Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Síða 13
DV. FÖSTUDAGUR 27. MAI1983. 13 Hver segir að ekki takist gott samstarf með forustu ASÍog hinni nýju ríkisstjóm? varð sú lýsing tilefni þess, að dr. Gunnar heimtaöi umsögn Seðlabanka Islands um fullyrðingar Geirs. Sú um- sögn hefur borist upp í ráðuneyti, en forsætisráöherrann hefur ekki séð ástæðu til að birta þetta svar. Og nú virðist staðreyndin sú, að Geir lýsti öllu of van — ástandið hefur aldrei ver- iö verra í landsmálum frá því að lýð- veldi var stofnað á Islandi. Fer þá að hrynja undan dýrðarstöpl- inum, ef sú stjórn, sem sérstaklega var mynduð til þess að bjarga þjóðinni frá smán, skuli hafa komið öllu í strand, sóað öllu og svo kyrfilega mistekist í landsstjórn, að neyöarástand blasir viö. Það er skemmtileg tilhugsun aö vita af þessum dómi sögunnar í bækur framtíðarinnar! Sú ríkisstjórn, sem nú tekur við, byggir á nokkuö öðrum grunni heldur en fráfarandi ríkisstjórn. Það, sem fyrst og fremst sker sig þó úr, er, aö hún er mynduö um málefni en ekki nenn. Þaö er samiö um hlutina, áöur :n gengiö er til samstarfs og þess 'egna er von til þess, aö vel takist. En hvað með A-flokkana? Þeir, sem óttast samstarf Fram- sóknar og sjálfstæðismanna, halda að þessir tveir flokkar hafi svo lítil áhrif innan verkalýðshreyfingarinnar, að útilokað sé fyrir þá aö ná tökum á efna- hagsmálum. Þeir sem þetta segja trúa því, að foringjar A-flokkanna muni öðru sinni beita launþegasamtökunum póhtískt. Eg hef enga trú á því, að slíkt gerist. I fyrsta lagi eru allt aðrir menn við völd í Alþýðusambandinu en áður. Ás- mundur Stefánsson er fyrst og fremst faglegur foringi launþega, sem gerir sér grein fyrir því, að launþegasam- tökin verða að vinna með stjórnvöld- um en ekki öfugt. Ásmundur er þing- ræðissinni, en í því felst, að hann viöur- kennir rétt Alþingis til þess að leggja línurnar, þótt hann hins vegar vilji hafa með hönd í bagga. Og hver segir, að ekki takist gott samstarf með hon- um og hinum nýju ráðherrum? A.m.k. er fullur trúnaður með honum og Geir Hallgrímssyni. Þá þarf ekki að taka fram, að Björn Þórhallsson, varaforseti ASI, og einn áhrifamesti leiðtogi launafólks bæði 'í röðum sjálfstæðismanna og meðal andstæöinga flokksins, mun aldrei taka þátt í því, að stéttarfélög- um sé beitt á pólitískan hátt gegn ríkis- stjórn, hver sem hún er. Ég hef því enga trú á því, að ASI verði aftur teymt til siðlausra pólitískra verkfalla. Þvert á móti tel ég, aö með hinni nýju ríkisstjórn og forystu ASI geti tekist gott samstarf byggt á trausti eins og var á viðreisnarárunum. Og þegar áhrifum A-flokkanna í verkalýðshreyfingunni sleppir, þá er tæpast aö búast við harðri stjórnar- andstöðu. Flokksbrotin tvö eru ekki til stórræðanna og Alþýðubandalagið veröur næstu mánuði önnum kafið við að svara til saka fyrir viðskilnaöinn. Hann var hryllilegur. En framsóknar- menn mega þó eiga það, að þeir eru til- búnir að þrífa eftir sig. Haraldur Blöndal. er vandalitið að hagræða tölustöfum á þann veg, að ljóst verði að um mis- skilning litt reikningsfærra