Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Blaðsíða 10
10
DV. ÞRIÐJUDAGUR 3. MAl 1983.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Frá friðarráðstefnu kirknanna í Uppsölum:
Friðurinn er ekki
auðunnið markmið
— „Kirkjan gegnir einstæðu hlutverki í af vopnunarmálum,” sagði Jan
Martensson, aðstoðarf ramkvæmdast jóri Sameinuðu þ jóðanna
„Friöurinn er ekki auðunnið mark-
miö. En bara sú staðreynd að þessi
ráðstefna hefur komið saman er
skref í rétta átt,” sagði enski kvek-
arinn John Duncan Wood á hinni al-
þjóölegu friðarráöstefnu kirkjunnar
í Uppsölum í siðustu viku.
Allstókuum600mannsþátt íráð-
stefnunni sem haldin var undir yfir-
skriftinni Líf og friður. Lútherskir
menn voru vissulega fjölmennastir
á ráðstefnunni en annars voru
mættir til leiks fulltrúar allra
kirkjudeilda.
Hiroshima
Meðal þeirra sem töluðu við opnun
ráðstefnunnar var Olof Palme, for-
sætisráðherra Svíþjóðar. Hann sagöi
meðal annars: „Frá 6. ágúst 1945
hefur spumingin um líf og frið
fengið nýja vídd. Þaö var daginni
sem flugvélin Enola Gay flaug inn
'yfir japönsku eyjarnar. Takmark
hennar var Hiroshima og farmurinn
var fyrsta kjarnorkusprengjan.
Þennan morgun undirbjuggu 340
þúsund íbúar Hiroshima sig undir
nýjan dag. Karlar og konur bjuggu
sig til vinnu. Klukkan var tíu
mínútur yfir átta. Mörg skólaböm
vora úti á götum borgarinnar á leið
til skóla.
Þá gerðist það og allt var búið á
þremur sekúndum. Hiroshima féll í
rústir. Tugir þúsunda manna brannu
til dauða, sópuöust burt meö
vindinum eða létu lífið undir
byggingum sem hrandu saman.
Aðrir tugir þúsunda manna hlutu al-
varleg sár eða sjúkdóma sem enginn
gat læknað . . . Frá þessum tíma
hefur uppbyggingu kjamorkuvopna-
búrsins verið haldiö áfram með
miskunnarlausum hraða,” sagði
Palme og rakti síöan hvemig friðar-
hreyfingar víða um lönd hefðu á síð-
ustu áram snúist til varnar gegn
þessari þróun. Hann sagði aö kristnir
menn hefðu gegnt þýðingarmiklu
hlutverki í friðarbaráttunni og
fagnaði frumkvæði kirkjunnar með
þessari friðarráðstefnu.
Upplýst almenningsálit
Jan Mártensson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, sem einnig talaði á ráð-
stefnunni, tók í sama streng og
Palme: „Upplýst almenningsálit í
heiminum um hættur vígbúnaðar-
kapphlaupsins er mikilvægt í bar-
áttunni fyrir afvopnun. Hér gegna
kirkjurnar einstæðu hlutverki.”
En vitaskuld voru skoðanir
skiptar á ráðstefnunni og kojn það
meðal annars fram í orðum rúss-
neska prófessorsins Vitaly Borovoy:
„Hvers vegna eraö þið svo hrædd við
okkur. Við getum ekki gert neitt. Og
raunar kom marxisminn til okkar úr
vestri. Viö erum ekki svo vond og þiö
ekki svo góð. Viö erum bræður og
systur, ekki óvinir.” Kúbanski prest-
urinn Ofelia Ortega benti á nauðsyn
þess að rætt yrði um samband
norðurs og suöurs í stað þess að
eingöngu væri rætt um ágreining
austurs og vesturs. Kvekarinn John
Duncan Wood, sem áður er getið,
benti á að trúarsamfélag hans hefði
alltaf barist gegn stríði óháð því
hvaða vopn hefðu verið notuð. Það
kom líka á daginn að ekki var
auðvelt að koma saman ályktun ráð-
stefnunnar sem allir þátttakendur
gætu skrifað undir. Ályktunin var
ekki tilbúin þegar þessi grein var
skrifuð.
