Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1983, Blaðsíða 30
30
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. JtLl 1983.
Afgraiðum
stimpla
með stuttum
fyrirvara.
Stimplagerð
Félagsprentsmiðjunnar hf.
Spitalastig 10 - Simi 11640
GRJÖTGRINDUR
Á FLESTAR TEGUNDIR ÐiFREIDA
Eigum á lager sérhannaðar grjót-
grindur á yfir 50 tegundir
SÉRHÆFÐIRIFMT 06 CiTROEN VIOGERBUM
BIFREIÐAU|VERKSTÆÐIÐ
SKEMMUVEGI 4 W Al A U Ál A
s~hnQSwQS
BÍLALEIGUBÍLAR
HÉRLENDIS OG ERLENDIS
iR
REYKJAVlK 91-86915/41851
AKUREYRI 96-23515X1715
BORGARNES: 93- 7618
BLÖNDUÖS: 95- 4136
SAUÐÁRKRÓKUR: 95- 5223
SIGL UFJÖRÐUR: 96-71489
HÚSAVlK: 96-41260/41851
VOPNAFJÖRÐUR: 97- 3145/ 3121
EGILSSTAÐIR: 97- 1550
HÖFN HORNAFIRDI: 97- 8303/ 8503
1
interRent
■ . ' *r*M. > ■.»'<«« 4 4' 664IS HfclS
•« 96 ; 4S1S ;• M'.
. . ,að það er líka opið í hádeginu?
.. ,að við eigum ekki bara mikið af
og ódýra varahluti í LADA, GAZ ,
VOLGA, MOSKViCH og UAZ?
.. .að við eigum lika hluti, sem
henta í aðra bíla?
.. að það borgar sig oftast að tala
við okkur fyrst?
,. ,að við leitum ávallt eftir hagstæð-
ustu innkaupunum í hvert sinn?
.. .að við kaupum lika varahluti frá
Þýskalandi, Englandi, Sviþjóð,
Ítalíu o.fl. o.fl.?
Dæmi
Suðurlandsbraut 14
Varahlutir Skiftiboró
39230 38600
Þarna fær ögmundur Kristínsson að reyna þá beisku staðreynd að markið er stórt og Skagamenn skotharðir. Eitt núll fyrir Skagann.
Byggðastefnan
allsráðandi
í fótboltanum
— Hvað er eiginlega að gerast í 1. deild?
Jæja, drengur, þá er það Laugar-
dalsvöllurinn, sagði röddin í símanum
og hljómaði heldur kunnuglega þrátt
fyrir ameríska hreiminn.
Alveg er þetta nú makalaust, hélt
Bensi vinur minn áfram skömmu síðar
þegar viö ókum á ofsahraða inn Suður-
landsbrautina, því að leikurinn var
alveg að fara að hefjast. Hingað er
maöur kominn heim eftir margra ára
útilegu og kemst að því sér til sárrar
hrellingar að gamla góða liðið manns
er komið á botninn. Víkingur — þetta
lið sem með réttu á að vera í forystunni
og hvergi annars staöar.
Víkingur er kannski ekki það sem
áður var, sagði grályndur Valsari sem
sat nálægt okkur í stúkunni á vellinum.
En Víkingur er stjömulið og þeim er
trúandi til hvers sem vera skal. Hverju
spáiö þiö, sveinar? spurði hann svo
glettnislega og við skildum óðara hvar
fiskur lá undir steini.
Það fer fjögur núll fyrir Víking,
sagði Bensi vafningalaust og var ekki
laust við að ameríski hreimurinn væri
dálítið farinn að víkja. Hann dró upp
og rétti grálynda Valsaranum viðeig-
andi seöil.
Þrjú eitt fyri Víking, sagði ég og rétti
Valsaranum þaö sem honum bar.
Eitt núll fyrir Skagann, sagöi lítill
vinnulúinn maður og allir litu til hans
meðvanþóknun.
Dómarinn flautaði og leikurinn
hófst. Valsarinn leit yfir völlinn allan,
vó og mat hvem einasta leikmann í
sjónhendingu og það færðist eins og
fjarræn slikja yfir augu þessa gamal-
gróma vallarrefs.
Tvö eitt fyrir Skagann, sagði hann
svo og slikjan hvarf af hvörmunum.
Og það þarf ekki að orölengja að
Skagapiltarnir vom snöggir að negla
boltann í netið hans ömma.
