grant,sem er 35 ára
og fæddur í Bresku Guiana, hefur
veriö kallaöur fyrsta blakka stór-
stjarna Bretlands. Hann fluttist
ásamt foreldrum sínum til Bretlands
árið 1960, ætlaði sér að veröa læknir
en tónlistin náöi yfirhöndinni. Saga
hans er hin dæmigeröa fyrir fátæka,
strákinn sem varö stjarna. Honum
líkaði alla tíö illa viö veöráttuna í
Bretlandi. A vetmm var honum stöö-
ugt kalt og kom þaö niður á músík-
gáfunni. Svo þegar tækifæri gafst
flutti hann suður í lönd.
II.
Arið 1968 sló Eddy Grant fyrst í
gegn meö laginu Baby Come Back en
þá var hann meðlimur í hljómsveit-
inni Equals. Jafningjarnir vöktu
aldrei vemlega athygli en áttu þó
nokkrar dægurflugur og er Viva
Bobby Joe eflaust hin þekktasta
þeirra. Hljómsveitin gaf út nokkrar
plötur semnáöu hylli vel fyrir neðan
meöallag. Gáfur Grants höföu
snemma komið í ljós. Hann byrjaði á
því aö læra á trompet, smíðaði sér
síöan eigin gítar í handavinnu í skól-
anum og endaöi meö því aö læra á öll
hljóöfæri sem hann komst í tæri viö.
Og söngurinn var honum eðlilegur
Áriö 1972 yfirgaf hann Equals og
stefndi á sólóferil, nokkuö sem fáir
aörir en hann s jálfur trúöu á.
III.
Fyrsta skrefið var aö koma upp
eigin stúdíói. Eddy keypti græjur af
gjaldþrota stúdíóeiganda (Dave
Robinson sem nú á Stiff-fyrirtækiö)
og innréttaði fyrsta stúdíó Evrópu
sem var í eigu negra. Og hann geröi
betur. Stofnaöi Ice-útgáfufyrirtækið
sem var hiö fyrsta „svarta” sinnar
tegundar í álfunni. I fyrstu haföi það
aðsetur í Guyana og Afríku 1977 flutti
hann starfsemina til Bretlands.
Fljótlega tókst Grant að afla sér
verulegra vinsælda meöal íbúa
Karabíska hafsins og í Afríku.
Meginland Evrópu fylgdi á eftir. Og
Bretar aö síðustu þegar lagiö Living
On The Front Line komst í efstu sæti
lista sumariö 1979. Á eftir fylgdu
fleiri vinsælar dægurflugur svo sem
Walking On Sunshine og Do You
Really Feel My Love.
IV.
Eddy taldi sig komast aö því
snemma á ferli sínum aö enginn næöi
langt í músíkinni nema aö hafa viö-
skiptanef. „Þessi bransi er fyrst pen-
ingar og síðan tónlist,” er haft eftir
honum. „Útgáfufyrirtækin ráöa pen-
ingunum og þar meö öllu heila gill-
inu. „Hann minnir á orð hetju sinnar
Chunk Berry sem eitt sinn sagöi:
„Ef ég ætti aö endurtaka leikinn
myndi ég fyrst fara í viðskiptafræði
og síöan læra á gítar.”
V.
Eddy Grant hefur aiia tíö verið
ákafur baráttumaöur fyrir réttinda-
málum svertingja. „Ein ástæöa þess
hve mér gekk illa aö komast áfram
var aö ég ei svartur. Stóru karlamir
í Bretlandi trúöu ekki á svarta
stjörnu. Hefði ég verið hvítur hefðu
málin þróast á annan veg.” Hann
bendir á að til aö svertingi komist'
áfram veröi hann aö fóma öllu og
helst að láta gera sig aö viörini.
„Tökum til dæmis Bob Marley. Hann
lét gera sig aö fífli. Hann sökk niður í
dóp og djönk og týndi sjálfum sér.
Ekki þar fyrir aö ég hafi ekki mjög
hrifist af tónlist hans og textum, en
þannig léti ég aldrei fara meö mig.
Ég er fyrst og fremst manneskja,
eins og þú sem lifir af músík. Eg er
ekki fífl,” segir Grant sem vissulega
lifir heilbrigðu lífi eins og sagt er.