Tvenns konar afstaða
til valdbreytingar
I upphafi ráðstefnunnar spurðu
fréttamenn Olof Sundby, fráfarandi
erkibiskup Svía og stjómanda
ráðstefnunnar, hvemig sænska
kirkjan liti á þau orð ritningarinnar
aö manni beri að bjóða hina kinnina
ef maður er sleginn.
Erkibiskupinn vísaði til þess að í
hinni kristnu kirkju hefði verið aö
finna tvenns konar afstöðu til vald-
beitingar. önnur þeirra byggir bók-
staflega á ritningaroröinu hér að
ofan. Hin afstaðan byggir á því að
þegar um tvo vonda hluti er að ræöa
beri manni að velja þann skárri, þ.e.
að veita mótspyrnu til þess að koma í
veg f yrir sigur hins illa.
Friður og frelsi fari saman
Ekki er vafi á því að síðarnefnda
afstaðan hefur verið ráðandi í gegn-
um tíðina og auðvitað átti hún sína
talsmenn á ráöstefnunni. „Réttlátur
friður” vora orð sem oft heyrðust á
ráðstefnunni. Einnig var bent á
nauðsyn þess að friður og frelsi færu
saman. Ekki þótti þó öllum sem á
þetta væri lögð nægileg áhersla og
má geta þess að fyrir utan háskóla-
bygginguna í Uppsölum, þar sem
ráöstefnan fór fram, áttu mótmæli
sérstað.
Mótmælendurnir vildu minna
á þá kúgun sem margir kristnir
menn búa við í Sovétríkjunum. Þátt-
takendur á ráðstefnunni höföu hins
vegar í upphafi gert það ljóst að ekki
væri unnt að fjalla um ofsóknir gegn
kristnum mönnum í einstökum
heimshlutum. Slíkt gæti teflt einingu
ráðstefnunnar í tvísýnu. Hver svo
sem árangurinn af ráðstefnunni
veröur þá er ljóst að flestir gátu tekið
undir orö Karoly Toth, biskups frá
Búdapest, er hann sagði: „Þessi
ráöstefna hefur a.m.k. fært okkur
nær einingu kirkjunnar.”
-GAJ, Lundi.
Antonie, yfirmaður ortodoux kirkjunnar í Rúmeníu, ásamt Olof
Sundby, erkibiskupi sænsku kirkjunnar. Sundy stjórnaði ráðstefn-
unni og var það síðasta stóra hlutverk hans áður en hann lætur af
störfum fyrir aldurs sakir.
Vitaíy Borovoy (nær skiltinu), prófessor frá Sovétríkjunum, sagði aðl
ótti Vesturlandabúa við Sovétríkin væri ástæðulaus: „Við erum öll
bræður og systur.”
Tilraunir Svía með kapalsjónvarp:
Lausir endar í kap-
alsjónvarpi Lundar
— lögf ræðileg hlið málsins algjöviega óleyst
Tilraunir þær sem Svíar hafa
ákveðið að gera með kapalsjónvarp í
Lundi samanstanda nú af „flækju af
lögfræöilega lausum cndum,” svo
notað sé orðalag úr frétt Sydsvenska
dagblaðsins um málið.
Stefnt var að þvi að kapalsjón-
varpið gæti hafist í vissum hverfum í
Lundi þegar í haust. En enn sem
komið er liggur ekki fyrir nein á-
kvörðun um hver eigi að greiða
kapallagnirnar í húsin og ekki hefur
heldur veriö gert neitt samkomulag
við þær þjóðir sem senda út þær dag-
skrár sem Lundarbúar koma til með
aö njóta góðs af i haust ef allt gengur
samkvæmt áætlun.
