Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1983, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1983, Blaðsíða 21
DV. FIMMTUDAGUR16. JUNI1983. 29 íþrótt íþróttir íþróttir íþrótti k FH gegn Fram í gœrkvöldi. Skallar yfir DV-mynd Friðþjófur., íotuðu >igruðu Fram engu að 2:1—Gunnar Bjarna- son, FH,rekinníbað Fram, og Gunnari Bjarnasyni, FH, og rétt er Gunnar hafði litið gula spjaldið augum kom það rauða á loft og var þar kjaftbrúki um að kenna. FH-ingar léku því 10 síðustu fimm mín- úturleiksins. -SK. Cruyff hætti við að fara til Sviss Holiendingurinn Joban Cruyff hœtti við að fara til Sviss eins og hann var búinn að ákveða. Þessi snjalli leik- maður, sem lék með Ajax sl. vetur, skrifaði undir eins árs samning við Feyennoord í gærkvöldi. Cruyff, sem var staddur í sumarfríi á Spáni, kom sérstakiega tii Rotterdam í gær til að ganga frá samningnum við Feyenoord. Cryuffer36ára. -SOS Fyrsti sigur Blikanna í Kef lavík í sjö ár Ég< er m jög ánægður með strákana — þeir léku vel, sagði Magnús Jónatansson, þjálfari Breiðabliks Frá Magnúsi Gíslasyni — fréttamanni DV á Suðurnes jum: — „Ég er að sjálfsögðu mjög ánægð- ur með þennan sigur minna manna. Strákarnir léku mjög vel og gerðu það sem fyrir þá var lagt,” sagði eldhressi þjálfari Breiðabliks, Magnús Jóna- tansson, eftir að Breiðablik hafði sigr- að ÍBK 2—0 í Keflavík og er það fyrsti sigur Blikanna í sjö ár í Keflavík. Stað- an í leikhléi var 0—0. Leikmenn Breiðabliks voru mun frískari í þessum leik ef frá er skilinn fyrsti stundarfjórðungur hans. Þá sóttu Keflvíkingar stíft og tókst að skapa sér nokkur góð marktækifæri, sérstaklega þeim Magnúsi Garðars- syni og Ola Þór, en inn vildi knötturinn ekki. En smátt og smátt fóru Blikar aö láta að sér kveða og náðu brátt góðum tökum á sunnanmönnum sem þeir héldu svo að segja til leiksloka. Blikar fengu óskatækifæri á 30. mín- útu leiksins er Sævar Gunnleifsson komst einn inn fyrir vöm IBK. Þor- steinn kom út á móti og tókst aö hefta för hans nokkuð og þegar knötturinn var á leið sinni í netið kom Gísli Eyjólfsson á fullri ferð og hreinlega settist á knöttinn. Blikar nýttu því ekki þaðtækifæri. Leikmenn Kópavogs-Iiðsins hertu enn róðurinn í síðari hálfleik og á 56. mínútu náðu þeir forystunni. Þá flétt- uðu þeir sig í gegnum vöm IBK á skemmtilegan hátt og endaði sú leik- flétta með því að Sigurjón Kristjáns- son gaf góða sendingu á Hákon Gunn- arsson sem hafði komiö inn á sem varamaöur stuttu áður og Hákon átti ekki í vandræðum með að skora fyrsta markið af frekar stuttu færi. Og Blikamir bættu öðru marki við á 70. minútu. Sigurður Björgvinsson, sem átti heldur mislukkaðan leik fyrir IBK aö þessu sinni, braut þá á einum leikmanni Breiðabliks um 25 metra frá marki IBK. Sigurður Grétarsson gerði sér lítið fyrir og skaut bylmingsskoti að markinu og hafnaði knötturinn efst í markhominu, alls óverjandi fyrir Þor- stein Bjamason, markvörð IBK. Keflvíkingar hresstust örlítið í lokin, mest