Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1983, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1983, Blaðsíða 11
DV. FIMMTUDAGUR16. JUNI1983. 11 Fimmtán listmál- ararsýnaíGallen Vesturgötu 17 I Gallerí Vesturgötu 17 hefur verið opnuð ný sýning þar sem eru 60 lista- verk eftir 15 félaga úr Listmálarafé- laginu. Þeir eru Bragi Asgeirsson, Jóhannes Jóhannesson, Valtýr Péturs- son, Einar Þorláksson, Guðmunda Andrésdóttir, Einar Baldvinsson, Vil- hjálmur Bergsson, Steinþór Sigurðs- son, Kjartan Guðjónsson, Einar Há- konarson, Elías B. Halldórsson, Haf- steinn Austmann, Agúst Petersen, Björn Birnir og Kristján Davíðsson. Þetta eru mest olíumálverk, en einnig nokkrar vatnslitamyndir og fá- einar grafíkmyndir. Verð vatnslita- og oh'umálverka er á bilinu frá kr. 6.000 til 55.000. Sýningarsalurinn var opnaður í mars síðastliðnum og hefur gengið vel. Þar er opið virka daga frá kl. 9 til 18. Verkin sem nú eru sýnd eru öll til sölu og kaupandinn getur tekið þau heim með sér strax. -Uih. HÁBERG HF. AUGLÝSIR fyrir bílinn: STARTARA, ALTERNATORA, nýja og verksmiðju- uppgerða, ásamt varahlutum. SPENNUSTILLA (Cut-out), landsins besta úrval. MIÐSTÖÐVAMÓTORA RAFMAGNS BENSÍNDÆLUR STEFNULJÓSABLIKKARA RELAY.12V og 24V KVEIKJUHLUTI KERTAÞRÆÐI HÁSPENNUKEFLI KERTI, BOSCH-SUPER SÍUR, allar gerðir LJÓSAPERUR, SAMLOKUR ÞURRKUMÓTORA HÖGGDEYFA SPÍSSADÍSUR GLÓÐARKERTI SKIPTIROFA, 12V/24V BÚKKAMÓTORA, DÆLUR LUMENITION MARK-II HLEÐSLUTÆKI TÍMABYSSUR AFGASMÆLA HÁBERG HF. Skeifunni 5, simi 91-84788. „STEINAR HAFA ENGA SÁL” — segir Sigurður Steinþórsson, nýskipaður jarðf ræðipróf essor Fyrir skemmstu var Sigurði Steinþórssyni veitt prófessorsemb- ætti í jaröfræði við Háskóla Islands. Sigurður er af traustum framsóknar- ættum, en við munum ekki rekja bær í smáatriðum utan láta þess getið að hann er dóttursonur Jónasar frá Hriflu og ekki gjörólíkur honum í sjón. Sigurður er hinn fjölfróöasti og skrifar meöal annars líflega tónhst- argagnrýnií Tímann. ,,Er þetta hefð, að íslenskir jarð- fræðingar hafi fjölbreytt áhuga- mál?” spyrjum við. Samanber heimspekinginn Helga Pjeturs, dægurlagasmiðinn sögufróða Sigurð Þórarinsson, stjórnarformann Máls og menningar,Þorleif Einarsscn, og fleiri. „Þetta byrjaði meö fyrsta jarð- fræðingnum, Jónasi Haligrimssyni,” svarar Sigurður. ,,Síöar kom Þor- valdur Thoroddsen. Hann bjó á skólaárum sínum hjá Jóni Ámasyni þjóðsögusafnara og fór sjálfur að safna öllum hugsanlegum fróðleik um land og þjóö. Bækur hans taka heilan metra í bókaskápnum og mun þó ekki allt prentað. Nú, frjókornagreining og ösku- lagarannsóknir eins og Sigurður Þór- arinssonfékkstmikið við (og Þorleif- ur Einarsson síðar) tengjast mjög sögu og fomleifafræði .. . en ég er saklaus af öllu slíku .. . Eg er berg- fræðingur, mín sérgrein er uppruni og þróun storkubergtegunda.” ,,Fórst þú í jarðfræði af útivistar- áhuga?” „Nei, ég harma það að ég hef ekkert yndi af mannraunum. Ég er lítið fyrir að khfra í hengiflugum og sit mest hér á rannsóknastof unni.” Hann segir að fyrir nútíma jarð- fræði sé skilningur á eðlisfræði, efna- fræði og stærðfræði nauðsynlegra vegamesti en ást á náttúrunni. Aður gátu ferðalögin verið erfið, eins og þegar Þorvaldur Thoroddsen fór um landið á hestum í lok síöustu aldar. . . „.. . en Guðmundur Kjartansson innleiddi vélvæðinguna og fór um landið á reiðhjóli á árunum 1930— 40,”segirSigurður. Raunvísinda- mannatríó Sigurður vill lítið gera úr músík- þekkingu sinni. „Það er yfirleitt tahð að þeir sem skrifa um tónhst séu ekki mikhr tónlistarmenn — en ég hef mjög gaman af að fara á tónleika.” Eftir nokkurt þóf getum við dregið það upp úr honum, að hann spilar á klarinettu, ekki til lofs né frægðar heldur sjáhum sér til hugarhægðar. Og oft með tveimur öðrujm raunvís- indamönnum. Það eru þeir Páll Ein- arsson jarðeðhsfræðingur, sem leik- ur á cello „er annars kunnur fyrir þekkingu sína á skeljum”, og Reynir Axelsson stærðfræöingur sem leikur á píanó. Hvaða bækur les hann helst? „Mikið reyfara, einnig bækur um vísindi svo og bókmenntir, eitt- hvað.” Hann segist gjarnan lesa nýrri ameríska höfunda. „Þeir hafa hryss- ingslegan húmor og í Ameríku er alltaf feiknamikið að ske,” og svo eldri þýska — „eru til einhverjir nýt- ir nútímahöfundar?” Hann segir, að ennþá hafi ekki borið á atvinnuleysi meðal jarðfræð- inga, en auk þess megi þriggja ára jarðfræðinám teljast góð undirstöðu- menntun áöur en haldið sé út í lífið og tekið til við eitthvað annað, til dæmis bhasölueða blaðamennsku. Við leggjumfyrir hann lokaspurn- ingu: „Hafa steinamir sál?” „Nei,” segir Sigurður ákveðið, '„hana hafa þeir ekki. Þeir eru orku- lægsta og þar með líflausasta form éfnisins. I kristölluðu efni ríkir alger regla, engin óreiða, og það er vitað áðregla er andstæða lífsins.” Þetta hafði okkur einmitt lengi grunað, og þar með shtum við tahnu. Sigurður Steinþórsson i húsakynnum jarðfrædideildar sem eru viðáttu- -ihh. mikil eins og sjá má á myndinni. D V-mynd: Þó. G. ------------ I HELGAR hAATlNN JL-PORTIÐ • IMYR INNGANGUR RAFLJOS f MIKLU ÚRVALI í RAFTÆKJADEILD ALDREI MEIRA ÚRVAL AFHÚSGÖGNUM í HÚSGAGNADEILD Met ,elK° rni” Munið okkar hagstæðu greiðsluskilmála Opið til kl. 8 í kvöld I öllum deildum /A A A A A A |CQl.Q S'33' Sj]jW€K Eli i Jón Loftsson hf. - 1 ' — * Hringbraut 121 Sími 10600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.