Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Blaðsíða 10
10 DV. FÖSTUDAGUR27. MAl 1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Um 500 börn urðu fyrir eitrun af vöidum sprengingarinnar i Seveso 1976. Þau fengu ýmiss konar húðsjúkdóma og mörg urðu að gangast undir upp- skurði. Grunsemdir um fósturlát af vöidum eitrunarinnar voru aldrei staðfestar af dómstólum, nó heldur vansköpun barna sem fæddust rétt eftir slysið. <—----------------m og í nóvember koma svo tunnurnar 41 til Anuilcourt. Leitin hefst I franska umhverfismálaráðuneyt- inu fá menn fréttir af því að eitrið sé komið til Frakklands og 22. október berst skeyti frá Hoffman La Roche þess efnis að eitrið sé í öruggum höndum og engin hætta stafi af því. Þegar þetta skeyti er sent er ljóst að fyrirtækið hefur ekki minnstu hugmynd um hvar eitrið er niður- komið. Að svo komnu máli ákveöur franska umhverfisráöuneytið að að- hafast ekkert í málinu. En það eru ekki allir sem eru jafn auðtrúa og frönsku yfirvöldin. Al- þjóða umhverfisverndarsamtökin Greenpeace og franska tímaritið Science et Vie hefja umfangsmikla leit um alla Evrópu að eitrinu. Sér- staklega beinist leitin aö Þýskalandi en einnig aö öörumEvrópulöndum. Loksins í mars síöastliönum komast leitarhóparnir á sporið er þeir komast yfir skjöl sem staðfesta að eitriö hafi verið flutt til Frakk- lands 10. september 1982. Þaðan tekst aö rek ja slóðina til Saint Quent- in þar sem hún hverfur. Science et Vie birtir greinar um leitina og í framhaldi af þeim er Paringaux tekinn til yfirheyislu en hann neitar að láta uppi hvar eitriö sé niðurkomið. Hann er fangelsaöur 30. mars og eftir að hafa setið í fang- elsinu í einn og hálfan mánuö gefst hann upp og leysir frá skjóðunni. Hvers er ábyrgðin? Spurningin er nú hver ber ábyrgð á þessu hneykslismáli. Lyfjafyrirtæk- ið Hoffman La Roche vísar öllum ásökunum í sinn garð á bug og segist vera fómarlamb rangra upplýsinga frá öðrum aðilum málsins. Þessir aðilar séu fyrirtækið Mannesman Italia, sem hafi lofað að f jarlægja eitrið á fullkomlega lögleg- an og ábyrgan máta, þaö er að segja til einhvers fyrirtækis sem tekur að sér að eyða eða geyma hættulegan eiturúrgang. Þess vegna hafi það verið í góðri trú gert að senda frönskum um- hverfisyfirvöldum skeyti um að eiturefnin væru úrsögunni. Sú staðreynd að eitrið hafi þá raunverulega verið niðurkomið, að mestu óvarið, í skúraskriflum í frönsku smáþorpi verði að skrifast á reikning Mannesman Italia, það fyrirtæki hafi verið samningsbundið um að ganga endanlega f rá eitrinu. Italska ríkisstjómin hefur einnig sitthvað um málið að segja og bendir á að samningurinn milli Hoffman La Roche hafi verið samþykktur af ítölsku rikisstjóminni á sínum tíma og fulltrúi hennar hafi fylgst með flutningi eitursins yfir til Frakk- lands. I samningnum hafi verið ákvæði þess efnis að lokaáfangastaður eitur- tunnanna skuli vera leynilegur og þess vegna sé ekki við Hoffman La Roche að sakast þegar það fyrirtæki kvaðst ekki vita hvar eitrið var niöurkomið. Ábyrgðin hvíli því öll hjá Mannesman Italia. Þessa röksemdafærslu neitar franska umhverfismálaráðuneytiö að samþykkja. Franska ríkisstjórnin heldur því fram að eigendur verk- smiöjunnar í Seveso, Hoffman La Roche séu og verði ábyrgir fyrir þeim eitmðu úrgangsefnum sem komi af framleiöslu verksmiðj- unnar, þangað til tryggt sé að þeim hafi verið eytt eða komið til varan- legrar geymslu á ömggum stað. Þetta hafa forráðamenn Hoffman La Roche fallist á eins og fyrr sagði og ætla að sjá til þess að eitrinu verði eytt eða komið fyrir í öruggri geymslu. Eitrið f rá Seveso fannst óvarið í f rönsku smáþorpi Tunnurnar sem innihalda