Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Side 20
DV. ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI1983. 20 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Alfreð Gíslason. Alf reð á förum til Þýskalands Alfreð Gíslason, landsliðsmaöurinn snjalli 1 úr KR í handknattleik, fer að öllum Iikindum til V-Þýskalands nú næstu daga til viðræöna 1 viö félög sem hafa sýnt áhuga á að fá hann til | sín. Eins og DV hefur sagt frá þá hafa Danker- | sen og Gummersbach spurst fyrir um Alf reð. — Ég get ekkert sagt eins og málin standa fnú en ég reikna fastlega með að fara til V- I Þýskalands nú á næstunni og verð þá stutt í þeirri ferð, þar sem ég verð kominn heim fyrir landsleikina gegn Bandarikjamönnúm 12.— 14. maí, sagði Alfreð í stuttu spjalli við DV í gær. Alfreö sagði að hann langaði til að breyta til og víkka sjóndeildarhringinn með því að æfa og leika handknattleik erlendis. -SOS KJARTAN KARIVARÐ ORUGGUR SIGURVEGARI — og tryggði sér íslandsmeistaratitilinn ísnóker 1983 Kjartan Kári Friðþjófsson — nýja starnan jjí knattborðsleik, tryggði sér íslandsmeistara- titilinn í snóker þegar hann sýndi mikla yfir- Ivegun og öryggi á mótinu sem fór fram í biljarðstofunni við Klapparstíg. 24 knattborðs- spílarar tóku þátt í mótinu og komust níu þeirra áfram í úrslitakeppnina. Kjartan Kári varð yfirburöasigurvegari í úrslitakeppninni — vann átta af níu leikjum sem hann lék og tryggði sér Islandsmeistara- titilinn 1983. Jónas B. Erlingsson og Bjarni Jónsson urðu síðan jafnir í öðru til þriðja sæti. -sos Liverpool tapaði fj leiknum í röð f 1.1 Úlfarnir á ný í 1. deild eftir jaf ntef li við Charl Það gengur nú allt á afturfótunum hjá Englandsmeisturum Liverpool. í gær lék liðið við Forest í Nottingham og tapaði 1—0. Fjórði tapleikur Liver- pool í röð í 1. deild og leikmenn liðsins eru hættir að skora mark. Það kemur þó ekki að sök, meistaratitUIinn í höfn. Eina mark leiksins skoraöi Peter Davenport á 76. min. Náði knettinum af fyrirliða Liverpool, Graeme Sou- ness, lék nær markinu og skoraði hjá Bruce Grobbelaar. Þrátt fyrir slæmt gengi undanfarið hefur Liverpool 13 stiga forustu i 1. deUd. Ulfarnir endurheimtu sæti sitt í 1. deild á ný þegar þeir gerðu jafntefli við Charlton í Lundúnum. Lengi vel leit út fyrir stórsigur Ulfanna. Þeir komust í 0—3 meö mörkum Kellogh, tvö, og Mel Eves en Charlton tókst að jafna. Þaö kom þó ekki aö sök fyrir Ulfana. Ful- ham tapaði fyrir efsta liöinu, QPR, 3— 1, þar sem John Gregory, Simon Stain- rod og Tony Sealy skoruðu fyrir QPR og Leícester tókst ekki aö sigra í Leeds, 2—2. Við þaö komst Leicester í þriðja sætiö í 2. deild og viröist hafa alla möguleika á aö fylgja QPR og Ulfunum í 1. deild. Gordon Davies skoraði mark Fulham gegn QPR. Annars beindist athyglin mest að fallbaráttunni í 1. deild í gær. Birming- ham hefði getaö nokkurn veginn gull- tryggt sæti sitt í deildinni með sigri á Brighton. Það tókst liðinu þó ekki. Jafntefli 1—1. Jan Handyside skoraði fyrir Birmingham á þriðju mínútu en Gordon Smith jafnaði fyrir Brighton níu mínútum fyrir leikslok. Allt bendir nú til að Brighton falli ásamt Swanpea en hvert þriðja liðið verður er ekki gott að segja. Coventry tapaöi enn í gær og stendur illa eins og Man. City. Það var Everton, sem sigraöi Coven- try á leikvelli sínum, Goodison Park í Liverpool,með marki Graeme Sharp úr vitaspymu. 