fyrir atbeina varamannsins Freys Sverrissonar, en það dugði skammt aö þessu sinni. Allt lið Breiðabliks var gott í þessum leik og er erfitt að nefna einhverja leik- menn öðrum fremur. Þó verður að geta leiks þeirra Jóns G. Bergs og Sig- urðar Grétarssonar sem léku mjög vel. „Liðsandinn var mjög góður hjá okk- ur. Liðið vann þennan leik sem ein heild. En ég er hræddur við næsta leik sem er gegn Eyjamönnum. Það er erf- itt að eiga tvo svona góða leiki í röð,” sagði Magnús Jónatansson þjálfari eft- irleikinn. Eins og áður er getið var leikur Kefl- víkinga i molum. Enginn skaraði fram úr nema ef vera skyldi Þorsteinn Bjamason markvörður en hann bjarg- aði því sem bjargað varð. Liðiö náði ekki saman í þessum leik og verður að gera betur í framtíðinni ef leikir eiga að vinnast. Leikinn dæmdi Þóroddur Hjaltalín og stóð hann sig með mikilli prýði. Hann gaf þeim Trausta Omarssyni UBK, Olafi Bjömssyni, UBK, og Sigurði Björgvinssyni, IBK, gula spjaldið í leiknum. Liðin voru þannig skipuð: Lið ÍBK: Þorsteinn B., Óskar Færseth, Sigurður B., Gisli Eyjólfsson, Björn Ingólfs- Sigurður Grétarsson skoraði stór- glæsilegt mark. DV-mynd Friðþjófur. son, (Kári Gunnlaugsson), Skúlf Rósantsson, Rúnar G., Björgvin Björgvinsson, Einar As- bjöm ðlafsson, Óli Þ. Magnússon og Magnús Garðarsson (FreyrSverrlsson). Lið Breiðabliks: Guðmundur Asgeirsson, Benedikt G., Ómar R., Jón G. Bergs, Ólafur B., Vignir Baldursson, Trausti Ómarsson, Jó- hann Grétarsson, (Bjöm Þ. Egilsson), Sigurðnr G., Sævar Þ. Gunnleifsson (Hákon Gunnarsson), Sigurjón Kristjánsson. Maður leiksins: Sigurður Grétars- son. emm/SK Enn fékk Daníel reisupassann Frá Magnúsi Gislasyni — frétta- manni DV á Suðumesjum: Akureyrarliðinu KA, sem féll í 2. deild í knattspyraunni í fyrra, geng- ur ekki vel að sigra í leikjum sinum það sem af er keppnistimabilinu. í gærkvöldi léku KA-menn gegn Viði í Garðinum og lauk leiknum með markalausu jafntefll, hvorugu liðinu tókst að skora mark þrátt fyrir góð tækifæri beggja. Það sem einna helst bar til tíðinda í leiknum var að einum leikmanni Víðis, Daníel Einarssyni, var vikið af leik- velli i annað sinn í sumar. Braut Daníel á einum norðanmanna, fékk að sjá gula spjaldiö hjá Birni Björnssyni, dómara leiksins. Stuttu síöar var Daníel aftur á feröinni og þá sá dómar- inn sig tilneyddan að veifa rauöa spjaldinu fyrir framan Daníel. En hann gat það ekki lengi því Daníel gerði sér lítið fyrir og sló rauða spjald- ið úr höndum Björns. Furðuleg fram- koma, vægast sagt. Eins og áöur sagöi var nokkuð um marktækifæri í þessum leik og skiptust þau jafnt á milU liða, þ.e. KA og Víðis. Skallað var og skotið í slá og bjargað á línu en inn vildi sá hnöttótti ekki. emm Völsungur steinlá á Húsavík tapaði (0:1) fyrír Njarðvík, sem skaust upp á toppinn í 2. deild Njarðvíkingar hafa komið mikið á óvart í 2. defldinni í knattspyrnu í sum- ar og gerðu það enn í gærkvöldi er þeir náðu að sigra Völsung frá Húsavik i leik liðanna sem