Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Blaðsíða 2
2 DV. FIMMTUDAGUR 9. JUNI1983. • Trúlofunarhringar • PÓSTSENDUM. Kúptir, allar breiddir. Hvítagull-deman ts- sko rn i r og m eö hvítagullsbandi. Sendum nýjan litmyndalista. Jón og Óskar Laugavegi 70 Reykjavík. Sími 24910. ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER MEST ER SALAN BEST bhasalan blik TOPPBÍLL AMC EAGLE ÁRG. 1980 Ekinn 36.000 km Verð kr. 330.000,- YKKAR TRAUST - ER OKKAR SÓMI BÍLASALAN BLIK SÍÐUMÚLA 3-5-105 REYKJAVÍK SÍMI: 86477 Opið frá kl. 10—19 /augardag og sunnudag. \ GOLF Póstsendum' ÚTILÍF GLÆSIBÆ - SÍMI 82922! GOLFPOKAR GOLFKERRUR GOLFPOKASTATÍFÍ GOLFSKÓR , GOLFHANSKAR KURR MEÐAL ÞÝSKRA VEGNA REGLUGERDAR Kraf ist er atvinnuleyf is til handa erlendum leiðsögumönnum Reglugerö sú sem samgönguráöu- neytiö setti í marsmánuöi síöastliön- um um eftirlit með skipulögöum hóp- ferðum erlendra aöila til Islands hefur valdið nokkrum kurr meðal þýskra feröamanna. Munu margir hópar hafa hótað að hætta við ferðir hingað vegna ákvæða í hennL Svæðisstjóri Flugleiða í Frankfurt, Davíð Vilhelmsson, sagöi í samtali við DV að samtals um 100 manns heföu afpantað feröir sínar til Islands í sumar og fleiri hefðu hótað hinu sama. Astæðan er sú aö ákvæöi eru í reglugerðinni um að slíkir hópar ferðamanna verði að leggja fram eigin tryggingar og að leiösögu- menn þeirra hafi atvinnuleyfi á Islandi. Einn stærsti ferðaheildsali i Vestur-Þýskalandi, sem hingaö til hefur boðið upp á dýrar Islandsferðir með sérmenntuðum fararstjórum þýskum, hefur að sögn Davíðs hótað að hætta öllum Islandsf erðum ef ekki fæst á málinu lausn. Davíð sagði aö margir þeirra hópa, sem til Islands hafi farið, hafi iöulega hvorki verið tryggðir né meö fararstjóra sem uppfylltu nauðsynleg skilyrði. Aðurnefndur ferðaheildsali mun hafa fengið bréf frá Félagi leiðsögu- manna með reglugerðinni þýddri en ótúlkaöri og brugöist við með fyrr- greindumhætti. Júlía Sveinbjamardóttir, formaður Félags leiðsögumanna, sagði í viðtali viö DV aö hér væri greinilega á ferð óþarfa titringur. „Það er alger misskilningur aö Félag leiösögumanna sé að eyði- leggja eitthvað fyrir þýskum ferða- sölum með bréfinu sem það sendi. Við erum bara að kynna þeim reglu- gerðina og mér finnst skrýtið aö félagið sé gert ábyrgt fýrir einhverju sem er óvinsælt. Ferðamálaráð sam- þykkir fararstjórana, það á að ganga úr skugga um að þeir hafi atvinnu- leyfi og getur sett skilyrði fyrir að ferðamannahópurinn hafi íslenskan leiösögumann með starf sréttindi. Það hefur mikið að segja að hér er stéttarfélag leiðsögumanna. Það er því ekki óeðlilegt að islenskum leið- sögumönnum sé komið á framfæri. Við höfum aöeins starfsréttindi til fimmáraísenn. Þaö er mikið af eftiriitslaúsum hópum sem ferðast um landið og það er ekki hægt að líkja saman ferðum hér innanlands og erlendis því að þar er ekki farið um friðuð og óbyggð svæði eins og hér eru svo algeng.” Júlía sagði einnig aö varla myndu Islendingar hætta við aö fara til útlanda, bara vegna þess að þeir þyrftu aö fá útlendan leiðsögumann. Lúðvíg Hjálmtýsson, forstjóri Feröamálaráðs, sagði að í reglugerð- inni væri i raun ekkert sem ekki