Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Side 12
12 DAGBLAÐIÐ-VÍSIR Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLÚN HF. Stjémarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóriogúlgáfustjóri: HÖROUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. , AósldOarritstjóri: HAUKUR HELGASON. j Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. _ I Ritstjóm: SÍÐUMÚLA12—14. SÍMI86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiösla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTIÍTT SÍMI27022. Sími ritstjómar: 86611. -> Setníng, umbrot, mynda-og plölugerð: HILMIR HF., SÍOUMÚLA12. Prentun: ÁRVAKUR HF„ SKEIFUNNI1». ~ Áskriftarverðájnánuði 210 kr. Verðílausasölu 18 kr. Helgarblaö22kr. Ráðherralistinn Nýir menn hafa tekið við ráðherraembættum. Suma þeirra höfum viö séð áður í svipuðum stöðum. Fram á síðustu stundu var óráðið, hverjir yrðu ráðherrar og hvaða ráðuneyti hvor flokkur fengi. Nú getum við litiö á, hvemig til hefur tekizt. Ríkisstjórnin byrjar feril sinn með hörðum aðgerðum. Margar þeirra koma illa við alþýðu manna. Rök stjórn- arinnar eru þau, að slíkar aðgerðir séu bráðnauðsyn- legar. Ríkisstjórnin á það á hættu að verða óvinsæl strax í upphafi. Þegar litið er til embættis forsætisráðherra er Steingrímur Hermannsson til mikilla muna opnari gagn- vart fjölmiðlum en Geir Hallgrímsson hefði verið sem forsætisráðherra. Þessi ríkisstjórn mun þurfa á því að halda, að hún svari fyrir sig fullum hálsi, þegar að henni verður vegið. Steingrímur er líklegur til þess. Vegur ríkisstjórnarinnar í almenningsálitinu mun mikið fara eftir því, hvernig þar tekst til. Eftir er að sjá, hvernig Steingrími ferst forysta ríkis- stjórnar úr hendi að öðru leyti. Steingrímur er mjög mis- tækur. Það hefur ráðherradómur hans áður sýnt. Ekki dugir þessari ríkisstjórn að leggjast undir ok þrýstihópa og hafa fyrirgreiðslupólitík að leiðarljósi. Þá mun almenningur að minnsta kosti illa sætta sig við skertan hlut. Geir Hallgrímsson mun vafalaust sóma sér vel sem utanríkisráðherra. I þeim málaflokki lýkur nú áhrifavaldi Alþýðubandalagsins. Bygging flugstöðvar verður hafin og framkvæmdum í Helguvík haldið áfram án skæruhernaðar annarra ráðherra. Albert Guðmundsson treystir enn stöðu sína með því að fá embætti fjármálaráðherra. Sem ráðherra er frammi- staða Alberts óskrifað blað, en af ferli hans má merkja, að hann vilji hamla gegn háum sköttum á almenning og atvinnuvegi. Albert mun væntanlega hafa jafnvægi í ríkisrekstrinum en ekki freistast til að reka búið með halla, sem æsir upp verðbólguna. Við væntum þess einnig, að við fáum ekki í sumar nýja skatta svo sem „skyldusparnað”. Fremur verði skattar lækkaðir, þegar fram í sækir. Halldór Ásgrímsson er einn efnilegasti maður Fram- sóknarflokksins. Auðvitað ættu það að vera góð skipti að fá hann sem sjávarútvegsráðherra í stað Steingríms. Fátt skiptir okkur meira en meðferð þessa málaflokks. Nú verður Halldór að sýna, að hann setji þjóðarhag ofar fyrirgreiðslu. Jón Helgason hefur reynzt traustur maður. Hann mun þó varla jafnharður af sér og fyrirrennarar hans í stöðu landbúnaðarráöherra. Það væri til bóta, ef drægi úr