Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Blaðsíða 4
4 DV. FÖSTUDAGUR 27. MAÍ1983. „Það er óvœnt ánægja að sjá þig hár," sagði Ragnar Arnaids um leið og hann tók á móti Albert Guðmundssyni i fjármálaráðuneytinu. „Það stendur að visu B á lyklinum. Það stafar liklega afþvi að framsóknarmenn hafa setið hórna svo lengi," sagði Ragnar þegar hann afhenti nýja fjármála- ráðherranum lyklana. DV-mynd: Elnar Ólason. Halldór Ásgrimsson sjávarútvegsráðherra bretti strax i gær upp ermarnar og settist á fund með Jóni L. Arnalds ráðuneytisstjóra og Jóni B. Jónassyni skrifstofustjóra. DV-mynd GVA Hin nýja ríkisstjórn Steingrims Hermannssonar með Vigdisi Finnbogadóttur, forseta íslands, á Bessa- stöðumígær. DV-mynd GVA „Það er ánægjulegt að fé þing- menn Austurlands hingað," sagði Hjöríeifur Guttormsson þegar hann afhenti Sverri Hermannssyni lykla- völdin að iðnaðarráðuneytinu. Sagðist hann vonast tH þess að Sverrir nytí dvalarinnar, hversu löng sem hún yrði. „Þetta eru tveir lyklar," sagði Hjöríeifur „annar er merktur mér, hann er rauður, og er að skrifstofu minni." „Já, ég læt það ekkert á mig fá þó liturinn sé svona," svaraði Sverrir að bragði. „Siðan er hér annar blár," sagði Hjöríeifur, „og hann erað húsinu." En Hjöríeifur lét ekkiþar við sitja, eftírmaðurinn var leystur út með gjöfum. „Hérna er salt i grautínn," sagði fráfarandi ráðherra, „fyrsta islenska saltíð sem við framleidd- um." Sverrir spurði hvort hann hefði smakkað á þessu? Jú, Hjör- leifur sagðist hafa gert það og bættí við annarri gjöf, málmbita sem hann bjóst við að Sverrir kann- aðist við. Og ekki stóð á þvi, ferro- silikon þekktí hann. Sverrir sagði að sér hefði verið gefk) svoleiðis i Noregi þegar hann skoðaði járn- blendiverksmiðju þar. Áður en þessari stuttu athöfn lauk þakkaði Sverrir Hermannsson fyrir sig og bað um að hann mætti eiga Hjörleifað efá þyrftí að halda. Fyrsta aðstoðin var veitt j>á þegar i formi skýrslu sem starfsmenn ráðu- neytísins höfðu tekið saman fyrir Hjöríeif. Þar kemur fram allt það sem hinn nýi iðnaðarráðherra þarf að vita um stöðu mála innan ráðu- neytisins. „Ja, þetta var þér likt," sagði Sverrir. „Er ekki augljóst að ég hef þetta fyrir helgarlesningu. Eg var að lesa Víga-Glúms sögu, ætli ég skipti ekki yfir iþetta." JBH/D V-mynd S. Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Ekkert samráð haft við Svarthöfða Það má sjá á Þjóðviljanum, að ná á að taka á honum stóra sínum til að hindra að ný ríkisstjórn komi fram áformum sínum tll bjargar efna- hagslegu sjálfstæðl þjóðarinnar. Alþýðubandalagið er í startholunum og vitnar jafnvel í Kari Steinar sér til stuðnings, en það er orðið langt síðan krati þótti nokkurs nýtur í málgagni þjóðfrelsisins. Mikið er kvartað undan því að ekki hafl verið haft samráð við verkalýðshreyfinguna um úrlausn efnahagsmála, eins og kalla hefðl átt á hver ja einustu stétt í landinu til að spyrja hana hvort hana vantaði ekki skyr og rjóma, eða er það bara verkalýðsstéttln, sem á að ráðleggja nýjum ríkisstjórnum. Ber hún kannski ábyrgð á f jórtán kjara- skerðlngum