„Þetta verður komiö í lag fyrir
haustið,” sagði Lars Aronsson,
stjórnandi tilraunarinnar, í samtali
við Sydsvenska dagblaðið. En hann
játaði að málið ætti eftir að verða
flóknara síðar á þessum áratug.
Aronsson sagði að þegar væru tU-
búnar tillögur um hvernig haga ætti
greiðslum á afnotagjöldum mUli
landa og vonandi lægi fyrir ákvörðun
um það fyrir 1986.
Tilraunin í Lundi miðar einmitt
að því aö kanna hvernig Svíar geta
notfært sér útsendingar hinna ótal
sjónvarpsstöðva sem unnt verður að
ná gegnum gervUmetti úti í geimn-
um.
-GAJ, Lundi.
Bodström
bíður
afstöðu
Norður-
landanna
Lennart Bodström, utanrUcis-
ráðherra Svíþjóðar, gerði það að
umtalsefni í sænska þinginu í síðustu
viku aö þrjú Norðurlandanna hafa enn
ekki tekið afstöðu til hugmyndarinnar
um Norðurlönd sem kjarnorkuvopna-
laust svæöi. Hann sagði að þessi
staðreynd drægi úr möguleikunum á
að ræða smáatriðin í þessari hugmynd.
Bodström sagöi að hugmyndin væri
Svíum mikið kappsmál og væri
sambandi við hin Norðurlöndin haldið
opnuíþessumáli.
„Ef verulegur árangur á aö verða af
því starfi sem miöar að kjarnorku-
vopnalausu svæði á Norðurlöndum þá
þarf að nást samstaða um markmiðið
og við gerum okkur vonir um að öll
Noröurlöndin geti orðið sammála um
það,” sagðiBodströmennfremur.
-GAJ, Lundi.
Cliff
syngurum
guðfyrir
Svía
Gamli rokkarinn Cliff Richard komí
síðustu viku til Svíþjóðar og hélt á
föstudagskvöld hljómleika í Malmö við
góöar undirtektir.
Þótt margt hafi breyst í lífi Cliffs á
þeim 25 árum sem liðin eru frá því að
hann hóf tónlistarferil sinn heldur
hann enn try ggð við rokkiö.
„Rokkið er einfaldlega mín tónlist,”
sagði hann í blaðaviðtali eftir komuna
til Malmö. En hann fer þó ekki dult
með að á síöari árum hefur trú hans
vikið rokkinu úr efsta sætinu í lífi hans.
„Trúin er spurning um líf og dauða.
Það er tónlistin ekki. Takist mér bara
að auka dálítið áhugann á
kristindómnum með hljómleikum mín-
um og hljómplötum þá er mikið unniö.
Eg flyt rokk með trúarlegum
boöskap,” sagði Cliff Richard enn-
fremur.
-GAJ, Lundi.
Gunnar
Stráng
herðir
sultar-
ólina
Gunnar Strang, aldursforseti
sænska þingsins og fyrrverandi fjár-
málaráðherra Svía, er stöðugt í
sviðsljósi sænskra fjöbniðla enda
þykir hann litríkasti stjórnmálamaður
landsins og jafnframt sá skemmtileg-
asti.
Expressen, sem ekki er stuönings-
blað sósíaldemókrata og Strangs,
sagði frá því á dögunum aö Strang
hefði sést biðja ungan flokksbróður
sinn um að gefa sér sígarettu.
„Ertu ekki hættur að reykja?”
spurði flokksbróðirinn. „Nei, en ég er
hættur aö kaupa sígarettur,” svaraði
Strang.
Sósíaldemókratar hafa, eftir að þeir
komust í stjóm á ný, mjög predikað
nauðsyn spamaðar og Expressensegir
að greinilegt sé aö Strang hafi nú hert
sultarólina og auðvitað sé hagkvæmast
aö gera þaö á þennan hátt, þ.e. að láta
aðra um að borga hinn háa tóbaksskatt
fyrir sig.
-GAJ, lundi.