Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Blaðsíða 1
Glistrup
grýttur
— sjá erl. f réttir
bls.8-9
Heymaey
aflahæst
— sjá bls. 5
—x—
l’Hoílandi
— sjábls.3
Liverpool
tapaðifjóróa
leiknumíröð
— sjá íþróttir
bls. 20-21
mmmmaaum
Rokkhviðurí
Sjallanum
— sjá bls. 37
ALMANNAVARNIR
VISSU EKKERT
— þegarflugvéí
með 39 manns
um borð átti
að fara að
nauðlenda
„Þaö urðu mistök í aö koma
boðum, meöal annars til Almanna-
varna ríkisins. Þetta voru annars
vegar mannleg mistök og hins vegar
bilun í tækjabúnaði, sem prófaöur er
daglega,” sagöi Pétur Guömunds-
son, flugvallarstjóri Keflavíkurflug-
vallar.
Þau mistök sem Pétur á viö áttu
sérstaðþriðjudaginnl2. apríl síöast-
liöinn. Fokker-vél Flugleiða, meö 36,
farþega og þriggja manna áhöfn um
borö, haföi hætt viö lendingu á Akur-
eyri og snúið viö til nauðlendingar á
Keflavíkurflugvelli. Viövörunarljós í
stjómklefa gáfu til kynna að nefhjól
færi ekki í læsta stööu niöri.
Mistökin fólust í því að Almanna-
varnir ríkisins og aörir aöilar utan
Keflavíkurflugvallar fengu ekki til-
kynningu um þessa hugsanlegu
nauölendingu. Björgunaraöilar
innan Keflavíkurflugvallar, slökkvi-
liö, sjúkrahús og fleiri, fengu hins
vegar tilkynningu frá flugtuminum
og vora í viöbragösstööu.
Til nauðlendingar kom aldrei.
Viðvömnarljós flugvélarinnar
verkuöu ekki rétt, aö því er talið er
vegna aurbleytu og kraps. Flugvélin
lenti óaðfinnanlega á Keflavíkurflug-
velli. -KMU.
EkiA var i veg fyrir þennan Daihatsu bil á Nýbýlaveginum i Kópavoginum i gærkvöldi
með þeim afleiðingum að hann valt á toppinn. ökumaður Daihatsu bilsins var á leið
vestur Nýbýlaveg áleiðis út á Kársnesbraut þegar atburðurinn gerðist. Eins og sjá má á
myndinni er bíllinn mikið skemmdur en ökumaðurinn slapp ómeiddur. DV-mynd S.
SlasaöurRússi
sóttur á haf út
Þyrla varnarliösins sótti í morgun veikan
rússneskan sjómann um borö í sovéskan
verksmiðjutogara.
Þaö var síöla nætur sem Slysavamafélag-
inu barst tilkynning um aö alvarlega veikur
sjómaöur væri um borö í sovéskum verk-
smiðjutogara, er staddur var röskar 200 sjó-
mílur suövestur af Reykjanesi. Taliö var
nauðsynlegt að maðurinn kæmist í aðgerö.
Haft var samband viö björgunarþyrlu á Kefla-
víkurflugvelli og hélt hún af stað um sjöleytið í
morgun eftir aö sjúkdómsgreining fékkst hjá
lækni um borö í togaranum. Meö í förinni var
einnig Herkúlesvél.
Þegar á staðinn var komið varö tmflun í
öörum mótor þyrlunnar svo hún sneri viö.
önnur var þá strax búin til fararinnar og hélt
hún af staö á tíunda tímanum í morgun. Var
hún væntanleg umhálftólfleytið.
Sjómaöurinn rússneski mun hafa hlotiö al-
varlegan höfuöáverka um borö í togaranum.
-pa
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálf-
stœðisflokksins, heldur áfram
stjórnarmyndunarviðrœðum í dag.
Enn hefur enginn möguleiki verið
útilokaður eða eins og þessi mynd
gœti sagt, er enn horft til allra
átta.
DV-mynd GVA.
Sjá nánar í frétt á baksíðu.
Tryllitæki
í dægradvöl
—sjá bls. 35-36
v