Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1983, Side 36
44
DV. FIMMTUDAGUR16. JUNÍ1983.
Viðskipti
Viðskipti
Viðskipti
Viðskipti
Könnun á fasteignamarkaði á vegum Háskóla íslands:
TÍUNDA HVER ÍBÚÐ
ER SELD ÁRLEGA
Miklar sveiflur hafa verið á fast-
eignamarkaönum á Reykjavíkursvæð-
inu um skeið og til þess að henda reiður
á hvaö væri raunverulega að eiga sér
stað gengust nemendur í landafræöi
viö Háskóla Islands fyrir markaös-
könnun undir leiðsögn Bjama
Reynarssonar, kennara síns.
Aðaláhersla var lögð á aö draga
fram mismun á milli íbúðarhverfa á
svæðinu hvað varöar framboð og verð
íbúðarhúsnæðis. Borgarskipulag
Reykjavíkur hefur nú gefið út niður-
stöðumar, en þær eru byggðar á rann-
sóknum á fasteignaauglýsingum í
Morgunblaðinu 3. október sl.
Kemur þar m.a. í ljós aö hlutfalls-
lega er mest framboö af íbúöum í út-
hverfum Reykjavíkur en minnst mið-
svæðis í borginni. Framboö af rað- og
einbýlishúsum er tiltölulega mikið og
fer vaxandi. Mest er til sölu af 4 til 5
herbergja íbúðum en minnst af 1 til 2ja
herbergja íbúðum, miöað við fjölda
þessara íbúða á svæðinu.
Þá er meðalverð íbúða hæst mið-
svæðis í borginni en þó að meðaltali
Ný raftækja- og
sportvörudeild
íBorgarnesi
Kaupfélag Borgfirðinga opnaði
nýja deild í aöalverslunarhúsi sínu í
Borgarnesi í byrjun þessa mánaðar.
Nefhist hún Raftækja- og sportvöru-
deild og er á 180 fermetra gólfrými.
Þar er boðið upp á rafmagnstæki,
stór og smá, hljómflutningstæki og
hljómplötur, sjónvörp, videotæki og
margs konar íþrótta- og tómstunda-
tæki. I deildinni eru á boðstólum flest
stærstu merkin sem hingað eru flutt
af ofangreindum vörutegundum auk
eigin innflutnings kaupfélagsins.
Deildarstjóri er Gísli Sumariiöason
sem hefur starfað um árabil hjá
Kaupfélagi Borgfirðinga.
lægst í gamla miðbænum innan Hring-
brautar og Snorrabrautar einmitt þar
sem framboðið er minnst. Sennilega
stafar þaö af því að margar íbúðir,
sem þar eru til sölu, þurfa mikillar
endurnýjunar við til aö standast nú-
tímakröfur. Þar er einnig mikið um
litlar íbúöir.
Hæst verð á blokkaríbúðum er í ný-
byggðum hverfum en ekki í eldri
blokkum miðsvæðis í borginni. Þá er
ein niðurstaöan sú að 2ja til 3ja her-
bergja íbúðir hækki fyrst í verði við
verðbreytingar á markaðnum.
Samkvæmt könnuninni kemur í ljós
að 5 til 7 prósent íbúða í húsum með
fleiri en einni íbúð í gengu kaupum og
sölum i hittifyrra. Þessi tala yröi
miklu hærri ef tekin væru með ein-
býlishús, íbúðir eða hús sem skipta um
eigendur innan fjölskyldna, sölur á
uppboðum, íbúðir á félagslegum
grundvelli og íbúöir á byggingastigi.
Iiklegt má telja að talan fari þá að
nálgast 10%. A.m.k. gefur þetta
nokkra skýringu á f jölda fasteignasala
íReykjavík.
Áhugi hans á bifreiðum og áhugavert starf varð til þess að gengisfeííingar og
efnahagserfiðleikar fældu hann ekki frá kaupum á Agli Vilhjálmssyni hf.
DV-mynd Þó. G.
Nýir eigendur
hjá Agli Vil-
hjálmssyni hf.
Eitt eldri bifreiðainnflutningsfyrir-
tækja landsins, Egill Vilhjálmsson hf.,
skipti um eigendur á sl. vetri. Nýr
aðaleigandi og jafnframt forstjóri
félagsins er Sveinbjörn Tryggvason.
Egill Vilhjálmsson hf., sem um ára-
tugaskeiö hefur verið eitt helsta fyrir-
tækið á sínu sviði, er jafnframt eigandi
tveggja bifreiöa- og vélaumboða,
Mótors hf. og Davíðs Sigurðssonar hf.
