Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Page 6
6
DV. FIMMTUDAGUR 9. JUNI1983.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Frá Þykkvabæ:
Onýtum kartöfl-
um skilað
til Grænmetisverslunarinnar
Tvær danskar kartöflur ásamt fram-
leiðslumiöa frá dönskum yfirvöldum
komu á borðið hjá okkur á dögunum.
Það sem vekur athygli við þessa
„sendingu” er slæmt útlit kartafln-
anna og síðan ártal á framleiðslumiö-
anum. Þar stendur að kartöflur þessar
séu uppskera frá árinu 1981. Tegund er
hausa, stærð 35—45 mm.
Við höfðum samband við fram-
kvæmdastjóra kartöfluverksmiðj-
unnar í Þykkvabæ, Friðrik Magnús-
son, en í Þykkvabæinn fór hluti af þess-
um dönsku kartöflum.
„Við skiluðum þrjátíu fimmtíu kílóa
pokum fyrir helgina til Grænmetis-
verslunarinnar af sendingunni,” sagði
Friðrik. „Kartöflumar voru fluttar til
landsins í kæligámum en hluti af send-
ingunni hefur frosið á leiðinni og er þar
af leiöandi ónýtur. Hvað varöar ártalið
á framleiðslumiðanum hef ég enga trú
á öðru en að þetta sé uppskera frá síð-
asta ári, 1982. Sjálfsagt einhver mann-
leg mistök á ferðinni varöandi stimpl-
unámiðana.”
Friðrik sagði að dönsku kartöflumar
færu í framleiðslu á hálfsoönum kart-
öflum sem seldar eru í lofttæmdum
umbúðum.
öll framleiðsla í verksmiðjunni
gengur vel, aö sögn framkvæmdastjór-
ans, unnið er tíu tíma á dag, fimm
daga vikunnar.
„Við hyggjumst auka afköstin hér
um 120—150% nú á næstunni, höfum
fengið nýjan skrælara, afköstin aukast
um leið og hann kemst í gagnið.”
IDV hefur veriö greint frá því að við-
ræður hafa verið á milli forráðamanna
kartöfluverksmiðjunnar í Þykkvabæ
og Grænmetisverslunar landbúnaðar-
ins um eignaraðild ríkisins að kartöflu-
verksmiöjunni. Friðrik Magnússon
var spurður hvað þeim viðræðum liði.
„Viðræður hafa legið niðri í tvo eða
þrjá mánuði,” svaraði hann. „öll
sóknin um eignaraðild er þeirra meg-
in, ekki af okkar hálfu.”
-ÞG.
„Dettur ekki í hug að
veríð sé að selja
okkur tveggja ára
gamla uppskeru”
— segir Páll Ragnar Ólafsson hjá Grænmetisverslun
landbúnaðarins
„Eg er búinn að senda fyrirspum til
Danmerkur vegna ártalsins á fram-
leiðslumiðanum og fékk staðfest að
þetta er byggt á misskilningi,” sagði
Páll Ragnar Olafsson, skrifstofu-
maöur hiá Grænmetisverslun landbún-
aðarins. „Ég held að engum detti í hug
að verið sé að selja okkur tveggja ára
gamla uppskeru af kartöflum.”
Páll er spurður um skemmdu kart-
öflumar sem endursendar voru frá
Þykkvabænum.
„Þessi sending kom til landsins 17.
mai síðastliðinn. Samtals voru þetta
um 16 tonn af kartöflum. Hingað komu
þær í kæligámum, alls þremur, en þær
eiga aö geymast við 4—7 gr. hita. Hita-
stig fór niður í 0 gr. í einum gáminum
og kartöflumar frusu. Við urðum ekki
varir við skemmdir á kartöflunum en
fórum að athuga málið þegar haft var
samband við okkur frá verksmiöjunni í
Þykkvabæ.”
Rúmlega fimm tonn af kartöflum
voru í hverjum gámi. Páll var spurður
hvort allt það magn væri ónýtt.
„Verkstjórinn hér segir að það sjái á
42 sekkjum, rúmlega tveim tonnum,”
svaraði hann.
-ÞG.
Eimskip:
Kom fram á
síríta að
hitastig
fór niður
„Það mun hafa komiö fram á sírita,
sem skráir niður hitastig á kæligámun-
um, að hitastig á einum kartöflugámn-
um fór niöur undir frostmark,” sagði
Þórður Sverrisson, fulltrúi fram-
kvæmdastjóra Eimskips, um kartöflu-
sendinguna frá Danmörku.
„Það er mikið eftirlit meö kæligám-
unum hjá okkur, en þetta er eins og
hvert annað óhapp sem sjaldan kemur
fyrir.”
Þórður var spurður hver væri bóta-
skyldur vegna frosnu kartaflnanna?
„Það er verið að vinna í þessu máli í
tjónadeildinni hjá okkur og eins í
Grænmetisversluninni.” -ÞG.
Jógúrtmálið:
„Sáttur við árang-
urinn, þeir eru komnir
niður á jörðina,”
— segir Haraldur Gíslason, samlagsstjóri
KÞ á Húsavík
„I bili er ég bara nokkuö sáttur við
árangurinn í þessu jógúrtmáli. Eg
held að þeir séu komnir niður á jörð-
ina núna,” sagði Haraldur Gislason,
samlagsstjóri KÞ á Húsavík, í sam-
tali við DV., JÉg tel að okkar sjónar-
mið hafi komist inn hjá þeim. Þeir
segjast ætla að setja jógúrt í femur
og þaö er töluverður árangur. Eg tel
þaö sjálfsagða kurteisi við neytendur
að selja þeim eins ódýra jógúrt og
hægt er. Það má líka segja að það sé
árangur að þeir máttu hækka jógúrt
um 31 prósent nú síðast en hækkuðu
hana „aðeins” um 19,26%. Þaö er í
sjálfu sér árangur.
Þó að þeir séu stórir þarna fýrir
sunnan eiga þeir ekki aö komast upp
með aö segja að fólk vilji þetta en
ekki hitt. Við viljum selja mikið af jó-
gúrt sem auðvitað er hagstætt fyrir
bændur. Og þegar jógúrt verður
komin í pappafernur á höfuðborgar-
svæðinu, þar sem 75% af mjólkur-
neyslunni er, eykst salan til muna,
trúiég.” -þg.
j 63 -
4on.<Bafðow*9
jOpnir iöswa
ia6m,uw*'z -,93
\ ****íLoöSVOð' ^ A
12
.661
™onnarí
trf
'SSiSSSíSS-.i
193
Ekki var hœgt að hringja iNjörO, Pái eOa RagnheiOiþviþær siöur
vantaOi. DV-mynd Þó.G.
Einkennileg símaskrá:
Sumar síðurnar
vantaði og aðrar
voru tvíprentaðar
Hún var skrýtin símaskráin sem
barst inn á borö til okkar um daginn.
Blaðsíður 208—225 vantaöi i hana en
hins vegar höfðu blaðsíður 193—208
veriðtvíprentaðar.
Að sögn forráðamanna Pósts og
síma kemur alltaf eitt og eitt gallaö
eintak fram en þeim er hægt að skila
í afgreiðslu símaskrárinnar og fá ný
i staöinn. Afgreiðslan i kjallara
gamla pósthússins veröur opin út
næstu viku en eftir þann tíma verður
símaskráin afgreidd á símstööinni
við Austurvöll.
Bent skal á aö hægt er að kaupa
símaskrár og kostar stykkið 150 kr.
-sa.