Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Qupperneq 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR 3. MAl 1983.
Könnun Hagvangs:
Flestir hlynntir takmörk-
unum á reykingum
aldurshópunum. Til dæmis reykti
annar hver þátttakandi á þrítugs-
aldri en einungis sjötti hver þeirra er
komnir voru yfir sjötugt.
Rúmlega 76% þátttakenda voru
hlynntir því aö ekki yröi heimilt aö
selja bömum yngri en 16 ára tóbak,
17% voru andvígir því og 7% tóku
ekkiafstöðu.
Rúmlega 81% aðspurðra var sam-
mála um aö þeir sem reykja ekki eigi
rétt á því aö geta veriö lausir viö
tóbaksreyk á vinnustaö sínum, tæp
11% töldu sig andvíga þessu og 8%
tóku ekki afstöðu. Álíka margir eða
82% töldu æskilegt aö reyklaus svæði
væru á hverjum veitingastaö.
-JSS
Mikill meirihluti fólks viröist vera
hlynntur reyklausum stöðum og tak-
mörkunum á sölu tókabs til barna ef
marka má niöurstööur skoðana-
könnunar sem Hagvangur geröi fyrir
Krabbameinsfélagið og Reykinga-
vamanefnd.
I niðurstööum kom m.a. fram aö
nær 42% þeirra sem spuröir vom
sögöust reykja, 21% vom hættir aö
reykja og 37% höfðu aldrei reykt. Af
þeim sem notuðu tóbak, reyktu lang-
f lestir sígarettur eöa 28%.
Reykingar virtust i heild almenn-
ari hjá körlum en konum, 44% á móti
39%. Á höfuðborgarsvæðinu sögöust
49% reykja, 38% á þéttbýlisstöðum
utan þess og 31% þátttakenda í dreif-
REYKINGAR ÍSLENDINGA
KÖNNUN HAGVANGS í APRÍL 1983
býli.
Tiltölulega flestir reyktu í yngstu
FélagaríSamhygð:
Mikill áhugi
almennings
á fræðslu um
krabbamein
Aöalfundur Krabbameinsfélags
Reykjavíkur var haldinn fyrir
skömmu. Þar kom fram að vart
verður mikils og vaxandi áhuga á
fræðslu um krabbamein og varnir
gegn því meöal almennings.
Félagiö hélt tvo fjölsótta fræðslu-
fundi á árinu en útvegaði einnig
fyrirlesara og fræðsluefni á marga
fundi aðra.
Fræöslustarf Krabbameinsfélags-
ins í grunnskólum landsins var með
svipuöu sniöi og undanfarin ár. Þaö
miöar einkum aö reykingavörnum
en þau eru sem kunnugt er einn
mikilvægasti þáttur krabbameins-
vama. Á þessu skólaári verða allir
grunnskólabekkir á höfuöborgar-
svæöinu heimsóttir og nokkrar
fræösluferöir farnar út á land. Starf-
semin hefur í núvérandi mynd staöiö
í rúm s jö ár og hafa kannanir borgar-
læknis sýnt aö verulega hefur dregiö
úr reykingum gmnnskólabama í
Reykjavík f rá því að hún hófst.
Þá stóö félagið fyrir útgáfu og
endurprentun á ýmsum fræðslu- og
kynningarritum um krabbamein
sem áætlað er aö láta liggja frammi
á heilsugæslustöövum. -EA
HAFA SAFNAÐ
FIMMTÁN ÞUSUND
UNDIRSKRIFTUM
— til stuðnings ofbeldislausum degi
Friðarviku Samhygöar lýkur á
morgun, miðvikudag, og verður haldin
fjölbreytt samkoma í Sigtúni í tilefni
dagsins. Þá eiga heimssamtök
Samhygðar einnig fjórtán ára afmæli
og dagurinn er einnig svokallaður of-
beldislaus dagur. Frá því friðarvikan
hófst, síðastliðinn miövikudag, hafa
félagar samtakanna safnaö fimmtán
þúsund undirskriftum á þar til geröa
lista þar sem fólk lýsir sig reiðubúiö aö
stuöla aö ofbeldislausum degi hinn 4.
maí.
