Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Blaðsíða 15
DV. FÖSTUDAGUR 27. MAI1983. Lesendur Lesendur Enn um snjó- bræðslukerfí Jón E. Hjartarson skrifar: Tilefni þess aö ég sendi þessar línur er aö í lesendabréfi DV þann 9. mars síöastliöinn skrifar Sigurður Grétar Guömundsson grein og segir þar orörétt: „Engin innlend plaströr eru heppileg í snjóbræðslukerfi.” Já, hann þurfti ekki einu sinni að taka þaö fram að þaö væri hans persónulega álit, honum finnst sýnilega aö þaö sem hann segir hljóti aö vera rétt og ekkert annaö. En uppruna þessarar greinar S. G. tel ég vera aö fyrr í vetur þegar umræöa var hvaö mest vegna þess aö flugvellir voru lokaöir vegna hálku þá kom frétt í DV frá Gunnari Ásgeirssyni hf., aö mig minnir, þess efnis að þeir flyftu inn rör í snjóbræöslukerfi og meö var mynd sem sýndi hvar veriö var aö leggja slíkt kerfi í flugbraut í Sviss ef ég man rétt. (Ef misminni er um innflytjanda og land þá biöst ég velviröingar á því). En eftir þessa frétt hringdi sonur minn í DV og sagöi þeim þar á blaöinu að einnig væri hægt aö fá rör í þessu skyni hér á landi þar sem við hefðum hafið framleiðslu á rörum í snjóbræðslukerfi á síðasta ári og svo kom sú frétt nokkru seinna í DV og þökk fyrir það. Að framanskráðu hlýt ég aö taka það til mín þar sem S. G. reynir aö telja fólki trú um að engin innlend plaströr séu heppileg í slíkt kerfi. Ekki er ég alveg sammála S. G. að engin innlend plaströr séu heppileg í snjóbræðslukerfi, því fyrirtæki mitt, Piastmótun sf.,hóf framleiöslu á plast- rörum úr þýsku hráefni á síöastliðnu ári sem er sérstaklega ætlaö fy rir snjó- bræöslu, geislahitun í gólf og jarðvegs- kyndingar fyrir útiræktun. I Þýska- landi hefur veriö 30—80% aukning í notkun þessara röra á milli ára nú siöustu árin og illa trúi ég því að aukningin væri slík ef þau reyndust ekki vel. Þá þekki ég Þjóöverja ekki rétt. Sem dæmi get ég nefnt aö einn mjög stór dreifingaraöili í Þýska- landi, sem hef ur kynnt sér f ramleiðslu- getu okkar og vörugæði, hefur verið í viðræöum viö okkur aö undanförnu um að kaupa rör héöan. Þessi sami aöili seldi á síöastliönu ári rör úr þessu sama efni sem nam 4.500 tonnum. Þótt S. G. sé aö reyna að gera lítið úr gæðum og hæfni okkar röra á þessu sviöi í skjóli þess aö hann hafi veriö fyrstur og búinn aö vinna mest viö þessar lagnir þá er ég alveg viss um þaö, af þeirri viðkynningu sem viö höfum haft af tæknimönnum, bæöi pípulagningameisturum, verkfræðing- um og tæknifræðingum, síðan við hófum þessa framleiöslu, aö hann er ekki einn hér á landi sem kann til slíkra verka. S. G. nefnir þrjú atriöi sem mestu máli skipta. Þaö er þrýsti- þol, hitaþol og þjálni. Eg vil bæta fjóröa liö viö sem er verð. Eg held að þaö skipti lfka máli. Þaö viöurkenni ég aö sænsku Pex rörin eru mýkri en Polyprapylen (PP) rörin okkar en ég hygg aö það sé upptalið sem þau hafa framyfir PP rörin. S. G. nefnir hvorki hita né þrýstiþol en PP rörin þola 85°C og f jögra kg þrýsting miðað við 50 ára líftíma. Nú, ef menn vilja skerpa á plönum, út af miklum snjó, þá má hleypa 95°C heitu vatni í 10—12 klst í senn inn á PP rörin. Um fjórða liðinn sem eru krónurnar vil ég bæta við að verð frá okkur er kr. 14,39 fyrir utan söluskatt og er mér ekki grunlaust um aö þar hafi munaö allt aö 50% og þar kann skýringin ef til vill aö liggja á skrifum S. G. S. G. telur sitt fyrirtæki hafa lagt yfir 95% allra snjóbræðslu- kerfa á landinu ef svo er þá hlýt ég aö vera ánægöur ef PP rörin frá okkur og önnur sem á markaðnum hafa veriö á síöasta ári eru ekki nema 5% þvi þá er markaöurinn miklu stærri en ég hef reiknaö meö miöað við þá tugi þúsunda metra sem héöan voru seldir en þeir voru nokkuð margir. ■ Hérgefur aö Hta snjó/ausa gangstétt, þökk sé snjobræös/ukerfi. FERMINGARBÖRN URÐU AF SKEYTUM vegna slælegrar þjónustu ritsímans á hvítasunnudag Halldór Pálsson hringdl: Eg vil kvarta yfir þjónustu rit- símans. Halldór Pálsson telur að þjónusta rítsímans hefði mátt vera meirí á hvítasunnudag. Teiur hann að margur hafi ekki getað sent fermingarbörnum skeyti þann dag vegna stutts opnunartima ritsimans. Um hvítasunnuna fermast fjölmörg böm um allt land og vilja vinir og skyldmenni vissulega senda þeim hamingjuóskaskeyti í tilefni af merkum tímamótum. Ritsíminn auðveldar þvi miöur ekki fólki að gleöja unglingana. Á hvitasunnudag hugöist ég senda fermingarbarni skeyti. Hringdi ég linnulaust frá klukkan 1—3 í ritsimann án árangurs. Að lokum hringdi ég á simaskrá og innti stúlkurnar þar eftir því hví það væri svona erfitt að ná í ritsímann. Var mér tjáð þar aö ritsiminn væri einungis opinn frá kl. 11—2 þennan dag. Svo margir vildu senda skeyti þennan dag aö engin leið var að ná sambandi. Finnst mér ókurteisi hjá ritsímanum aö gera ekki ráöstafanir til að auðvelda þeim sem vilja gleöja fermingarbömin aö senda skeyti á þessum degi. Sérstaklega bitnar þetta á börnum úti á landi. FÖSTUDAGSKVÖLD 1 Jl! HÚSIIMUI í JI5 HÚSINU ■9 ^ OPIÐ í ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 10 í KVÖLD KYNNINGARVERÐ I Á KODAK-FILMUM \ * -/ FRAMKÖLLUNARÞJÓIMUSTA “™»Í5? Allt fyrir útigrillið “ húsgögn á markaðsverði reiðhjól Munið okkar hagstæðu greiðslu- skilmála j|i /A A A A. A A Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 C3 □ C EI' ÍA ZJ caufjpr OD ÍZ 3 c: LJ LJUfjjj ]-! • uairiuuuMHiiiíiiaiii'; Sími 10600 0PIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 9-12 MEÐAL EFNIS í ÞESSARI VIKU y%stá Jóhanna Sveinjónsdóttir QLiyyyQQD leg verðlaun!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.