13. leikur Coventry í röð án sigurs. Ahorfendur voru aðeins 12.900. MAGNUS „PARAÐI” HELLUVOLLINN — og var öruggur sigurvegari í fyrsta golfmótiársins Hátt í eitt hundrað kylfingar mættu til leiks á fyrsta opna golfmót ársins, sem fram fór á hinum skemmtilega velli golfklúbbsins á Hellu á laugar- daginn var. Magnús Jónsson frá Keflavík varð sigurvegari í keppninni án forgjafar. Lék hann völlinn á 31 höggi og síðari hringinn — leiknar voru 18 holur — lék hann einnig á 31 höggi eöa á samtals 62 höggum. Er þaöparvallarins. Var hann fjórum höggum betri en næstu menn en það voru félagar hans úr Keflavík, Hilmar Björgvinsson og Sigurður Sigurðsson og Ragnar Olafs- son frá GR. Voru þeir allir á 66 höggum. Þessir fjórir léku saman í keppninni og var því hart barist í því „holli”. Magnús var með besta árangur með forgjöf en verðlaunin þar féllu í hendur Viðars Samúelssonar, GK, þar sem reglur keppninnar sögðu að sami maður gæti ekki unnið til verðlauna bæði með og án forgjafar. önnur verð- launin fékk Amgrímur Benjamínsson, GHR, Jón Svan Sigurðsson, GK, fékk þriðju verðlaunin en fjórði með forgjöf varð Kolbeinn Kristinsson, GOS. I keppni kvenna varð Kristín Sveinbjömsdóttir, GS, best án for- gjafar en Guðrún Oskarsdóttir, GHR, var best með forgjöf. Næsta opna mót í golfinu veröur um næstu helgi. Er það FINLUX keppnin hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfiröi. Er það punktakeppni með 7/8 forgjöf og veröa leiknar 36 holur — 18 holur á laugardaginn og 18 á sunnudaginn. -klp- Magnús Jónsson. Minnsti áhorfendafjöldi hjá Everton frá upphafi. Sunderland og Luton eru líka enn í fallhættu eftir jafnteflisleiki sína í gær, bæöi á heimavelli. Luther Blissett náði forustu fyrir Watford í Sunderland en heimaliðiö komst yfir með mörkum Atkins og Leighton James. Tveimur mín. fyrir leikslok tókst Blissett aö jafna fyrir Watford. Sjötta mark hans Moses rek missir úrs — Arsenal sigraði Man. I Frá Ólafi Orrasyni, fréttamanni DV íLondon: Það voru mikil vonbrigði, þegar maður sá liðsuppstillinguna hjá Arsenal og Man. Utd. í Ieik liðanna í 1. deild á Highbury í gær. Hálfgerð vara- mannalið hjá báðum liðum. Hjá Man. Utd. vantaði fimm leikmenn, Bryan Robson, Frank Stapleton, Steve Coppell, Arthur Albiston og Araold Miihren, sem eiga við meiðsli að stríða, en Gary Bailey var hins vegar óvænt í markinu. Hjá Arsenal, sem sigraði 3—8 í leiknum, vantaði Graham Rix, Tony Woodcock og Aian Sunderland. Það var lítið gaman að vera áhorfandi á leiknum. Alla stemmningu vantaði og greinilegt að leikmenn Man. Utd. höfðu hugann við ailt annað en leikinn, aðallcga að komast hjá meiðslum en úrslitaieikur- URSLIT Urslit í leikjunum i gær á Englandi urðu þessi: l.deild: Arsenal—Man. Utd. Birmingham—Brighton Everton—Coventry Luton Town—Stoke Nottm. For.—Liverpool Sundcrland—Watiord Swansea—Aston Villa WBA—Norwich 3-0 1—1 1-0 0-0 1—0 2-2 2-1 1-0 2. deild Blaekburn—Derby Bolton—Grimsby Charlton—Wolves Chelsea—Sheff. Wed. Leeds—Leicester QPR—Fulham 2-0 0-0 3—3 1—1 2—2 3-1 3. deild Bourncmouth—Doncaster Cardiff-Brcntford Millwall—Newport Oxford—Reading Portsmouth-Orient Wrexham—Chesterfield Exeter—Southend Preston—Lincoln Sheff. Utd.—Bristol Rov. Walsall—Plymouth 2—2 3-1 3- 0. 1—2 2—2 0-0 4— 3 1-0 2-1 2—0 4. deild Aldershot—Hcreford Bristol City—Darlington Hartlepool—Colchester Hull City—Mansfield Scunthorpe—Swindon Torquay—Halifax Wimbledon—Chester York—PortVale 2-1 2-2 1— 4 2- 2 2-0 1—3 4-0 0-0 KIMATTSPYRNUSKOLI ÞRÓTTAR fyrir stúlkur og drengi á aldrinum 7 — 12 ára hefst 23. maí nk Kennari verður Leifur Harðarson íþróttakennari. Uppl. i sima 82817 eftir kl. 17.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.