Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Blaðsíða 40
40
DV. FIMMTUDAGUR 9. JUNt 1983.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Uiana bleytir nýja bikiníið.
Kankast á.
KARL OG
DÍANA
BUSLA
Það er greinilega ekkert grín aö vera
frægur úti í hinum stóra heimi. Hvert
fótmál manna vaktað og aldrei hægt að
vera öruggur um sig. En ljósmyndar-
ar, eins og aðrir, verða að strita fyrir
sínu daglega brauöi og sjáum við hér
afrakstur langrar vaktstöðu eins
þeirra með aðdráttarlinsuna ómiss-
andi.
Myndimar eru teknar þegar Karl
Bretaprinsog hún Díana hans voru í
fríi á Bahamaeyjum eftir heimsóknina
til Ástralíu nú á dögunum. Þær upplýs-
ingar fylgja myndunum að pariö hafi
verið staðráðið í að n jóta frísins og hafi
þess vegna sent soninn heim. Þau hafi
síðan skemmt sér sjálf ein og áhyggju-
laus á ströndinni.
En margt fer öðruvísi en ætlað er.
Eljusamur ljósmyndari lá í leynum og
hér sjáum við hvað ljósmyndarinn sá
með aðdráttarlinsunni sinni.
DV-mynd Einar Óiason.
Unglingastaður opn
aður í Kópavogi
D 14 heitir nýr unglingaskemmti
staður sem opnaður var í Kópavogi
nýlega. Vilhjálmur Svan, eigandi D
14, sagöi aö þetta væri diskótek með
spilakössum og fleira i þeim dúr og
tæki 300 manns. Vilhjálmur sagöi
einnig að amerísk skólarúta, sem
hann hefði nýlega fest kaup á, yrði
notuð í tengslum við staðinn á þann
hátt að gestir yrðu sóttir og keyrðir
heim aö balli loknu. Staðurinn verð-
ur opinnfjóradagavikunnar.
Shirlay MacLaine og dóttirá ferð.
Sérkennileg
uppeldis-
aðferð
yröi ekki segist hún hafa sagt við
Leikkonan góðkunna Shirley
MacLaine sést hér á ferö með dóttur
sinni Sachito sem hún hefur litt
flaggaö opinberlega. Shirley segist
sjálf hafa verið ofvernduð i æsku og
vildi vera viss um að dóttir sin fengi
ekki svípað uppeldi. Til þess að svo
Sachito, þegar hún var úti að leika
sér að endilega aö fara og leika þar
sem umferðin væri sem hættulegust.
Deila má um hvort hér sé of langt
gengið.
Linda Gray ánægð eftir flóttann.
Flóttinn
mikli
.Hún Linda Gray, sem flestir vita
hvað starfar, lagði á flótta nú fyrir
skömmu. Ekki undan óðum glæpa-
mönnum eða grimmum hundum, held-
ur æstum aödáendum sem plöguöu
hana í tíma og ótíma, út af því að hún
dirfðist að skilja við manninn sinn.
Hvað eftir annað fékk hún upphring-
ingar frá fólki sem vældi í símann hjá
henni: ,Jíkki gera þetta, Linda,” eða:
„Fylgdu ekki slæmu fordæmi hennar
Victoriu PrincipaL”
Hún hafði snör handtök, pakkaði nið-.
ur og leigði sér hús með engum síma.
Aðspurð, hvemig á þessum fiutningum
stæði, sagði hún: „Eg vil bara komast
burt frá þessu fólki sem er með nefið
ofan í hvers manns koppi og er að
skipta sér af hlutum sem því koma
ekkert við.”