Á síðasta ári flutti fyrirtækið aðal-
starfssvæði sitt frá fyrri húsakynnum
við Laugaveg og Rauðarárstíg í
Reykjavík og í ný og fullkomin húsa-
kynni við Smiðj uveg í Kópa vogi.
Þegar hafa verið teknir í notkun
u.þ.b. 4.000 fermetrar í hinum nýju
húsakynnum og þar eru nú bifreiða-
verkstæði, varahiutaverslun og bif-
reiðasalan. Auk þess leigir fyrirtækiö
út húsnæði fyrir sölu notaðra bifreiða.
Egill Vilhjálmsson hf. hefur umboð
fyrir mikinn fjölda þekktra véla,
varahluta- og bifreiðamerkja. Má þar
nefna American Motors, Fiat frá Italíu
og Póllandi og hver kannast ekki við
Champion bifreiðahluti og bifreiðar af
tegundinni Willys, Wagoneer, Eagle,
Concord, Cherokee og Fiat.
Sveinbjörn Tryggvason, hinn nýi
aðaleigandi og forstjóri Egils
Vilhjálmssonar hf., sagði í viðtali við
DV aö höfuðástæðan fyrir því að hann
ákvað aö ráðast í það stórvirki að
kaupa fyrirtækið hefði verið áhugi
hans á bifreiðum. Mörgum fyndist
þetta vafalaust óhófleg bjartsýni á
erfiðleikatímum og vissulega væri það
rétt aö þyngra væri fyrir fæti núna en
oft áöur. Gengisfellingar hefðu valdið
bifreiðainnflutningi erfiðleikum. Þeim
hjá Agli Vilhjálmssyni hf. hefði þó
tekist að selja upp eldri birgðir sínar í
mars sl-. og nú og á næstunni væri ætl-
unin að leggja mesta áherslu á Fiat
UNO, nýja tegund frá Itölunum, sem
hlotið hefði mjög góða dóma bifreiða-
sérfræðinga.
Auk Sveinbjarnar Tryggvasonar er
Einar Matthíasson framkvæmdastjóri
Egils Vilhjálmssonar hf.
hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri
heimahjúkrunar
Ástriður Karlsdóttir Tynes
tók hinn 1. maí sl. við starfi
hjúkrunarframkvæmdastjóra
heimahjúkrunar Heilsuvemd-
arstöðvar Reykjavíkur. Er hún
sett til eins árs í stöðuna. Ást-
ríður lauk námi frá Hjúkrunar-
skóla Islands árið 1968 og fram-
haldsnámi í heilsuvemd árið
1971 við Statens Helseöster-
skole í Osló. Áður en Ástríður
tók viö hinu nýja starfi var hún
deildarstjóri viö iheimahjúkrun.
PéturMárJónsson
deildarst jóri hjá
Brunabót
Við endurskipulagningu á
Brunabótafélagi Islands, sem
áður hefur verið greint frá hér
á síðunni, tók Pétur Már Jóns-
son hdl. við deildarstjóm inn-
heimtudeildar og hefur auk
þess með ráöningar og starfs-
mannahald að gera. Pétur lauk
stúdentsprófi frá M.R. árið 1966
og lögfræðinámi frá Háskóla Is-
Jands árið 1974. Vann hann um
hríð fulltrúastörf hjá bæjar-
fógetanum í Hafnarfirði en
réöst sem bæjarstjóri til Olafs-
fjarðar í ársbyrjun ’75. Því
starfi gegndi hann þar til í árs-
byrjun ’81 að hann hóf störf hjá
Brunabótafélaginu. .
Matthías Guðmundur
Pétursson yfir
söludeild Brunabótar
Matthías Guðmundur Péturs-
son hefur tekið við deildar-
stjórn söludeildar Brunabótafé-
lags Islands, en eins og titillinn
ber með sér er starfið fólgið í
stjómun deildarinnar og sölu-
mennsku þar. Að loknu nám-
skeiöi í Verslunarskóla Islands
starfaði hann í Búnaðar-
bankanum, fyrst í víxladeild og
siðan í skýrsluvéladeild. Árið
1970 hóf hann störf hjá Bruna-
bótafélaginu og sá í fyrstu um
slysatryggingar en vann jafii-
framt í bifreiðadeild. Hann
varð deildarfulltrúi bifreiða-
deildar 1975. Sú deild sér jafii-
framt um flutningatryggingar
eða sjótryggingar. Viö það
starfaöi hann þar til hann tók
við núverandi stöðu.
Viðskipti:
Ólafur Geirsson og
Gissur Sigurðsson.