Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1983, Blaðsíða 17
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ1983.
17
Lesendur Lesendur
Nýja rafveituhúsið:
Ofbýður íburður-
inn og vitleysan
Böðvar Ámundason, Hörpugötu 11,
hrlngdi:
Eg renndi framhjá nýja rafveituhús-
inu viö Suöurlandsbraut um daginn.
Mér hreinlega ofbauö þessi gifurlegi
íburður og vitleysa. Mér finnst of mik-
ið lagt í þetta skrifstofuhúsnæöi. Eg
held aö þarna hefði mátt spara.
Eflaust vantar fólkiö húsnæöi. En ég
held aö þarna heföimátt komast af meö
eitthvað minna. Þetta er álíka vitleysa
og Seölabankinn og Framkvæmda-
stofnun. Þetta nær engri átt. Svona
íburöur finnst mér gegndarlaus. Til
dæmis sá ég ekki betur en blómaker
væru steypt í veggina á þessari skrif-
stofubyggingu.
Mér finnst forkastanlegt aö fara
svona með peningana þegar verið er
að tala um aö allir eigi að spara. Það
fer illa í fólk aö sjá svona á sama tíma
og verið er aö lækka kaup og verið er
aö tala um sparnaö. Ég sé engan
sparnaö þarna á ferö. Svo fara þeir
fram á hækkun á rafmagninu.
Námsmaöur gagnrýn/r A/bsrt Guömundsson fjármá/aráöherra harð/ega í
brófísfnu.
Vinir Alberts
og námslánin
Námsmaður skrifar:
Sjaldan eöa aldrei hef ég orðið fyrir
eins miklum vonbrigðum méð nokkum
mann eins og Albert Guðmundsson
fjármiIdráðheiTa.
Eg kaus Sjáifstæöisflokkinn i síðustu
alþingiskosningum. Eg er í senn undr-
andi og reiður yfir því að hvorki Albert
né nokkur annar samflokksmaður
hans lét í veðri vaka fyrir kosnlngar að
skera ætti niður námslánin. Eins og
venjulega gerðu flokkarnir hosur sínar
grænar fyrir námsmönnum og keppt-
ust við að lofa öllu fögru. En það er
ljóst að Albert Guðmundsson svikur
allt sem hans samflokksmenn sögðu
fyrir kosningar. Blint menntamanna-
hatur virðist stjórna ferðinni hjá hon-
um.
Er hugsanlegt að fjármálaráðherra
viti ekki að námslán eru ekki styrkir?
Veit hann ekki að þetta eru verðtryggð
lán? Gerir Albert sér ekki grein fyrir
að námslánin koma i veg fyrir aö
menntamenn séu einungis úr yfirstétt?
Gerir hann sér ekki grein fyrir að
lögum samkvæmt ber lánasjóöi aö
lána 95% af framfærslukostnaði náms-
manna?
Að lokum vil ég minna á orö Aðal-
steins Steinþórssonar, formanns stúd-
entaráðs, i viötali við eitt dagblað-
anna: „Fjármálaráðherra talar um
fjáraustur í hitt og þetta og nefnir í þvi
sambandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Mér
þætti nær að námsmannaheimili og
önnur heimili i landinu fengju ein-
hverju að ráöa um hvort ríkinu beri að
bera halla af tívolíi með niðurfellingu
söiuskatts. Þaö væri fróðlegt aö sjá
hvað kæmi út úr þjóðaratkvæða-
greiösluumþað.”
Albert segir að fyrirvinnan sé lasin
og því geti ríkið ekki fylgt lögum og
lánað fé. Albert gerir sig að viðundri
með þessum orðum þvi að i sömu and-
rá fellir hann niður söiuskatt af fyrir-
tæki sem m.a. tengdasonurinn og einn
nánasti samherji hans standa fyrir.
Er f jármálaráðherra lasinn?
Tjöld og viðlegubúnaður
í miklu úrvali
Sérstaklega bendum við á:
Tjaldborgartjöldin
TÓmSTUflDfiHÚSID HF
leugDuegilSS-RenkÍDuifc s=2T901
Urval
MEÐAL EFNIS:
S'' iM.cntnb'" ,
» ...lll-CA .. L.illlllt 1
IduvV"'
E\N \
KJÚRINN FERÐAFÉLAGI - FER VEL í VASA - ÚRVALS EFNI
BLAÐSOLUBORN!
Komið á afgreiðs/una
FÆSTÁ
mmv NÆSTA
■ __■ BLAÐSÖLU
er komin ut stað
27022
Þverho/ti 11
MUNIÐ ÆVINTÝRAFERÐINA TIL KAUPMANNAHAFNAR