Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Síða 8
DV. FÖSTUDAGUR 27. MAl 1983. Utlönd Útlönd Utlönd Útlönd Tyrkland: Her ræðst gegn Kúrdum Tvær tyrkneskar hersveitir, sem telja yfir 2000 manns, réöust í nótt meir en 30 kílómetra inn í Irak. Talið er aö hér hafi verið um aðgeröir gegn kúrdískum þjóðernissinnum aö ræða. Kúrdískir skæruliöar hafa haft sig nokkuð í frammi á þessu svæði lengi. Samkvæmt sumum heimildum mun írönskum stjómvöldum hafa verið kunnugt um fyrirætlanir tyrkneska hersins en þaö hefur þó ekki veriö staðfest. Opinberir tals- menn sögðu þó að sveitir lækna og hjúkrunarliðs hefðu verið sendar til svæðisins og er talið að komiö hafi til nokkurra átaka. Landamæri Tyrklands og Irak liggja um svæöi sem að mestu er byggt Kúrdum og kunnugir menn á svæðinu segja að smyglarar og skæruliöar fari þar gjaraa um. Þann 10. maí sl. voru þrír tyrkneskir her- menn drepnir og þrír særðir þegar skotið var á þá yfir landamærin og er talið að kúrdískir skæruliðar hafi veriðþaraðverki. Egyptaland: Fórnarlamba enn leitað I dag halda herþyrlur, mótorbátar og kafarar áfram leit aö likum þeirra sem fórust þegar ferja á Nílarfljóti ■ brann og sökk i fyrrinótt. Talið er aö 317 manns hafi farist. Til þessa hafa 194 lik fundist og flest verið grafin í f jöldagröf á árbakkanum. Slysið varð þegar gaskútur í eldhúsi ferjunnar sprakk. Allri áhöfninni, 42 talsins, var flogið til Kairó og er hún þar i haldi meðan lögreglan leitar skýringa á slysinu. Flestir farþeganna voru Súdanir á leið frá Aswan til Wadi Halfa. Þar sem slysið varð að nóttu tii voru flestir þeir sem komust lífs af fá- klæddir og tókst þeim ekki að bjarga neinu af eigum sínum með sér í land. Átta farast flestarslysi Átta manns létust og tuttugu meidd- ust þegar hraölestin frá Vín til Ostend fór út af sporinu nærri Köin í nótt. Björgunarstörfum lauk snemma í morgun en síðast þegar f réttist var enn ekki vitað hverjir aliir hinna látnu voru. Það voru þrír fremstu vagnarnir ásamt vélarvagninum sem fóru af sporinu eftir að lestin rakst á skriðu sem runnið hafði yfir teinana. Lestar- stjórinn var meðal þeirra sem létust. Skriðan stafaði af miklum rigningum,, sagði talsmaður járnbrautafyrirtækis- ins. Filipus prins ræddi Faikiandseyja- deiiuna við sænska atvinnuteys- íngja. Prinsinnogat- vinnuleysingjarnir Það hellirigndi á öðrum degi heim- sóknar Elísabetar Bretadrottningar og Filipusar prins í Svíþjóð í gær en það kom ekki í veg fyrir að þúsundir manna fylgdust með er drottningin skoðaði gamla miðbæinn í Stokkhólmi og var henni fagnað ákaft. Filipus prins fékk hins vegar aðrar og lakari móttökur er hann skoðaði starfsfræðslumiðstöð fyrir atvinnu- lausa í Stokkhólmi. Hópur nema þar hrópaði ..Argentína, Argentína” og „Malvínas-eyjarnar tilheyra Argen- tínu”. Filipus prins lét sér hvergi bregða en gekk til þeirra sem hrópuðu og ræddi við þá nokkra stund. „Við vildum bara láta þig vita að framkoma ykkar í Falklandseyjadeilunni var röng,” sagði einn úr hópnum, innflytj- andi frá Chile. Prinsinn gerði ekki til- raun til þess að sannfæra þá um hið gagnstæöa, heldur yppti öxlum og gekk á brott. GAJ — Lundi. Umsjón: Ólafur B. Guðnason Aiiar tilraunir til að bjarga mjaidinum Valborgu úr Limafirði i Danmörku hafa reynst árangurslausar hingað til. Mjaldurinn unir sér vel í firðinum þar sem nóg er að bita og brenna. Sérfræðingar hafa hins vegar miklar áhyggj- ur afþviað hitastig sjávar fer nú hækkandi við Danmörku og geti það orðið hvalnum að aldurtila. Hin eðlilegu heimkynni mjaldursins eru í Norður- íshafinu. Japan: HUNDRAÐ MENN TALDIR AF Ottast er að meira en hundrað manns hafi látist í flóðbylgjunum sem gengu y fir norðurstrendur J apans eftir harðasta jarðskjálfta sem þar hefur komið lengi. Þegar björgunarmenn hófu leit að nýju í dögun í morgun var vitaö um 37 sem höfðu drukknaö, 65 voru týndir og taldir af og að minnsta kosti 