háður var á Húsavík. Njarðvíkingar skoruðu eina mark leiksins þegar 15 mínútur voru til leiks- loka og fögnuður þeirra var i meira lagi eftir leikinn. Sigurinn var þó ósanngjam éf miöaö er við gang leiksins og léku Njarðvík- ingar greinilega með annað stigið í huga. Þegar þeir náðu svo knettinum var „kýlt” fram á hinn eldsnögga Jón Halldórsson og í kjölfarið á einni „kýl- ingunni” náði Jón að skora sigurmark- ið. Mjög óvænt úrslit þar sem Völsung- ur var í efsta sæti deildarinnar fyrir leikinn og hafð ekki tapað leik. Besti leikmaöur Völsungs í leiknum varOlafurBirgissonmarkvörður. -SK íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir O ði íeynis Iil-1 jtunni lar en Reyni iið um m og -SK. □ KJUKLINGAR eru sérgrein okkar, nammi, namm. Komið á staðinn, eða hringið á undan ykkur og pantið í síma 29117 Þá er maturinn tilbúinn þegar þiö komiö Franskar xartöflur sósa og salöt SOUTHERN FRIED CHICKEN Verið velkomin Kjúklingastaðurinn Tryggvagötu Svangir sækja Svörtu Pönnuna SvARTA PAÍ'iNAI'! HraÖrétta veitingastaöur íhjarta borgarinnar O ahomi Tryggvagötu og Pósthússtrætis Sími 16480 Boskamp þjálfar Víkinga Mikinn hvalreka rak á fjörur Víklnga á dögunum er hoilenski landsliðsmaðurinn Johan Boskamp lék hér með Stjömuliðinu gegn Stuttgart. Boskamp fékkst nefnilega til þess að dvelja hér á landi í um mánaðartíma og mun aðstoða Víkinga við þjálfun yngri flokka félagsins. Johan Boskamp er mjög þekktur knattspyrnumaður og hefur lengi lelkið með hollenska landsliðinu. Hann leikur nú sem stendur með belgiska félaginu Lierse en var áð- ur hjá Molenbeek. -SK. Langt kast íkúluvarpi kvenna Ilona Slupianek frá Austur- Þýskalandi kastaði kúlunni 22,40 metra á frjálsíþróttamóti í Austur- Þýskalandi nú i vikunni. Er það aðeins fimm sentímetrum styttra en heimsmetið utanhúss, sem hún á sjálf. Heimsmetið innanhúss á Helena Fibiengerova frá Tékkó- slóvakíu og er það 22,50 metrar. -klp- l.DEILD Vestmey. — Víkingur 1—1(1—1) Grasvöllurinn við Hásteín. 852 áhorfend- ur. Ómar Jóhannsson skoraði mark Eyja- manna á 6. min. og Ómar Torfason jafn- aði fyrir Viking á 12. mín. Keflavík — Breiðablik 0—2 GrasvöMurinn í Keflavik. 670 áhorfendur. Hákon Gunnarsson (56. mín.) og Sigurður Grétarsson (70.) skoruðu mörk Breiða- bUks. ísafjörður—Akranes 1—0(0—0) Atsafirði: 580 áhorfendur. Jóhann Torfason skoraði mark ísfirðinga á70. min. STAÐAN Staðan er nú þessi í 1. deildarkeppninni: Vestmey. 6 3 2 1 13—5 8 Akranes 5 3 11 7-3 7 KR 5 2 3 0 7—5 7 BreiðabUk 6 2 2 2 5—4 6 ísafjörður 6 2 2 2 7-9 6 Þór 6 13 2 6-7 5 Þréttur 6 2 13 8-12 5 Keflavík 5 2 0 3 7-8 4 VUtingur 5 12 2 5—7 4 Valur 5 2 0 3 6-11 4 • M ARKHÆSTU MENN: Ulimnr ‘ínsson, Vestmcy. 4 ... ... sson, Vestmey. 3 Ómar Jóhannsson, Vestmey. 3 Ömar Torfason, Viking 3 Guðjón Guðmundsson, Þór 3 • Næstuleikir: BreiðabUk — Vestmanna- eyjar, Akranes — Keflavik og Valur — KR á laugardaginn. Vikingur — Þróttur á sunnudaginn. íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.