Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Blaðsíða 8
8
DV. FIMMTUDAGUR 9. JUNI1983.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Margrét Thatcher, Ieiðtogi thaldsflokksins og forsætisraóherra Bretlands síðustu
fjögur árin, lét það verða sitt síðasta verk í kosningabaráttunni að biðja bresku
þjóðina um „ótvirætt umboö” til þess að stjórna landinu.
Kosningar í Bretlandi:
ÚTUT FYRIR
SIGURÍHALDS-
FLOKKSINS
—en hef ur kosningabandalagið náð Verkamannaf lokknum?
I dag ganga Bretar til kosninga eftir
þriggja vikna harða kosningabaráttu.
Skoðanakannanir, sem birtast í fjölda
blaða í Bretlandi í dag, sýna enn, eins
og þær hafa sýnt alla kosningabarátt-
una, aö Ihaldsflokkur Margrétar
Thatcher f orsætisráðherra hefur mikið
forskot á hina flokkana tvo, Verka-
mannaflokkinn og kosningabandalag
Jafnaðarmanna og Frjálslyndra. Hins-
vegar ber skoðanakönnunum ekki
saman um það hvort kosningabanda-
lagið hafi nú farið fram úr Verka-
mannaflokknum í fylgi eða ekki. Sam-
kvæmt sumum könnunum hefur kosn-
ingabandalagið 2% forskot á Verka-
mannaflokkinn en aðrar segja Verka-
mannaflokkinn hafa 1% meira fylgi en
kosningabandalagið. I sumumkönnun-
um er farið bil beggja og flokkamir
tveir sagöir jafnir.
Veðurspáin í Bretlandi í dag segir
að veðrið verði gott, hlýtt, en skúrir
öðru hver ju. Það má því búast við mik-
illi kjörsókn, en kjósendur em nú um
43 milljónir talsins. Eftir kjördæma-
breýtingu þá sem gerð var nýlega og
nú er kosiö samkvæmt í fyrsta sinn,
hefur þingmönnum einnig f jölgað lítil-
lega, og em þeir nú 15 fleiri en sátu á
seinasta þingi.
Búast má við fyrstu tölum frá Bret-
landi undir miönættið í nótt, og ef að
líkum lætur, munu þær sýna að Ihalds-
flokkurinn muni mynda næstu stjóm
og forsætisráðherrann verði Margrét
Thatcher.
Afríka:
Def/ur settar niöur
innan Einingarsamtaka
Fulltrúar skæmliðahreyfingar-
innar Polisario, frá hinni fyrrum
spænsku nýlendu Vestur-Sahara
hafa yfirgefið fund Einingarsam-
taka Afríkurikja. Þar meö hefur
lokiö, i bili aö minnsta kosti, deilum
um aðild þeirra, og leiðtogar Afríku-
rík ja gátu i gær haldið með sér fund,
fyrsta leiðtogafund afriskra þjóðar-
leiðtoga undir merkjum Einingar-
samtakanna síðan 1981. Síðan hafa
tvær tilraunir til fundarhalda farið
út um þúfur og um tima leit út fyrir
aö þessi, sú þriðja, myndi gera það
einnig.
Aðeins einn afrískur þjóðarleiðtogi
er ekki viðstaddur fundinn í Addis
Ababa. Það er Gaddafi, leiðtogi
Líbýumanna, sem vill með þessu
mótmæla fjarvem fulltrúa Polisario-
hreyfingarinnar, en hann hefur
styrkt hreyfinguna með ráðum og
dáð í sjö ár, allt frá þvi hersveitir frá
Marokkó hemámu landið, eftir brott-
förSpánverja.
Formaður samtakanna nú er
Mengistu Haile Mariam, forseti
Eþíópíu.
Sovétríkin:
Nýrfram-
kvæmda-
stjóri
hjálpar-
sjóðs
Sohhenytsyn
Andrei Kistyakovsky, sem þýtt
hefur fjölda vestrænna ritverka á
rússnesku og búsettur er i Moskvu,
hefur fallist á að taka að sér stjóm
á hjálparsjóði Alexanders Solz-
henitsyn fyrir fjölskyldur sam-
viskufanga í Sovétríkjunum.
Kistyakovsky tekur þar með við
hlutverki Sergei Khodorovich sem
var handtekinn í april og kæröur
fyrir landráö. Fjöldi manna sem
starfað hefur fyrir hjálparsjóð
Solzhentsyns hefur veriö handtek-
inn upp á síðkastiö í herferð st jórn-
valda í Moskvuá hendursjóönum.
Formaður sjóðsstjórnar er
Natalia Solzhenitsyn, eiginkona rit-
höfundarins, og á blaðamanna-
fundi sem hún hélt vegna þessa
máls fyrir tveim dögum sagði hún
að dómar yfir andófsmönnum í
Sovétríkjunum hefðu þyngst til
muna í stjómartíð Andropovs og
væru nú sambærilegir viö það sem
gerðist á Stalínstímanum. „Undir
þessum kringumstæðum sýnir
Kistyakovsky mikla fómarlund,.”
sagðiNatalia Solzhenitsyn.
Frakkland:
Mitterand ítrekar stuðning
viö meöaldrægar eldflaugar
Mitterand Frakklandsforseti kom
fram í 40 minútna sjónvarpsviötali í1
franska sjónvarpinu í gærkveldi og
varði þar valdaferil sinn og sérlega
efnahagsaðgeröir þær sem stjóm
hans hefur beitt sér fyrir. Sérlega
var til þess tekiö, að Mitterand itrek-
aði stuðning sinn við ákvörðun Nato-
landanna um uppsetningu meðal-
drægra eldflauga í Evrópu, ef
samningar tækjust ekki við Sovét-
menn um takmörkun slíks vopna-
búnaöar.
Varðandi frönsk kjamorkuvopn
sagöi Mitterand aö ekki kæmi til
greina aö telja þau meö í viöræöum
stórveldanna, þar sem þau væru á
engan hátt sambærileg við vopna-
búnaö stórveldanna. „Þessi vopn
gera Frökkum kleift aö horfast í
augu við vandamál sín, "sagðifor-
setinn.
Mitterand varði efnahagsaðgerðir
stjómar sinnar og sagði ekkert geta
forðað Frökkum frá því aö takast á
við vandann. Varðandi gagnrýni úr
röðum Sósíalistaflokksins sagöi
Mitterand, ,,ég er forsetiFrakklands
og blanda mér ekki í vandamál
st jórnmálaflokka.”
í sjónvarpsviðtalinu við Mitterand
Frakklandsforseta var hann meðal
annars spurður um götuóelrðir þær
sem orðið hafa í Frakkland síðustu
vikumar. Forsetinn svaraði þvi til að
það væri á valdi hans að taka ákvarð-
anir en ekkl þeirra sem reyndu að taka
sér það vald með ofbeldi á strætum
borga.