77 slasaðir. Jarðskjálftinn sem mældist 7,7 stig á Richters-kvaröa varð á eyjunum Honshu og Hokkaido. Nærri 800 hús eyðilögðust eða skemmdust, hundruð Kosningar í Bretlandi: IRA vekur ugg lögreglunnar Bresk lögregluyfirvöld óttast nú aö írski lýðveldisherinn reyni aö myrða einhverja frambjóðendur í kosningun- um sem fara fram í júní. Scotland Yard tilkynnti að lífvörður Margrétar Thatcher forsætisráðherra hefði verið efldur sem og lífvörður þeirra Roy Jenkins, formanns jafnaðarmanna, Michael Foot, formanns Verkamanna- flokksins, og David Steel, formanns frjálslyndra. Talsmaður lögreglunnar sagði að á lofti væru teikn þess að „provisional” armur írski lýðveldis- hersins hygðist grípa til einhverra að- gerða í Bretlandi. Hinn ólöglegi lýðveldisher hefur þegar ráöist á nokkra frambjóðendur á Norður-Irlandi. Talsmenn Scotland Yard nefndu sérlega tvo menn sem lögreglan vildi finna og hafa tal af varðandi þettamál. Svíþjóð: Ríkisstjórnin gagnrýnir þingmann Sænska ríkisstjórnin fordæmdi í gær harðlega Carl Bildt, varnarmálasér- frasðing Ihaldsflokksins, vegna fundar hans með bandariskum ráðamönnum nýverið. Bildt er fulitrúi Ihaldsflokksins í „kafbátanefndinni” svokölluðu og hann hélt til Washington nýverið eftir að síðasta kafbátamál í Svíþjóð kom upp. Hann átti þar m.a. viðræður við starfsmenn í Pentagon og barkafbáta- máliöþará góma. , ^Bildt þingmaður hefur ekki sýnt þá ábyrgðartilfinningu gagnvart landi sínu sem búist er við af fulltrúa í kaf- bátane&idinni,” segir m.a. í hinni óvenjulegu yfirlýsingu ríkisstjórnar- innar. Þaö mun nær einsdæmi í sögu sænska þingsins að ríkisstjórn for- dæmi gerðir einstakra þingmanna. Bildt visar öllum ásökunum ríkis- stjómarinnar á bug og segist ekki hafa rætt neitt það í Washington sem ekki hafi þegar verið gert opinbert í skýrslu kafbátanefndarinnar. Hann segir hér um hefnd Olofs Palme að ræða vegna gagnrýni sem hann sætti af hálfu Ihaldsflokksins nýverið er upplýst var að tillaga Palmes um kjamorku- vopnalaust belti í Mið-Evrópu var nær orörétt unnin upp úr bréfi v-þýska sósíal-demókratans Egons Bahr til Palmes. GAJ/I.undi húsa fóru undir vatn og um 700 smá- bátar sukku eða skemmdust. Meðal þeirra sem urðu fyrir flóð- bylgjunni voru 47 skólaböra ásamt tveim kennurum, sem sópuöust út á sjó. 34 var bjargað þegar í stað en síð- an hafa sex lík fundist og eru þau sjö böm sem enn eru ófundin talin af. Þetta er stærsti jaröskjálfti sem mælst hefur í Japan í fimm ár. Upptök hans voru um 200 kílómetra úti á hafi, undan borginni Akita. Auk dauðsfall- anna hefur jarðskjálftinn valdiö ýms- um skemmdum á mannvirkjum. Kona fer í næstu geimskutluferð Challenger á að lenda aftur 22. júni og mun hún þá fyrst geimferja lenda á sama stað og henni var skotið frá í Flórída. Allar fyrri ferjur hafa lent á Edwards flugstöðinni í Kaliforníu. Sjöunda geimferjuferðin, og sú önnur með geimferjunni Challenger, er áætluð frá Kennedy Space Center í Flórída 18. júní næstkomandi. Fimm manna áhöfn verður á ferj- unni og þar á meðal fyrsta banda- ríska konan sem fer í geimferð, Sally K. Ride. Eitt af verkefnum ferjunnar í þessari ferð verður að lyfta þýsk- byggðum gervihnetti út úr geymslu- rými ferjunnar, og setja hann á braut umhverfis jörðu. Ferjan á síðan að flytja sig í um 300 metra fjarlægð frá gervihnettinum og þaðan á að fanga gervihnöttinn með hinum löngu sjálfvirku örmum ferj- unnar og koma honum fyrir í geymslurými hennar á ný. Sally K. Ride hefur fengið þjálfun I að fjarstýra gervihnettinum, sem á að kvikmynda ferjuna á meðan á aðgerðinni stendur og einnig getur hún stjómað hinum sjálfvirka armi ferjunnar. Sally K. Ride, fyrsta bandariska kouan sem fer í geimferð, sést hér önnur frá hægri í hópi flmm stallsystra sinna fyrlr framan líkan af geimferju eins og þeirrl sem Sally fer með út í geiminn í næsta mánuði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.