Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Blaðsíða 41
DV. FIMMTUDAGUR 9. JUNl 1983. 41 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Landakortið, rétt útfyl/t. MENNT ER MÁTTUR Viö Islendingar erum gjarnir á aö hreykja okkur yfir því hve almenn menntun er hér á háu stigi, og ekki að ástæðulausu. Nýlega bárust fréttir af skoðanakönnun sem framkvæmd var í háskólanum í Miami í Bandaríkjunum. Könnun þessi var gerð til þess að at- huga landafræöikunnáttu nemenda og voru niðurstöðumar stórkostlegar, í neikvæðri merkingu. Til að byrja með vissu 7 prósent stúdenta ekki hvar Atlantshafið er, en eins og allir Islend- ingar vita er Miami á austurströnd- inni. Reynt var að auðvelda stúdentunum könnunina með því að láta þá fá óút- fyllt landakort og þeir beðnir að merkja tilgreinda staði inn á; og voru niðurstöðumar skrautlegar. Höfðaborg lenti í Suður-Ameríku. Nýja Gínea, sem allir Islendingar vita að er norður af Astrah'u, taldist vera annaðhvort í Mið-Ameríku eða í Kanada, en 41 prósent vissi ekki hvar Los Angeles er. Heldur hýmaði yfir mönnum þegar í ljós kom að 95,4 prósent vissu hvar Sovétríkin em. Sú gleði var skamm- vinn þegar ljóst var aö 42 prósent vissu ekki hvar London er og Falklandseyjar höfnuöu undan Skotlandi. Eins og allir Islendingar vita þá eru eyjarnar und- an ströndum Argentínu. Menn komust, furðulegt nokk, að þeirri niðurstöðu að þörf væri meiri landafræðikennslu við Miami-háskóla. I túninu heima EKKIER ALLT SEM SÝNIST Slúðurberar vítt og breitt hafa haft á nógu að kjammsa síðan Grace, furst- ynja af Monaco, dó í fyrrasumar. Það nýjasta nýja af þeim vettvangi er að hið rómaða ástarævintýri hennar og Rainier fursta ásínumtíma hafiver- ið eitt allsherjar sjónarspil. Sagan segir að ekki hafi verið um að ræða ást við fyrstu sýn, eins og marg- auglýst var, heldur ást eftir langa og stranga yfirvegun. Staöa mála var víst þannig þegar þau kynntust að fursta- dæmið Monaco var oröið illa statt f jár- hagslega og til þess aö rétta úr kútnum þurfti Rainier á ærlegri auglýsingu að halda. I því skyni brá hann sér til Ame- ríku og kom sér í samband við Grace sem þá var ein vinsælasta leikkonan þarvestra. IUu tungumar segja að síöan hafi þau komiö sér saman um hagræðisgift- ingu. Hún hafi fengið titil, fína stöðu og fleira sem fylgdi, en hann hins veg- ar þá auglýsingu sem Monaco þurfti til aörétta úrkútnum. AUt gekk þetta eins og í sögu og allir gleyptu við lyginni eins og nýju neti. Þannig varð tU sagan um prinsessuna sem nældi sér í prins og hálft konungs- ríki og Ufði hamingjusöm til ævUoka, eða þannig. Sauðburðurinn aftur og nýbúinn. Laugardalnum. Steinsnar fyrir ofan hún hafi með þeim vakandl auga. Þessi skemmtUega mynd var ekki klndina og lömbin er ein mesta Annars er hætta ó því að litlu lömbin tekin upp tU heiöa heldur í hjarta umferðaræð borgarinnar, Suður- gisti ekki matborð neytenda i haust. höfuðborgarinnar, nánar tUtekið í landsbrautin, og er því eins gott að DV-mynd: Loftur. Grace og Rainier á góðri stund. BESSIAFTUR Á FERDINNI Nýlega kom út kassettan 211 gaman- mál með Bessa Bjamasyni. Hér er er um að ræða eitt hundrað bráösmellna brandara sem Jóhannes Helgi valdi úr samnefndri bók sinni. Bessi sagði í samtali við DV að kassettan væri hugs- uð sem ferðakassetta, tUvaUn tU þess að koma fólki í gott skap í upphafi ferð- ar eftir stressandi og erUsaman ferða- undirbúning, en væri annars tUvaUn hvenær sem fólk þyrfti upplyftingar við. Af Bessa er það annars að frétta að hann verður ekki aögerðarlaus í sumar frekar en endranær. Hann fer með hlutverk í kvikmynd sem verið er að taka eftir sögu Jökuls Jakobssonar, Skilaboö tU Söndru. Ennfremur sagði hann að æfingar fyrir Sumargleðina væru hafnar á fullu og yröi hún með svipuöu sniði og undanfarin sumur og væri kassettan góð upphitun áöur en menn skelltu sér á skemmtun með Sumargleðinni. Nál í eyrað og grennt- ist um 21 kíló Baráttan við aukakUóin er vinsælt umf jöUunarefni á siöum dagblaöa vítt og breitt. Bækur eru gefriar út í stórum stíl um hvemig staðið skuli aö lýsis- bræðslunni og fjölbreytni grenningar- ráða virðist vera óendanleg. Frumleg- asta aðferðin sem við höfum haft fregnir af tU þessa kemur frá Noregi. Aud Andreassen hafði lengi staöið í stríði við mörinn. Aud, sem er 49 ára,: hafði reynt hin ýmsu grenningarráð en sifeUt seig á ógæfuhUöina, kHóin hlóð- ust upp eitt eftir annaö. Að því kom að hún gekk tU Idvar Elvemo læknis sem framkvæmdi sérstæða nálarstungu- lækningu sem fáir höfðu trú á í upp- hafi. Læknirinn kom UtUU nál fyrir í hægra eyra hennar og árangurinn lét ekki á sér standa. Að fáum mánuðum Uðnum var 21 kUó horfið og sagði hún að nálin hefði ekki kvaUð sig hið minnsta og haft þau áhrif aö matar- lystin barasta hvarf. Aud lét taka nálina úr fyrir síöustu jól og kostaði það hana 4 kíló í plús. Því er hún nú um þessar mundir að láta koma annarri megrunarnál fyrir og 21 kíló rann burt. Nélin líontin é sinn stað- og ætlar í leiöinni að láta koma einni fyrir tU þess að hjálpa sér að hætta að reykja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.