Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Side 18
18
DV. FIMMTUDAGUR 9. JUNI1983.
Viðskipti
Viðskipti
Viðskipti
Viðskipti
SH-frystihúsin með 3000 tonna framleiðsluaukningu ífyrra:
Karfi nærri þriðjungur
framleiðslunnar
— helmingi hærra hlutfall en árið áður
Þrátt fyrir að frystihús innan Sölu-
miðstöövar hraðfrystihúsanna hafi
framleitt liðlega þrjú þúsund tonnum
meira í fyrra en árið áður, eða alls
91,342 tonn af frystum sjávarafurðum,
átti sér staö óhagstæð þróun í frystingu
hvað afkomu frystihúsanna varðar.
Það á sínar augljósu skýringar ef
gluggað er í ársskýrslu SH sem lá
frammi á nýafstöönum aöalfundi.
Fryst fiskflök og fiskblokkir voru 78,7
prósent heildarframleiðslunnar, sem
áður er getið, en þar af voru þorskflök
og blokkir aöeins 37,2% af heildar
flaka- og blokkarframleiðslunni.
Hins vegar jókst frysting karfa-
BÚR og Akur-
eyringar í
efstu sætum
hjáSH
Ef boriö er saman
framleiðsluverömæti frystihúsa
innan SH i fyrra kemur röð sex
efstu húsanna fljótt í ljós og hér
látum við tonnin fylgja, fyrir þá
sem vilja skoða samhengi tonna
og verðmætis, og loks er getið
hlutdeildar hvers húss af heildar-
framleiðslu SH-húsanna í
krónum talið.
flaka, sem er mun ódýrari afurö en
þorskafurðir, um 22,4% miðað við árið
’81 og nam alls liðlega 21 þúsund tonn-
um í fyrra. Ef karfablokkin er tekin
með eru karfaafurðir samtals tæplega
30 prósent framleiðslunnar. Þaö er
hvorki meira né minna en helmingi
hærra hlutfall en árið 1980, er hlutur
þeirra var 15 prósent. Þá var hlutur
þorskflaka og blokka hins vegar 57,8
prósent á móti liölega 32 prósentum í
fyrra.
Vestfirðir hæstir
Ef litiö er á framleiðslu SH-húsanna
eftir landshlutaskiptingu SH-manna
kemur í ljós að mest var framleiðslan
á Vestfjörðum, næst í Reykjavík og
austanfjalls, þá á Norðurlandi, Vest-
mannaeyjum, Suðurnesjum, Aust-
fjörðum, Hafnarfirði, Akranesi og
Snæfellsnesi.
43,7 prósent
verðmætaaukning
I fyrra nam útflutningur SH iiölega 80
þúsund tonnum, að verðmæti 2.002,5
milljónir króna (cif). Að magni til
minnkaði útflutningurinn um 9,1
prósent en að verðmæti til jókst hann
um 43,7 prósent.
Enn sem fyrr voru Bandaríkin hæst
meö liðlega 37 þús. tonn, þá Sovétríkin
og Bretland í kringum 15 þús. tonn
hvort og svo Frakkland, V-Þýskaland,
Japan og Belgía frá þrem þúsundum
niður í tæplega eitt þúsund tonn.
AKur|%Rf|ug
> S
Fiskiðjuver BÚR 142,4
Útgerðarfél. Akureyringa hf. 140,6
íshúsfélag Bolungarvíkur hf. 95,1
íshúsfélag isfirðinga hf. 91,9
Vinnslustöðin hf. Vestmeyjum 88,1
Fiskiðjan hf. Vestmeyjum 86,2
? ® 1
O «1
f- S? £
6,614
5,7X5
3,815
3,815
4,552
4,310
6,95
6,86
4,64
4,48
4,30
4,20
..
......... 'J!T
Heildarverömæti framleiðslu Bæjarútgerðar Reykjavíkur og Utgerðarfélags Akureyringa hf. er nær hið sama
hvað varðar frystar afurðir. Samkvæmt töflunni hér að framan er verðmæti hvers tonns hjá Utgerðarfélaginu rétt
um 15% meira en hjá BÚR. Á myndinni standæþeir Vilhelm Þorsteinsson, t.v. og Gisli Konráðsson, framkvæmda-
stjórar Útgerðarfélags Akureyringa hf., við merki félagsins.