áhrifavaldi forystumanna þrýstihópa á því sviði. Matthías Á. Mathiesen gæti reynzt betri viðskiptaráð- herra en hann var sem fjármálaráðherra í stjórn Geirs 1974—78. Um Matthías Bjarnason má einnig segja, að góðs má af honum vænta í starfi heilbrigðisráðherra. Hann hefur þar reynslu, og vel er, að hann skuli ekki á ný taka stöðu sjávarútvegsráðherra. Sverrir Hermannsson hefur lengi sem „kommissar” í Framkvæmdastofnun í reynd verið einn „ráðherranna” ef ekki ofar þeim. Hann er athafnamaður, sem gæti snúið vörn í sókn í iðnaðar- og orkumálum. Annars er sú saga auðvitaö óskrifuð enn. Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra og Alex- ander Stefánsson félagsmálaráðherra eru líkleg til að valda vel sínum málaflokkum. Gott er, að ekki var með öllu gengið fram hjá konunum, þótt yngri mennirnir í Sjálfstæðisflokknum hafi verið hafðir út undan við skipt- ingu ráðherrastóla, svo og ráðherrar í fráfarandi stjórn. Haukur Helgason. DV.FÖSTUDAGUR27. MAl 1983. Óttínn við A-flokkana Þegar til átti aö taka, reyndust krat- ar ekki hafa þann stjórnmálastyrk, sem þarf til þess aö mynda ríkisstjóm á heiðarlegum grunni. Allt frá því, aö þeir voru fyrst beönir um aö taka þátt í viöræöum um hugsanlega stjómar- myndun meö Sjálfstæöisflokknum og Framsóknarflokknum, hafa þeirra óskir veriö um ráöherrastóla en minna um aðgerðir í efnahagsmálum. I stuttu máli er stefna flokksins þessi: Fyrir forsætisráöherrastól gerum við allt, fyrir þrjá ráðherrastóla hérumbil allt, en hins vegar ekkert fyrir tvo ráð-, herrastóla. Kratar hafa undanfariö reynt aö gera sér mat úr því, aö óskað var þátt- töku þeirra í stjórnarmyndun. Vitan- lega er þaö svo, aö ekki var nauðsyn- legt aö hafa þá meö. Hins vegar var þaö mat margra, aö ríkisstjórnin heföi meiri breidd með þátttöku Alþýðu- flokksins — einkanlega væri styrkur hennar meiri meðal verkalýösfor- ingja, en ennþá eru margir forystu- menn launþegasamtakanna alþýðu- flokksmenn. Hins vegar er rétt aö benda á þaö, aö engir af höfuðforingj- um launþega eru úr rööum alþýöu- flokksmanna, — öll fjölmennustu laun- þegafélögin lúta forystu annaöhvort sjálfstæöismanna eöa komma. Og Framsókn ræður býsna miklu úti á landi. Á að endurtaka 74 ti! 78? Hrakfarir ríkisstjórnar Geirs Hall- grímssonar í kosningunum 1978 voru slíkar, aö eölilegt er, að menn séu hik- andi við aö mynda ríkisstjórn á svipuð- Haraldur Blöndal um grunni. Þetta var jafnframt ein af ástæðum þess, aö menn vildu fá krata inn í stjómina. En var reynslan af rík- isstjórn Geirs svo slæm? Þaö er staðreynd, aö henni tókst að ná verðbólgu verulega niöur og var hún komin niöur í 26% á árinu 1976. Þá hófust hins vegar pólitísk verkföll og var þeim aöallega stjórnaö af Birni Jónssyni, sem fyrst og fremst vildi ná sér niöri á Olafi Jóhannessyni. Oraunhæfir kjarasamningar voru gerðir, og þegar gripið var í taumana hófst heiftarleg barátta ASI og BSRB undir forystu Björns gegn ríkisstjórn- inni, sem tókst, og ríkisstjómin beiö af- hroð. Fyrst og fremst var það vegna aðgerðanna í febrúar 1978. En hvaö hefur sagan kennt? Kjörorð andstæðinga þeirrar ríkis- stjómar var: „Sanuiingana í gildi.” Það slagorö er nú orðið