Hann drekkur ekki, reykir ekki,
fanatíker á móti kaffi, tei og kjöti.
Grænmetisæta.
Hetjur hans em Muhammed Ali,
Martin Luther King og Diego
Maradonna knattspymustjarna.
Grant tileinkar Maradona eitt lagið á
nýju plötunni sinni, Killer On The
Rampage. Lagið heitir Latin Love
Affair. Sem nærri má geta er Grant
hrifinn af fótbolta en á Barbados er
enginn fótbolti. I staðinn kemur
leikur sem nefndur er „squash” og
er Grant einn af þremur fínustu
iðkendum hans á eynni. Sem sagt:
heilbrigðurnáungi.
VI.
Grant er f jölhæfur tónlistarmaður.
Leikur á öll hljóðfæri sem hann getur
notast viö. „Getur þú ímyndaö þér aö
listamaöur eins og Picasso hafi
teiknað drög aö málverki og fengið
síöan aðra til aö setja litina á
strigann? Nei, þaö væri fáránlegt. Á
sama hátt á sannur tónlistarmaöur
aö fullgera verk sitt upp á sitt
eindæmi. Aörir geta ekki sett sig í
hans spor. Aö öörum kosti verður
verkið ekki eins og höfundurinn haföi
hugsað sér þaö.” Grant er uppsigaö
viö bassann og segir hann óþarfan,
notar í staöinn hljóögervla og
trommur. Lög hans em tilbúin áöur
en hann heldur inn í stúdíóið., ,Ég hef
lagiö og útsetninguna fullbúna í höfð-
inu. Ekkert verður til við upptökur.”
Stúdíóiö hans nýja á Barbados sem
kallast Blue Wave er þegar oröið
eftirsóknarvert meöal tónlistar-
manna. Þessar vikurnar dvelur þar
Marcia Barrett úr Boney M viö
upptökur á sólóplötu. Og stjarna
innfæddra, Mighty Gabby, tók þar
upp plötu sem Grant segir vera
mestu söluplötu allra tíma — miöað
viö fólksfjölda. Þaö hlýtur aö vera
áhugavert fyrir okkur á Fróni. Lagiö
Jack sem er eftir Grant seldist í
25.000 eintökum á eynni en þar búa
tíu sinnum fleiri íbúar.
VII.
I nóvember síöastliðnum kom nýja
albúmiö hans Eddys, Killer On The
Rampage. Á henni eru tvö „hit”-lög,
I Don’t Wanna Dance og Latin Love
Affair. Auk þess em þar mörg önnur
prýðileg lög. Uppáhaldslag Grants
sjálfs heitir War Party sem hann
fullyrðir sjálfur aö sé frábært lag,
hvort sem mönnum líki þaö betur
eða verr. Jú, að vísu ágætislag. Þar
er líka lagiö Electric Avenue sem
fjallar um Brixton hverfiö í Lund-
únum þar sem litir innflytjendur
búa. Annars er tónlist Eddy Grants
mjög blönduð. Þar má finna áhrif
popps, soul, rokks, afríkumúsíkur og
suörænna ballaöa. Allt í einum graut
en útkoman er ári skemmtileg. Eins
og ég minntist á er ég fjallaði um
plötuna hér í blaðinu gerir Grant
mikið til að útsetningamar nái réttu
andrúmslofti. Gefum honum sjálfum
oröiö:
„Til dæmis I Don’t Wanna Dance.
Þaö lætur kannski ekki mikið yfir sér
en útsetningin er mjög flókin. Eg
nota þar fjögur tambórín sem hvert
fylgir sínum ryþmanum. Og þrjú
píanó sem sömuleiöis fylgja ólíkum
linum og helling af trommum. En
allt smellur þetta svo vel saman að
úr verður ein heild. Og sándiö sem ég
var aö leita eftir. Ef einhver annar
heföi komiö nálægt laginu myndi þaö
hljóma allt ööru vísi. Þetta var mitt
lag og ég varö aö flytja þaö. Svo
einfalt er þaö,” segir Eddy Grant
blátt áfram og varar viö því aö þessi
orö séu oflof. „Nei, svo einfalt er
þaö.” Sem sagt: maöur meö ódrep-
andi metnað og sjálfstraust. Hver er
þaðsvosemekki?
TT.