Tveir Samhygöarfélagar, Siguröur
Þór Sveinsson og Sandra Steingríms-
dóttir, litu inn á ritstjórn DV í gær til
aö vekja athygli á friðarvikunni. „Við
beitum okkur gegn ofbeldi í víöasta
skilningi og því ofbeldi sem viö beitum
okkur sjálf. Uppspretta þess er ótti
sem stafar af því að við treystum ekki
okkur sjálfum. Við getum sigrast á
honum meö því aö hætta aö hugsa of
mikiö um okkur sjálf og hvaö aðrir
halda og hugsa um okkur. Ofbeldis-
hneigöin stafar af ótta, ofbeldissinnað-
ur maöur hefur ekki friö innra meö sér
því hann er hræddur.”
Hvernig er starfinu háttaö innan
Samhygðar?
„Þaö eru haldnir vikufundir úti um
allan bæ þar sem unniö er aö losun
spennu. Fólk tjáir sig án hræöslu til aö
bæta sjálfsímyndina og tengist hvert
ööru. Með þessu móti fer mann aö
langa að hjálpa öörum, kenna öörum
aö losna við óttann. Þaö er leiðin til
þroska. Það sem viö nemum í dag,
kennum viö öðrum á morgun. ”
Þaö kom fram hjá þeim Söndru og
Siguröi að stefnt er aö tuttugu þúsund
undirskriftum gegn ofbeldi. „Sá fjöldi
sem þegar er kominn er vísbending um
að ofbeldislaus dagur sé möguleiki. Af
öllu því fólki sem viö höfum rætt við
hefur enginn veriö neik væöur. ”
Aöspurð um félagafjölda í Samhygö
hérlendis svöruðu þau aö engin félaga-
skrá væri til en fjöldinn væri samt
geysimikillogfæri vaxandi. „Viöerum
ólík öörum friöarhreyfingum aö því
leyti aö viö leitum aö hinum innri
orsökum ofbeldisins, hiö innra með
manneskjunni.”
-PÁ
Frá árekstrarstað á gatnamótum Álfabakka og Stekkjarbakka á laugardag. Eins og sjá má eru báðir bílarnir
mjög mikið skemmdir. Alls voru fimm manns i bilunum og voru allir fluttir á siysadeiid Borgarspítalans.
DV-mynd: S.
1 15
r
UTAIMHÚSSMÁLIMING
PERMA-DM OLÍULÍMMÁLNING
Núíárer PERMA-DRI 17 ára á íslandi.
18 litir til á iager.
Góð greiðslukjör.
Sendi ípóstkröfu hvert á /and sem er.
MÁLNING HINNA VANDLÁTU.
Versiið hjá fagmanninum.
miösbúð
BYGGIIMGAVÖRUVERSLUN,
Smiðsbúð 8, Garðabæ,
simi 44300.
Sigurður Pálsson
byggingameistarí.
Fimm fluttir
á slysadeild
Mjög harður árekstur varö á milli
Ford Mustang og Ford Fiesta á gatna-
mótum Álfabakka og Stekkjarbakka
um klukkan fimm á laugardag. Þrír
voru í Fiestunni og tveir í Mustangnum
og voru allir fluttir á slysadeild Borg-
arspítalans en DV er ekki kunnugt um
meiösli þeirra.
Tildrög árekstursins voru þau að
Fiestunni var ekið niöur Stekkjar-
bakka á allmikilli ferö. Mustanginn
kom hins vegar eftir Álfabakkanum.
Viö gatnamótin lentu bílarnir saman.
Bílamir eru mikið skemmdir.
-JGH.
Hvaltennurnar
enn ófundnar
Hvaltannastuldurinn úr geymslum
Hvals hf. í Hvalfirði er ennþá
óupplýstur samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar í Borgamesi.
Andvirði hvaltannanna skiptir
milljónum króna og auk sölugildisins
hafa þær mikið söfnunargildi því
margar þeirra eru úr hvölum sem
bannað hefur verið að veiöa.
Stuldurinn fór fram um helgina 16..
og 17. apríl og uppgötvaðist ekki fyrr
en á mánudegi. Þeir sem kynnu aö
geta gefið upplýsingar um máliö em
vinsamlega beönir um aö snúa sér til
lögreglunnar í Borgamesi eöa
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
-JGH.