Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1983, Page 32
SENDIBÍLASTÖÐ KÓPAVOGS SKEMMUVEGI50 ' Símsvari á kvöldin og um helgar AUGLÝSINGAR JL SÍÐUMÚLA33 SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 qm £ RITSTJÓRN 000 I 1 SÍÐUMÚLA12—14 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1983. „Las sæmi- legafyrirpróf” — segir Gylfi Zoéga sem fékk meteinkunn, 9.68, á stúdentsprófi ÍM.R. Gylfi Zoega, nýstúdent úr M.R., Dux, Scholae, fékk hæstu einkunn á stúdents- prófi sem gefin hefur veriö síðan tuga- kerfi var tekiö upp við þann skóla. Ný- stúdentar voru útskrifaðir í gær frá skólanum og fékk Gylfi meðaleinkunn 9.68. Sló hann þar með met Olafs Jóhanns Olafssonar frá því í fyrra um 0.01. Gylfi sagði í samtali við blaöamann DV að hann hefði ekki sérstaklega stefnt að því aö verða dúx en eins og allir aðrir hefði hann stefnt að því að þurfa ekki að segja eftir próf: „ég hefði getað gert betur.” Gylfi var spurður að því hverju hann þakkaði þennan frábæra námsárangur. Hann sagðist ekki getað svarað því en bætti við eftir umhugsun: ,,Ég las sæmilega fyrirpróf.” Næsta vetur hyggst Gylfi Zoega setjast á skólabekk í Háskóla Islands og nema þar þýsku. ás Geymdi amfetamín í verjum íiðrumsér Maður á fertugsaldri var um hádegisbilið í fyrradag úrskurðaður í 21 dags gæsluvarðhald eftir að hafa verið tekinn með „verulegt magn” af amfetamíni á Keflavíkurflugvelli í fýrradag. Hann var þá að koma frá Kaup- mannahöfn og við tollskoðun fannst amfetamínið á honum. Síðar kom í ljós að hann var með meira af efninu í verj- um sem hann geymdi í iðrum sér. Fíkniefnadeild lögreglunnar er nú með málið til frekari rannsóknar.-JGH Knútur skipaður ráðuneytisstjóri Knútur Hallsson skrifstofustjóri hefur verið skipaður ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu frá 1. ágúst næstkomandi. Starfinu gegndi áður Birgir Thorlacius en umsækjendur um þaö voru ellef u talsins. Þá hefur Ámi Gunnarsson deildar- stjóri verið skipaður skrifstofustjóri menntamálaráðuneytisins frá sama tíma. -JSS Samningana í gitdil Verkalýðsforystan er nú 6 upprifjunarnámskeiði í róttœkni og slagorðafram- leiðslu. „Rotum ríkis-, geira". Atvinnuleysið: Skólafólk á rétt á bótum — uppfylli það tiltekin skilyrði Þeir sem hafa unnið 425 dag- .í’yrsta er að fólk uppfylh þessi um fólki helstu upplýsingar sé eftir vinnutíma síðustu 12 mánuði, eru í skilyrði,” sagði Eyjólfur Jónsson, því leitað. Það er hlutverk stéttarfé- stéttarfélagi og hafa náö 16 ára aldri, forstöðumaður atvinnuleysistrygg- íaganna að meta stöðu félagsmanna eiga rétt á atvinnuleysisbótum fái ingasjóðs, „annað aö það hafi skráð sinna og eðlilegast aö snúa sér til þeir ekki vinnu. Lágmarksbætur eru sig hjá vinnumiðlun og sé með vott- þeirra. Þau ein hafa endanleg svör.” um 2.400 krónur á mánuði en mestu orð um það og þriðja að þaðsnúi sér Þetta sagði Gunnar Helgason, for- bætur um 9.650 krónur fyrir bam- til stéttarfélags síns, sem metur stöðumaöur Ráðningarstofunnar. lausaneinstakling. stöðu viðkomandi og sér um alia út- Loks var bent á það, á skrifstofu Skólafólk vinnur margt þrjá til reikningaogútborgunbótanna.” eins stéttarfélagsins, að fólk sem vill fjóra mánuði á sumrin og síöan um DV hefur verið bent á að Ráön- leita eftir atvinnuleysisbótum flýtir jól og áramót. Þannig nær það um ingarstofa borgarinnar hafi í til- fyrir því að fá svör um stöðu sína 700 dagvinnutimum á ári. Sá sem teknu tilviki tregðast viöaðgefaupp- komiþaðmeðvottorðvinnumiðlunar hefur þann tímafjölda að baki síð- lýsingarumréttarstöðuskólanema. og vottorð vinnuveitenda, sem sanni ustu 12 mánuði fær um 4.000 krónur í „Það er erfitt fyrir okkur að eiga dagvinnutíma þess síöustu 12 bætur á mánuði nú, fái hann ekki frumkvæði í því efni, hér eru stans- mánuðl vinnu. lausar biöraðir alla daga en við gef- HERB . Geysiharður árekstur varð á milli Dalhatsu og Cortlnu á gatuamótum Klapparstígs og Laugavegs nm klukkan hálfátta í