hefði verið til áður í lögum og reglum, en var þá ekki framfylgt. „Sumir segja aö hún muni stöðva ferðir útlendinga til Islands en það finnst okkur heldur grýlukennt. Menn verða alitaf aö hegða sér eftir lögsögu þess lands sem þeir dvelja í. Eg vil ekkert segja um það hvort hópar manna hyggist hætta viö að koma hingað vegna reglugeröarinnar. Það sem skiptir máli er að í henni segir að hverjum hópi skuli fylgja íslenskur leiðsögumaður. Burtséð frá þessari reglugerð verður ævinlega að sækja um atvinnuleyfi fyrir þá útlendinga sem vinna hér á landi,” sagði Lúövig Hjálmtýsson. PÁ. spr**, ***** Breytingarávinnslu Sementsverksmiðjunnar: Kol í stað Geimskutlan Enterprise fór frá íslandi laust fyrir klukkan 11 í gærmorgun. Frá Kefla- víkurflugvelli var hún flutt til Goose Bay í Kanada og þaöan átti að fljúga henni til Ottawa áður en til Bandaríkjanna yrði komið. Myndina tók Heiðar Baldursson í fyrradag. svartolíu Sementsverksmiðja ríkisins á Akra- nesi hefur nú tekið á móti fyrsta kola- farminum frá Bandaríkjunum. Var hann tæp 3800 tonn og skipað upp á Grundartanga. Fyrirhugað er að verk- smiðjan noti kol sem eldsneyti fram- vegis í stað svartolíu. Gylfi Þórðarson, forstjóri Sements- verksmiðjunnar, sagði í viötali viö DV að þessi breyting hefði lengi staðið til. Breytingaframkvæmdir í verksmiðj- unni hafa staöið yfir í eitt ár og nemur kostnaöur við þær 35 til 38 míHjónum ó núvirði, að sögn Gylfa. Byggt hefur verið móttökuhús viö verksmiðjuna, auk færibandahúss yfir í annað hús, einnig nýbyggt, sem hýsir mikla kvöm. Þar eru kolin möluð í duft. Kolin eru frá Bandarikjunum en eru keypt hingaö i Hollandi gegnum Shell. Bandarísk risaskip sjá um flutninginn yfir hafið en Eimskip flytur þau hingað til lands og átti fyrirtækiö lægsta tilboð í flutninginn. Gylfi sagði að verð kola væri mjög hagstætt nú, ekki hvað sist eftir siðustu svartolíuhækkun í vikunni. „Við erum sennilega þeir síðustu í Vestur-Evrópu sem fara yfir í kolin. Þau eiga ekki að valda meiri mengun en olía, ekki sem orð er á gerandi. Það er von á nýrri rafsíu við brennsluofn verksmiðjunnar og er hún í samræmi við ströngustu kröfur sem í gildi eru í Evrópu. Hún á að geta verið komin í gagnið næsta vor.” Ekkikvaðst Gylfi eiga von á f jölgun í starfsliði verksmiðjunnar vegna þessarar breytingar á vinnslunni. Kolafarmur sá sem skipað var upp á Grundartanga mun endast í tvo mán- uði og er ætlunin að hef ja framleiðslu siðar í þessum mánuði með hinu nýja eldsneyti. Ný APEX-fargjöld hjáAmarflugi — til Amsterdam og Diisseldorf Arnarflug hefur f engiö samþykki st jórnvalda fyrir nýjum APEX-far- gjöldum á flugleiðunum mliu Keflavíkur og Amsterdam og Keflavikur og Diisseldorf. Þau eru 20-30% lægri en lægstu elnstakl- ingsfarg jöldin sem í boði hafa verið ó þessum flugleiðum. Fargjaldið á Amsterdamleiðinni er 8.851 króna fram og til baka og eru skilmálar i meginatriðum þeir að farbókun og útgáfa farseðils verða að gerast samtimis, i síðasta lagi 14 dögum fyrir upphaf ferðar. Ekld er unnt að breyta farbókunum og ekkl unnt að fá endurgreiðslu fyrlr ónotaðan farseðil eftir að ferð erhafin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.