einstakl- inga úr bændastétt hafi verið að ræða í þessum tilfellum. Samt sem áður mun sú staðreynd verða hrakin, hversu nærfærnislega sem tölvur eru mataðar til hagstæðrar útkomu fyrir kaupendur hráefna, að það voru og eru enn þeir sem framleiða hráefnin og vinna lægst launuöu störfin við úrvinnslu hráefna, sem snúa Gróttakvöm auðkýfing- anna, hvort heldur um er að ræða auð- hrínga eða einstaklinga. Það gætu allir vitað, ef þeir vildu ogþyrðu aðhorfast í augu við þá staðreynd, jafnvel þó þessi blessaður Fenju- og Menjulýður trúi því ekki, að mögulegt sé að breyta þessu án þess að þjóöarskútan sökkvi. En hvað er þaö nú aftur, sem alltaf er verið að fræða okkur fávísa um í sam- bandi við styrjaldimar um markaöi fyrir íslenzkar vömr? Er þar ekki hver sjálfum sér næstur, með tilliti til þjóðarhagsmuna aðsjálfsögðu? _ Frumkvöðiar róta sór I leiðréttingu í kvöldfréttum út- varpsins um þennan sauðskinnakápu- saum i Noregi var þess ekki getið, aö rangt hefði verið farið með það, að þessi saumaskapur opnaði Norðmönn- um leið inn á samskonar markað i Sovét og Islendjigar sætu nú að. Er þessi markaðastyrjöld þá ef til vill eitt- hvað, sem ekki er til nema á pappírum og í upplýsingum til fáráðra neytenda og vinnuþræla? Þegnskaparlýðsins, sem kannski sif rar eitthvað í barm sér, en herðir samt sultarólina þjóðarskút- unni til uppihalds? Undanfarið hefir nokkuð veríð rætt um þann skort á þegnskap, sem fram hafi komið i af- stöðu nokkurra Mývetninga gegn ásókn SIS um land í Mývatnssveit und- ir sumarbústaðahverfi til handa starfsfólki þessa fyrirtækis. Einn pennaglaöur SlS vinur var hræddur um að frumkvöðlar samvinnuhreyfingar- innar kynnu að rótast í gröfum sínum vegna þessarar úrkynjunar afkom- enda þeirra í Mývatnssveit. Nú hef ég persónulega enga trú á því, að dauðir íslenzk sauðskinn beztu sauðskinn veraidar? menn róti sér mikið af sjálfsdáðum, hvort sem þeir hafa verið hugsjóna- menn eða ekki i lifanda lifi. En sé þaö tilfellið, að sUkt geti átt sér staö, þá er ég hrædd um að þessir frumkvöðlar samvinnuhreyfingarinnar hafi æði oft rótað sér síðan gengiö var frá þeim í moldu. Og sem þjóðlegir bissnissmenn hljóta þeir að hafa velt sér allt að hálf- um hring um hádegið í gær, þegar þeir heyrðu þessa frétt um elskusemi arf- taka þeirra í samningunum við norsku frændur okkar viðvík jandi Sovétmark- aðnum fyrir sauðskinnakápur. Því varla róta sér dauðir menn, nema þeir viti hvað er að gerast ofan moldar og svarðar, heyri, hugsi, skilji. En þeir rísa ekki upp, þó þeir bylti sér kannski. Sem betur fer, ef til vill. Því þrátt fyrir allt sem þeir lögðu á sig forðum fyrir hugsjónir sínar, er ég ekki viss um að þeir legðust á sveifina með þeim lýð, sem snýr kvöminni. Og ef þeir gerðu það ekki eru þeir bezt komnir rótlausir þar sem þeir eru, með allri virðingu fyrir sögu þeirra og ævistarfi. En aö þeir semdu af sér um markaöi á rammíslenzku hráefni, því trúi ég varla. Ekki að óreyndu. 24. mail983 Jakobina Sigurðardóttir rithöfundur, Garði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.