morgun. Við áreksturinn hentist Cortinan á kyrrstæðan bO við Klapparstíginn. ökumaður Daihatsuins var fluttur á slysadeild Borgarspítalans. Áreksturinn varð með þeim hætti að Daihatsuinn ók niður Laugaveginn en Cortinan var að koma upp Klapparstíginn. -JGH/DV-mynd: S. Besta geimskutlumyndin Góður bunki kominn Þegar hefur safnast saman á rit- stjóm DV góður bunki mynda af flugi. geimskutlunnar í síöustu viku. Eins og fram hefur komiö efnir DV til sam- keppni um bestu myndina af flugi geimskutlunnar. Þrenn verðlaun verða veitt, að fjárhæð þrjú, tvö og eitt- þúsund krónur. Skilafrestur er til 1. júní en rétt er að minna á að einungis áhugamenn í ljósmyndun hafa rétt til þátttöku. Myndir skal senda á ritstjórn DV Síðumúla 12—14, merkt ljósmynda- keppni. -óm Ásmundur Stefánsson forseti Alþýðusambandsins: Hrikalegar kjara- skerðingar „Það er ljóst að þessar aðgerðir fela í sér hrikalegar kjaraskerðingar sem eru langt umfram skerðingu þjóðar- tekna,” sagði Ásmundur Stefánsson forseti Alþýðusambands Islands í morgun um aðgerðir ríkisstjórnar- innar. „Og það er kannski ekki síður mikilvægt og alvarlegt að samnings- rétturinn er greinilega afnuminn í ákveðinn tíma og síðan sniðinn þröngur stakkur i áframhaldinu.” Ásmundur vitnaði í samhljóða sam- þykkt miðstjómar Alþýöusambands Islands á fundi í gær. Þar segir meðal annars að aðgerðir rikisstjómarinnar sýnist að meginefni snúast um afnám samningsréttar um kaup og kjör og kaupmáttarskerðingu, tvöfalt til þrefalt meiri en nemur samdrætti þjóöartekna síðastliðin tvö ár. Virðist stefiit að því að um næstu áramót verði kaupmáttur um fjórðungi lakari en á síðasta ári. Ekki verði heldur séð að mótuð hafi verið samræmd atvinnu- stefna þannig að enn á ný sé kjara- skerðing eina svarið til þjóðarinnar. Mótmæhr verkalýöshreyfingin þessum aögerðum harðlega og sam- þykkir miðstjórnin að boða til for- mannaráðstefnu 6. júní næstkomandi um lániö. Ekki vildi Ásmundur vera með neina spádóma um hvort og þá til hvers konar aðgerða yrði gripið af hálfu verkalýðshreyfingarinnar. Þetta yrði allt rætt á formannaráðstefnunni. JBH. „Rothögg fyrir launafólk” — segir Kristján Thorlacíus, formaður BSRB um komandi ef nahagsaðgerðir ,JÉg vil minna á samhljóða og ein- róma ályktun stjóma BSRB og ASl þar sem varað var við rothöggi 1. júní til að leysa efnahagsmálin. Það högg hefur nú verið látið ríða,” sagði Kristján Thorlacíus, formaöur BSRB, i samtali viö DV í gær um fyrirhugaðar aögerðír ríkisstjórnar- ínnar. „Hér er um að ræða mjög alvar- lega kjaraskerðingu hjá launafólki í landinu. Við lítum mjög alvarlega á að vísitölubætur skull vera afnumd- ar í tvö ár. Eg bendi á að á sama tíma verður lánskjaravísitala óskert. Launafólk er svipt 14% samn- ingsbundinni verðlagsuppbót 1. júní, það er boðuð 18% gengislækkun og auövitað verða þar tilheyrandi verð- lagshækkanir. Meðal annars muau verða hækkanir á opinberri þjónustu og sveitarfélögunum er gefið sjálfs- forræði um verðlagningu á þeirri þjónustu sem þau láta í té. A móti þessu koma aðeins 4% hækkanir 1. október. Bann viö gerö kjarasamninga fram í febrúar 1984 litum við alvar- legum augum. A sama tíma og kjör launafólksins eru skert þá er boðuð frjáls verðmyndun. Það gefur auga leið að minnkaður kaupmáttur leiðir til almenns samdráttar og skapar því aukna hættu á atvinnuleysi”. Hvemig munu þín samtök bregð- ast viö þessum aðgerðum? , JÉg vil nú ekki segja neitt um það en sú stórfellda kjaraskerðing sem verður, ofan á rýrnandi kaupmátt sem þegar er orðinn, hlýtur aö koma launafólki í nauðvöm.Aðþvíervarð- ar okkar samtök þá bendi ég aftur á ályktun BSRB og ASI þar sem segir að þjóðin verði að vinna sig út úr vandanum en ekki hörfa ávitsam- dráttar, langvinnra kjaraskerðinga og atvinnuleysis. Við höfum boðaö til sameiginlegs fundar stjómar og samninganefndar BSRB eftir viku af júní til að ræða stööuna,” sagði Kristján. -PÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.