Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Side 7
DV. ÞMÐJUDAGUR 3. MAÍ1983.
7
IMeytendur Neytendur
Jónas Bjarnason, st jómarmaður í Ney tendasamtökunum:
Verið að klæða úlf einokunar í
sauðargæru dreifingarstöðvar
„Menn skulu ekki draga sauðargæru
yfir úlfinn meö því aö fara aö tala um
dreifingarstöö á eggjum þegar þaö
sem þeir meina er ekkert annað en
einokun á dreifingu og sölu,” sagöi
Jónas Bjamason, stjórnarmaöur í
Neytendasamtökunum. Tilefniö var
bréf sem birtist á neytendasíðunni á
mánudaginn frá Framleiðsluráöi land-
búnaöarins. I því bréfi er meöal ann-
ars sagt aö þær umræöur sem oröiö
hafa undanfarið um einkasölu á
eggjum, séu „undarlegar”. Þær séu
svipaðar þeim umræöum sem áttu sér
staö fyrir 25 ámm þegar Osta- og
smjörsalan var stofnuð. Einnig er rætt
í bréfinu um uppbyggingu á fullkom-
inni pökkunar- og dreifingarstöö.
Jónas, sem unnið hefur mikiö af hálfu
Neytendasamtakanna aö land-
búnaöarmálum, telur hins vegar aö
hér sé verið aö mgla saman tveim
óskyldum hlutum.
,,Þaö er mjög gott aö bændur komi
sér upp dreifingarstöð. Neytendur
vilja áreiöanlega slíkt mjög gjarnan.
En forsenda fyrir slíkri stöð er alls
ekki einokun á sölu eins og fariö er
fram á. Slík einokun þýöir hins vegar
aö menn ætla sér aö stjóma verðinu og
til þess aö þaö haldist stööugt aö vera
meö h vers konar höf t.
Þeir hafa líka veriö aö tala um aö
þama yröi komið upp einhverju auknu
heilbrigöiseftirliti. En slíku eftirliti er
hæglega hægt aö koma upp, með eöa
án dreifingarstöðvar, án þess aö vera
jafnframt meö einokun. Þetta atriöi er
því algerlega óviökomandi málinu.
Þaö er vitnað í Osta- og smjörsöluna.
En þar er enn verið aö tala um alger-
lega óskylda hluti. Samanburöur á
dreifingu á mjólkurvörum og eggjum
er alls ekki sambærilegur. Mjólkur-
iönaöurinn er flókinn þekkingariönaö-
ur þar sem stórar einingar koma aö
góöum notum. Dreifing eggja er hins
vegar alls ekki flókin og stórir
dreifingaraöilar koma einmitt ekki aö
notum.
Varðandi mjókuriönaöinn má hins
vegar bæta því viö aö neytendur hafa
þar ýmislegt viö verölag aö athuga. Þó
aö viö samþykkjum aö veriö sé að
framleiða góöar vörur og fjölbreyttar
eru þær oft á tíöum svo dýrar aö þær er
tæpast hægt að kalla lengur vörur sem
almennt eru á boröum almennings. Viö
viljum ekki aö eggin komist í sama
veröflokk,”sagöi Jónas. DS
/ .....................™
VINNU VÉLAEIGENDUR:
Tökum aö okkur slit og viögeröarsuöur á tækjum
ykkar þar sem þau eru staðsett hverju sinni.
Sími: 78600 á daginn og 40880 á kvöldin.
SlAL-ORKA
sii»>i:-o(;viim;i:h»aþjihmi!staöí
GÓÐIR NOTAÐIR BÍLAR
Toyota Hilux dísil '82, ek. 2.000 km. Mazda 929 '82, ek. 1.700 km. Mercedes Benz 230 '80 m/öllu, ek. 54.000 km. Subaru 4x4 '81, ek. 38.000 km. Toyota Cressida GL ’80, ek. 30.000 km. Sérlega fallegur bíll. Chevrolet Malibu Classic '78, ek. 43.000 km. Mazda 626 '82, ek. 12.000 km. Isuzu '81, ek. 12.000 km, útborgun aðeins 60.000 kr. Mazda 616 '78, ek. aóeins 36.000 km. Golf '82, ek. 14.000 km. Lada 1500 station '81, ek. 11.000 km. BMW 320 '78. Colt GL '81. Mitsubishi pickup '81. Volvo 244 DL '82, ek. 9.000 kni.
Síaukinsala sannar öryqqi S~l\
bilasala
þjónustunnar. Bergþörugötu 3 — Reykjavik Simar 19032 — 20070
Jafhvel útsýnið
verður píniuítið
Nýja línan - létt og fersk
Nýja franska línan fer um þessar mundir sannkallaða
sigurför um veitingastaði víða um heim. Grillið á Hótel
Sögu slæst nú í hópinn með nýjan franskan matseðil,
franskt eldhús, franska matreiðslusniHinga og franskt
hráefni sem jafnvel hefur aldrei sést áður á íslenskum
veisluborðum.
Franska stemmningin ersvo ósvikin að okkur kæmi
það ekkert á óvart þótt hið gullfallega úsýni úr Grillinu
fengi á sig pínulítið franskan blæ!
/2(JA/r£(}J?2 - við bjóðum þér gott kvöld í Grillinu!
50% afsláttur fyrir börn.
MALLORCA
Paradís á jörð
SANTA PONSA: Einn allra vinsælasti
fjölskyldustaður á Mallorca.
JARDIN DEL SOL. Nýtt og glæsilegt
íbúðahótel alveg við sjóinn.
Fáið nánari upplýsingar um
hagstætt verð og kjör.
FERÐASKRIFSTOFAN
LAUGAVEGI 66 SÍMI 28633
--
Ódýrar fjölskylduferðir
ll.og27.maí