Alþýðubandalagsins á síðustu árum, þegar bandalagið átti menn í stjórn? Ekki var haft samráð við Svarthöfða, svo dæmi sé teklð, við myndun núverandi ríkisstjórnar. Tilhneigingar verkalýðsforstjóra til að líta svo á að hér verði ekki mynduð ríkisstjórn, eða að hún fái starfað nema með samráðum við einn aðUa þjóðfélagsmyndarlnnar er ekki annað en yflrlýslng um valda- brölt, sem samræmist ekki lýðræðis- legum vinnubrögðum. Verkalýðsfor- stjórar hafa hvað eftir annað, þegar kommúnistar eru í stjómarand- stöðu, kraflst þess að mega ráða yfir öðrum hópum þjóðfélagsins og skammta þeim lífskjör, þótt þeir takl þegjandi við fjórtán launalækkunum í stjóraartíð Aiþýðubandalagsins. Á næstunni má vænta þess að skyndi- verkföllin byrjl, þótt ekkert sé verið að gera annað en bjarga þvi sem bjargað verður, og reynt að hafa þá fyrlrvara á, að hinlr lægst launuðu beri minnst af víxlum síðustu stjóraar. Jafnvel innan verkalýðshreyf- ingarinnar, sem öðra hverju vill segja þjóðkjöraum fulltrúum fyrir verkum, er ekki slnnt þelrri grund- vallarreglu að láta ákvörðun meiri- hluta gUda um athafnir og stefnu launþegahreyfingarinnar. Atta manna fundir í fjölmennum félögum eru látnir ákveða verkföU og feUa samninga. Sér hver heUvlta maður að ekki er þetta samkvæmt reglum lýðræðisins, og ættu verkalýðsfor- stjórar að koma þessu i lag áður en þeir hefja slaglnn samkvæmt rltúaU Svavars Gestssonar og Karls Steinars, kennara úr Keflavik. Eins og ástand þjóðmála er nú blnda menn miklar vonir við nýja riklsstjóra, þótt ekki hafi verið haft samráð við þá. EðUlegt væri að gefa henni nokkurn tima tU að hún fái frlð tU að sýna hvers hún er megnug. ÞjóðvUjinn er ekki á því máU. Hann talar um grimma leiftursókn gegn lifskjörunum, en sleppir að minnast á þá grimmu lelftursókn gegn sömu lifskjörum, sem stóð yfir alveg fram að hádegl i gær. Kommúnlstar ætl- að spara stóru orðin í biU og leyfa a.m.k. áhangendum sínum að gleyma siðustu kjaraskerðingum áður en þeir byrja á því að tæta sundur björgunarstarf nýrrar rikis- stjóraar. Auðvltað er ekki vlð þvi að búast að kommúnlstar geti sparað sig í svo sem hundrað daga, en áður en til atkvæðaikemur í verkalýðsfé- ilögum ættu þeir að sjá svo tU að meirihlutinn þar fengi að ráða ferðinni, en ekkl 7—8 manns eins og venjan hefur verið. Þótt ekkert samráð hafi verið haft við Svarthöfða um stjóraarmyndun vUl hann ekki trúa öðru en núverandi stjóra sé þess albúln að takast undanbragðalaust á við vanda- málin, og láti ekki undir höfuð leggjast að skýra landsmönnum frá raunverulegu ástandi efnahagsmála þegar hún tekur við. Það er þýðingarmlkið að almenningur fái nú að vlta hvar kommúnistar vora staddir þegar þeir kvöddu, svo ekki fari á mflll mála hvert þeir stefndu, áður en þeir byrja að kynda katlana hjá launþegahreyfingunni. Þá er elnnlg ástæða tU að fyigjast með því hve mörg alþýðuhelmUi núverandi stjóra setur á hausinn, en Karl Steinar, kennari í Keflavík, boðaði slikt um það bU sem hann var að verða heimUdarmaöur Þjóðvttjans. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.