eitrið dioxin frá eiturefnaverksmiðjunni í Seveso á Italíu og hafa verið týndar að undanförnu, fundust nýlega í smá- þorpi í Norður-Frakklandi. Tunnum- ar, sem em 41 að tölu, f undust svo aö segja óvarðar í opnum skúmm sem1 eitt sinn tilheyröu k jötverslun í þorp- inu Anguilcourt-le-Sart. Sá sem benti yfirvöldum á tunnurnar var Bemard Parinqaux forstjóri sorpeyðingar- stöðvar i bænum Saint Quentin, en sá bær er í aðeins 30 kílómetra fjarlægð frá þorpinu þar sem eiturtunnumar fundust. Sorpeyðingarstöðin tók í fyrra á móti tunnunum frá Seveso en fram aö þessu hefur forstjóri hennar neitað að gefa upplýsingar um hvað varð af tunnunum. Strax eftir að tunnurnar fundust vom þær fluttar í örugga geymslu hjá franska hemum og verða þær í vörslu hans þangaö til ákveðið verður hvað gert skuli við þær. Hið svissneska alþjóða lyfjafyrir- tæki, Hofmann La Roche, sem átti verksmiðjuna í Seveso hefur lofað frönskum yfirvöldum að það muni sjá til þess að eitrinu verði eytt eða því komið fyrir á þann hátt sem f rönsk y firvöld geti sætt sig við. Bærinn enn í eyði Þaö var árið 1976 að sprenging varð í eiturefnaverksmiðjunni í bæn- um Seveso á Norður-Italíu. Eiturský breiddist yflr bæinn og varð fjöldi manns fyrir varanlegri eitrun. Bær- inn hefur verið í eyði síðan, afgirtur, og er ÖU umf erð óheimil um nágrenni hans ennþá vegna eitmnar. Eigendur verksmiðjunnar lofuðu að sjá til þess aö eitri því sem af- gangs varð eftir sprenginguna yrði komiðúf úrltaLíu. Verkefnið var fengið í hendur ítölsku dótturfyrirtæki þýska fyrir- tækisins Mannesmann. Italirnir settu sig í samband við sorp- eyðingarfyrirtækið í Saint Quentin í Frakklandi, en forstjóri þess hafði mikinn áhuga á að gera samninga við svo stórt og fjársterkt fyrirtæki. Hann veit þó að hans fyrirtæki getur Svona var ástandið i Seveso á ítalíu árið 1976. Bæjarbúar yfirgáfu bæinn i löngum röðum. Enginn hef- ur getað snúið aftur enn þvi allur jarðvegur í grennd við bæinn er eitraður. hvorki eytt úrganginum né komið honum fyrir í geymslu til frambúðar. Hann fer því á stúfana og leitar að fyrirtæki sem tekið gæti við eiturúr- ganginum af honum. Það fyrirtæki finnur hann í Þýskalandi, en engir skriflegir samningar em gerðir, heldur fær hann hálfgildings munn- legt loforð um að tekið verði við eitrinu. Eitrið f lutt til Frakklands Næst gerist það í ágúst í fyrra aö ítalska ríkisstjórnin krefst þess að eitrið sé flutt úr landi tafarlaust. Hún fær samþykki fyrir þessu hjá Hoff- man La Roche og Mannesman, sem enn á ný hafa samband við Paring- aux í Saint Quentin. Hann vill ólmur græða á þessu og án þess að bíða eft- ir því að skriflegur samningur sé undirritaður við þýska fyrirtækið, sem ætlaði að taka við eitrinu af hon- um, lofar hann að flytja eitrið frá Italíu. Þjóðverjamir fá nú bakþanka og neita að taka við eitrinu af Paring- aux. Hann er engu að síður samningsbundinn um að flytja eitrið til Frakklands og flutningurinn á sér stað 10. september í fyrra. Tunnurn- ar, 41 talsins, eru settar á flutninga- bíl og hann ekur yfir landamærin milli Italiu og Frakklands í Vintimiglia á Miðjarðarhafsströnd inni. Paringaux telur frönskum yfir- völdum trú um að eiturtunnurnar muni einungis verða geymdar i viku- tíma í Saint Quentin en verði síðan fluttar til ábyrgra aðila sem taki að sér endanlega afgreiðslu þeirra. I rauninni veit Paringaux ekki sitt rjúkandi ráð og eftir fimm vikur grípur hann til þess ráðs að fá þær geymdar í skúrunum í Anguilcourt. Skúramir eru í eigu André Droy fyrrum slátrara og honum er sagt að í tunnunum sé tjara. Þaö er kunningi Droy sem hefur milligöngu um málið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.