Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Side 7
DV. FIMMTUDAGUR 9. JUNI1983. 7 Neytendur Neytendur Danska grautnum og súrmjólkinni er blandað saman i hlutföllunum einn á móti þremur og útkoman er ,,/ógúrt". Og verðið er ekki amalegt, 12,50 kr. hver500 g. DV-myndÞó. G. „Jógúrt” úr dönskum graut og súrmjólk Nú á dögum hinnar dýru jógúrtar, sem okkur er gert aö kaupa, eru sjálf- sagt einhverjir sem freista þess aö búa til sina eigin, þó ekki væri nema til neyslu í heimahúsum. Eina slíka upp- skrift rak á f jörur okkar um daginn og fylgir hún hér á eftir. Jógúrt þessi er búin til úr súrmjólk og dönskum grautum sem byr jað er aö flytja til landsins. Grautarnir eru frá Brenderup í Danaveldi og fást hér fimmtegundir; jaröarberja-, sveskju-, apríkósu-, epla- og rauðgrautur. Grautnum er blandaö saman við súr- mjólkina í hlutföllunum einn á móti þremur og þá er „jógúrtin” tilbúin. Við reyndum þessa uppskrift sjálf og voru dómar tilraunadýranna misjafn- ir. Sumum fannst jarðarberjajógúrt okkar gefa MS jógúrtinni lítið eftir. Aðrir fussuðu hins vegar og sveiuðu og vildu ekki sjá hana aftur, sögðu hana væmna. Flestum bar þó saman um að jógúrt okkar væri mun sætari en sú frá Mjólkursamsölunni. Veröið á „jógúrtinni” er hins vegar lægra en út úr búð. Sé blandað í áður- nefndum hlutföllum kosta 500 g aðeins kr. 12,50 en jarðaberjajógúrt frá MS kostar kr. 32,20. Grauturinn kostar víðast hvar kr. 36,90 (epla-, apríkósu- og sveskju-) og kr. 43,20 (jarðarberja- og rauögrautur) hver lítra ferna. Súrmjólkin kostar svo 19 kr. Grautinn má geyma í 18 mánuöi frá framleiðsludegi án þess að hafa hann í frysti, en eftir að búið er að opna fem- una má geyma hana í fimm daga í kæliskáp. Svo segir a.m.k. á fernunum en í nýlegum tilraunum reyndist geymsluþol opnaðrar fernu vera mun meira, eða allt að mánuður. Þá var okkur bent á aðra uppskrift að jógúrt. Er hér um að ræða blöndu af súrmjólk og danskri kirsuberjasósu frá Árósum. Nægir að setja eina mat- skeið af sósunni út í disk af súrmjólk. Kirsuberjasósan kostar yfirleitt tæpar 40 kr. í stórmörkuðum og er þessi „jógúrt” þvíheldur ódýrari. -sa. Stöndum í stórhreingemingu ALLT AÐ 3JA ÁRA BIRGÐIR ALLTÁAÐ SELJAST Bjóðum 20% afs/átt af allri g/ervöru. Jö OS>\£> m n •• m . / n r _ __ Skólavörðustíg 8, sími 18525 Vorum að fá til landsins örfáa TOYOTA COROLLA ARG. 1982 Bilar þessir eru nýir, ókeyrðir, árgerð 1982 og vegna góðra samninga eru þeir á mjög hagstæðu verði Opið laugardag og sunnudag kl. 10—19 REYKJAVÍK Aðalfundur Verð á jógúrt í desember I desember 1982 fór fram verðkönn- un á nokkrum algengum matvörum í Kaupmannahöfn og Reykjavík á veg- um V erðlagsstofnunnar. Þar sem umræður hafa verið miklar að undanförnu um verð á jógúrt á höf- uðborgarsvæðinu og bann við sölu á ódýrari jógúrt frá Mjólkursamlagi KÞ á Húsavík sakar ekki að rif ja upp verð- mismun á þessari afurð í áðumefndri verðkönnun. 1 desember kostaði jógúrt með ávöxtum, 180 g dós, 10,45 krónur í Reykjavík. I Kaupmannahöfn var verðið þá 4,15 krónur. Mismunur 151,8%. I dag kostar 180 g jógúrtbox frá Mjólkurbúi Flóamanna 14,50 krón- ur, 38,76% hærra en var í desember. Gengisbreyting og verðbólga í Dan- mörku hefur einnig haft áhrif á verð dönsku jógúrtarinnar. Aðalfundur Hafskips hf. 1983verður haldinn á morgun,föstudag í salarkynnum Domus Medica v/Egilsgötu. Fundurinn hefst kl. 17:00. Stjórn Hafskips hf. Hluthafar eru vinsamlegast beönir aö hafa meö sér aðgöngukort og atkvæðaseðla, sem send voru út meö fundarboði, til afhendingarvið innganginn. -ÞG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.