aöhlátursefni um allt land. Engin launamaöur trúir framar foringjum Alþýöuflokks og Al- þýöubandalags, þegar þeir tala um samningana í gildi. Blekkingin tekst ekki nema einu sinni. Hitt er annaö mál, aö visst sam- bandsleysi var milli foringja verka- lýösráös Sjálfstæðisflokksins og sjálf- stæöismanna í ríkisstjórn. Menn hafa lært af þeim mistökum og þau munu ekki endurtaka sig. Á öðrum grunni. Fyrir nokkru síöan lýsti Geir Hall- grímsson ástandinu í þjóömálum og A „... Enginn launamaður trúir framar " foringjum Alþýðuflokks og Alþýðubanda- lags, þegar þeir tala um samningana í gildi. Blekkingin tekst ekki nema einu sinni.” urffciiic vicfifvVSfiNS mm^m^m m wllffvlv 1 gær, 23. maí, mátti heyra í hádegis- útvarpi athyglisveröa frétt, einkan- lega athyglisverða þeim illa þokkaða hópi landsmanna, sem lifir á þvi að breyta hinni einnig illa þokkuðu sauö- skepnu í hráefni ýmsum ágætum fyrir- tækjum til úrvinnslu og sölu. Þessi frétt var um kápusaum úr íslenzkum sauöskinnum á vegum SlS. Kápumar á aö sauma í Noregi til sölu á Sovét- markað. Hinn norski verktaki fullyrti, að islenzk sauöskinn væru beztu sauð- skinn veraldar til efnis í slíkar kápur, og ekki nóg meö að hann væri himinlif- andi yfir að fá að sauma úr þessu dýrð- arinnar efni, heldur sá hann Norö- mönnum opnast þama leið inn á skinn- klæöamarkaöinn í Sovét, sem Islend- ingar höföu, aö mér skildist, lokaö fyrir þeim fram til þessa. Sem sagt: SIS bjargar ekki einungis íslenzkum nauöþurftarmönnum illa séöum, hjartagæzka þess kemur einnig „frændum vorum” í Noregi til halds og trausts. Gleði hins norska skinnasaum- ara var slik, aö hann hugöi sér falið að sauma fimm þúsund kápur, en í kvöld- fréttum útvarpsins var þaö leiðrétt og flutt niður í fimmtán hundruð. Og ekki lýgurSlS. En skyldi ekki framleiðendum sauð- skinna á Islandi hafa brugðið dálítið við þessa frétt? Eöa þá því láglauna- fólki hérlendis, sem vænzt hefir vinnu við saum á þessari dýrindis vöru? Og þaö núna, þegar forráðamenn þjóöar- innar keppast við, hver um annan þveran, að hóta atvinnuleysi, ef lág- kjallarinn Jakobína Siguröardóttir launamenn heröi ekki enn sultarólina, taki kjaraskeröingum meö glööu geöi og góöum þegnskap til bjargar sökkv- andi þjóðarskútunni, og svo framveg- is. Nú er þaö engin nýlunda í okkar þjóöarsögu, fremur en allri veraldar- sögu, aö framleiðendur hráefna beri minnst úr býtum þeirra sem nærri þeim koma til nýtingar. En því þótti mér sem bóndakonu svo athyglisverö þessi sauðskinnafrétt, að ég veit nokkur dæmi þess aö í haust leið tóku sumir bændur gærumar af sláturfé sínu heim frá sláturhúsunum, rökuðu þær og seldu ullina, og var hún þó ekki í neinu geipiverði. Hvaö þeir gerðu við skinnin er mér ókunnugt um, en áreiöanlega voru ekki saumaðar kápur úr þeim. Svo lágt víu- þá veröiö í haust á „beztu sauðskinnum veraldar”. Ekki trúi ég þvi, aö SIS sé með öllu ókunnugt um þetta leiöindatiltæki nokkurra framleiöenda sauöskinna. En trúlega „SlS bjargar ekki einungis íslenzkum nauðþurftarmönnum illa séðum, hjarta- gæzka þess kemur einnig „frændum vorum” í Noregi til halds og trausts....”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.