Litli Skagamaðurinn við hlið okkar
hló af kátinu, dró upp pyttlu með
gulum safa og dreypti á henni. I hinum
enda stúkunnar var hersing Skaga-
Byggðastefnan var nú ekki alveg aiisráðandi á áhorfendapöllunum þvi að
þessir vösku sveinar og nokkrir fieiri þeyttu lúðrana ákaft þegar Vikingarn-
ir voru með bottenn.
m
„Ekki hefðir þú nú brennt af úr svona fœri, " sagði Magnús Sigurjónsson og hló dátt (t. v. fyrir miðju) og
ekki berá öðru en Sveinn Jónsson, formaður KR, só þvi algerlega samþykkur.
manna saman komin og nú tóku þeir
lagið, „Kátir voru karlar” og svo
framvegis og þeir vora líka væddir
„Nú hljóta þeir að skora," hugsaðl Ágúste Bjarnadóttír, eða svo máttí að
minnsta kostí lesa úr svip hennar þar sem hún sat og fylgdist spennt með
leiknum ásamt manni sínum, Antoni Kjærnested, fyrrum formanni Vik-
ings. Myndir BH.
pyttlum með hollum ávaxtasafa, sem
gott var að sötra þama í kuldanum.
Hvað er eiginlega aö gerast hér í
knattspymunni á Islandi? spurði
Bensi gremjulega og fékk að súpa á
hjá Skagamanninum. Era utanbæjar-
liðin að leggja þetta allt undir sig? Sú
var tíðin að Skagastrákarnir komu
siglandi yfir sæinn að voriagi og það
vora leikir sem púður var í. En nú era
fimm utanbæjarlið komin á toppinn í
fyrstu deild og það er ekki fyrr en i
sjötta sæti aö höfuðborgariið fær að
rétta upp hönd.
En nú skoruðu Skagapiltarnir annaö
mark og aftur laust hersingin í stúk-
unni upp sigurópi, en Skagamaöurinn
litli við hliö okkar lét pyttluna
ganga og var sæll og glaöur. Þeir leka
aldrei niður tveimur mörkum, sagði
hann og brosti út að eyram, þeir leka
aldrei niður tveimur mörkum.
En Víkingar eiga leikinn, sagði
Bensi og saup drjúgum ávaxtasafann
góða og nú var ameríski hreimurinn
algerlega horfinn.
Og viti menn — Víkingar náðu að
pota inn knettinum. Það var dæmt víti
á Skagapiitana og boltinn iá í netinu,
sem í sjálfu sér var alls ekki ósann-
gjamt því aö Reykjavíkurstrákamir
áttu í rauninni síst minna í leiknum
Knattspyrna
þótt þeim gengi illa að skora. Og nú
voru það unnendur Víkings sem lustu
upp fagnaðarópi í stúkunni. Þetta var
að vísu ekki voldugt fagnaðaróp, því að
þarna átti Skaginn öllu fleiri áhang-
endur á staðnum.
Svona er þessu komið, sagði Bensi
gramur. Þaö er ekki lengur kiappað
fyrir Reykjavíkurliöunum á heima-
velli! Hingað koma Skagamenn á völl-
inn, AkurejTÍngar og Vestmanney-
ingar og Keflvíkingar og jafnvel Vest-
firðingar, en hér sést ekki Reykvík-
ingur til þess aö klappa fyrir sínum
mönnum.
Láttu ekki svona, sagði litli Skaga-
maðurinn og réð sér ekki fyrir lífsgleði
en þaö munaöi minnstu aö honum
svelgdist á ávaxtasafanum, þvi að á
síðustu sekúndu leiksins áttu Víkingar
dauðafæri inni á markteig Skaga-
manna. Heimir gaf boltann fyrir en
sveinniiui sem var þar fyrir vippaði
honum hátt upp i bláma himinsins og
þar með var sá draumurinn úti.
Leikurinn endaði tvö eitt fyrir
Skagann, rétt eins og grályndi Valsar-
inn hafði séð fyrir af sínu hyggjuviti,
enda brosti hann breitt er hann kvaddi.
Þakka þér fyrir, vinur, sagði Bensi
viö Skagamanninn og skilaði honum
pyttlunni sem nú var orðin tóm. Mínir
drengir áttu leikinn en þínir drengir
unnu og það var allt fullkomlega
heiðarlegt. Nú er byggðastefnan alls-
ráðandi í knattspyrnunni, sagði hann
og siðan ók hver til síns heima.
TextiogmyndlrBH.