Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1983, Qupperneq 37
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 3. MAl 1983.
37
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Rokkiö fór reyndar noröur en það fer atdrei niöur.
hátíöinni meö gamla Lúdótaktinum.
Og hví ekki að taka iifiö lótt?" Stebbi i Lúdó heillaði á
OV-myndir: Cuðmundur Svansson.
„Þessi maður er með mikinn skeggvöxt og hann er stoltur af þvi. Á hann
aö nota tekmantik-tœknina eða — þið vitið — rafmagnsrakvél? Með
tekmantik er hann tilbúinn til að skora hvaða Garðar sem er á hólm enda
veit hann að orkubúin framleiða alls ekki ódýrt rafmagn, hvað sem raf-
magnsrukkararnir segja. Hann veit líka og finnur muninn. Með tekmantik
fær hann hvaða skvísu sem er til að strjúka á sór kjammann og hringa sig '
siðan um hálsinn ó sór. Og kannski kemur sexið seinna. Það er allt i þessu.
Taktu rafmagnsrakvólina úr sambandi og settu þig i samband við hann
Brodda okkarhjá tekmantik-tækninni."
Ómar kom með
frúnaogá
Frúnni norður
E.T. með
tekjumet
Kvikmyndin umtalaða E.T. hefur nú
slegið tekjumet myndarinnar Star
Wars og það tók hana aðeins 31 viku. Á
tímabilinu frá júní 1982 til janúar 1983
komu í kassann vegna sýninga í
bandarískum og kanadískum kvik-
myndahúsum rúmlega 194 milljónir
dollara, samanboriö viö um 193 millj-
ónir dollara hjá Star Wars, sem þurfti
þó mun lengri tíma til að ná þeirri upp-
hæð.
— í einar mestu rokkhviður sem
sést hafa í Sjallanum
Útúrfullur Sjalli með bros á vör. Rokkhviðurnar hvina i húsinu og Fats Domino má hafa sig allan við. „ Við tökum rokk, rokk, rokkitrokkitrokk.
Frá Guðmundi Svanssyni, fréttaritara
DV á Akureyri:
„Nú er hátíð í bæ,” sögðu nokkrir
Akureyringar þegar þeir fengu rokk-
hátíðina í heimsókn fyrir stuttu.
Rokkaramir tróðu upp í Sjallanum
margfræga og þaö er álit okkar á
Akureyri að þaö hafi nánast verið um
þrumur og eldingar að ræða í Sjallan-
um þetta kvöld, slíkt hafi stuðið verið.
Utúrfullur Sjalli nánast tókst á loft í
mestu rokk-hviðunum en sem betur fer
var Fats Domino á meðal rokkara og
tókst honum að koma í veg fyrir að illa
færi. En litlu mátti muna.
Svo mikil var stemmningin að ungir
sem aldnir vissu nánast ekki hve gaml-
ir þeir voru. Var setið á dansgólfinu og
staðið uppi á borðum. Segir sagan að
Presley gamli hafi haldið að hann væri
að skemmta í Hilton-hótelinu í Las
Vegas þegar hann tók „ásartendess-
inn”.
Sjónvarpsmenn Sjallans voru með
kapalkerfið í góðu lagi og sjónvörpuöu
þetta kvöld í litla salnum uppi á lofti.
Sjallarokkarar fengu góöan liðsstyrk
um klukkan ellefu þetta kvöld þegar
Omar nokkur Ragnarsson kom með
frúna og á Frúnni norður. Omar sýndi
geysigóðtilþrif að venju.
I lok „rokkabillísins” voru öllum
þessum miklu kraftarokkurum afhent
Rokkið kann sór engin takmörk og skiptir þé engu máii þó það só í Sjallanum. Ogþetta vissu rokkarar jafnt
sem rokkáhugamenn i norðan rokkinu. Við gefum rokkinu gott klapp.
blóm sem þakklætisvottur fyrir
skemmtilegt kvöld og góðar norðan-
rokkhviður, með svolitlum garra og
gáska.
Við birtum hér nokkrar myndir frá
þessari miklu Sjallagleði en því miður
tókst ekki að mynda Fats Domino í
verstu hviðunum. Hann átti það þó svo
sannarlega skilið, blessaður.
-JGH