KB endurreisti gamla
mjólkursamlagið
I Borgarnesi hefur á undanförnum starfsemi í sambandi við byggingar.
árum þróast talsverður byggingariðn- Má þar til nefna fyrirtæki eins og Vír-
aður, byggingavörusala og verktaka- net hf. sem er eini framleiðandi nagla
: * .T.; f
og saums hér á landi, Borgarplast h.f.
sem framleiöir einangrunarplast,
Loftorku h.f. með steypustöð og ein-
Blómleg
byggingavöru-
versluná
„krossgötunum”
— Borgarnesi
ingahúsasmiði, BTB með bílskúrs-
hurðasmiöi, trésmiðjur og ýmsa iön-
verktaka og eina verkfræðistofu, þ.e.
Sigurðar Thoroddsen.
Allt þetta þróast í Borgarnesi og þá
einkum vegna þess að bærinn stendur á
krossgötum milli landsfjórðunga, auk
þess að þjóna Borgarf jarðarhéraði og
Snæfellsnesi, aukDalasýslu.
Núna nýlega opnaði Byggingavöru-
deild Kaupfélag Borgfirðinga mikla
byggingavöruverslun. Aður hafði
deildin verið til húsa í kjallara gamla
kaupfélagshússins, gegnt hótelinu. Var
þar bæði þröngt og óþénugt að versla
með slika vöru og voru óánægjuraddir
uppi með þá þjónustu.
Ákveðið var að ráðast í endurbætur
á gamla mjólkursamlaginu, þegar
samlagið flutti í ný og glæsileg húsa-
kynni.
„Við segjum að hér megi fá allt frá
fyrsta naglanum til gólfteppisins,”
sagði hinn nýi deildarstjóri, Sigurður
Eiríksson. Hann var ráðínn til deildar-
innar frá Karistad I Svíþjóð. Þar starf-
aði hann hjá byggingavörufyrirtæki
einu og annaöist þar um útflutning
fyrirtækisins til annarra landa.
Sigurður Eiriksson
deildarstjóri hjá
Kf. Borgfirðinga
Sigurður Eiríksson, 26 ára
gamall, fæddur og uppalinn í
Vestmannaeyjum, tók nýlega
við starfi deildarstjóra Bygg-
ingavörudeildar KB í Borgar-
nesi. Sigurður starfaði í Karl-
stad í Svíþjóð um 2 ára skeið
hjá Kanik Ánasságen (Hafnar-
nessmyllan) en það fyrirtæki
vinnur og selur unnar trjávörur
hvers konar. Sá Sigurður þar
um útflutningsmál fyrirtækis-
ins. Hingað kom hann í april,
ráðinn til KB. Sigurður er gagn-
fræðingur frá Reykjavík.
GissurKristinsson
framkvæmdastjóri
Tommaborgara
Gissur Kristinsson tók nýver-
ið viö framkvæmdastjórastarfi
hjá veitingahúsinu Tomma-
borgurum við Grensásveg í,
Reykjavík. Hann er 26 ára að
aldri og hefur lokið námi í
hótelrekstri við Florida Inter-
national University í Banda-
ríkjunum. Þá var Gissur einnig
við nám og störf hjá Burger-
king, einni stærstu skyndibita-
keðju vestra. Hann hóf störf h já
Tommaborgurumá sl. ári.
Sveinn
Hálfdánarson
innheimtustjóri
Kaupf. Borgfirðinga
Sveinn Hálfdánarson, 43 ára
gamall, hefur verið ráöinn inn-
heimtustjóri Kaupfélags Borg-
firöinga. Sveinn er fæddur
Skagamaöur, nam prentiön í
Reykjavík, starfaöi um hríð í
prentsmiðju á Akranesi eða þar
til hann stofnaði Prentborg h.f.
í Borgamesi 1967. Rak Sveinn
það fyrirtæki allt fram til síð-
ustu áramóta aö hann sekli það
Eggert Hannessyni, prentara
úr Hafnarfirði. Til KB réðst
Sveinn þann 15. febrúar sl.
Viðskipti:
Ölafur Geirsson og
Gissur Sigurðsson.