Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Qupperneq 5
DV. LAUGARDAGUR17. SEPTEMBER1983.
5
Frá fundinum 6 Kópavogshæli igmr. &V-mynd Einar Úlason.
Ræstingafólk ríkisspítalanna á fundi
með fulltrúa st jórnarnefndar í gær:
HARKALEG
AÐFERD
— við að skoða þessi mál, sagði
Símon Steingrímsson
,,Spurningin snýst um aöferöina
sem notuð er viö að skoöa þetta mál.
Mörgum finnst hún harkaleg og ég
get verið sammála því,” sagöi Símon
Steingrímsson, forstjóri tæknideild-
ar ríkisspítalanna, á fundi með'
ræstingafólki á Kópavogshæli í gær.
I gærdag héldu fulltrúi stjórnar-
nefndar ríkisspítalanna og forystu-
menn Sóknar og Starfsmannafélags
ríkisstofnana fundi meö ræstinga-
fólki spítalanna á fjórum stööum.
Voru þaö Kleppsspítali, Hátún,
Kópavogshæli og Landspítalinn. Þar
voru kynnt áform um útboö á ýms-
um verkþáttum spítalanna.
Símon Steingrímsson reifaöi þau
áform sem uppi eru um útboð. Einar
Olafsson, formaður SFR, og
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, for-
maður Sóknar, tóku bæöi til máls og
hvöttu fólk til samstöðu.
„Veröi reynt aö ýta fólki út af
vinnumarkaðinum munum við verj-
ast með kjafti og klóm og grípa til
hvaða úrræða sem þörf er á,” sagði
Aðalheiður meðal annars.
I gær gengu fulltrúar ASI á fund
Alberts Guðmundssonar fjármála-
ráðherra vegna þessa máls.
Ráðherra lýsti m.a. þeirri skoðun
sinni að eftir að útboð heföu farið
fram væri eölilegt að málin yrðu
rædd við stéttarfélögin og starfs-
fólkið og engar ákvarðanir yrðu
teknar fyrr en að vandlega athugðu
máli.
-JSS.
ASI um útboð á rekstri verkþátta
á ríkisspítölunum:
,Fráleitt skref til
aukins sparnaðar7
— mótmælir harðlega að verkafólki verði sagt
upp á jafnveikum forsendum
og nú virðist áformað
„Verkalýðssfuntökin hljóta að
mótmæla því harðlega að verkafólki
verði sagt upp á jafnveikum for-
sendum og nú virðist áformað.
Miðstjórn gerir þá kröfu til stjóm-
valda að hætt verði við þau áform.”
Svo segir í niðurlagi ályktunar,
sem samþykkt var á miðstjórnar-
fundi Alþýðusambands Islands, er
útboð ríkisspítalanna á tilteknum
verkþáttum voru tekin til
umfjöllunar.
I ályktuninni segir að miðstjóm
ASI taki eindregið undir þau viðhorf
að bæta þurfi rekstur heilbrigðis-
kerfisins. Hins vegar séu útboð á
þjónustu þvottahúss, mötuneytis og
ræstingu fráleitt skref til aukins
spamaðar. Það veki furðu að ríkis-
valdið skuli, sem atvinnurekandi,
sýna það ábyrgðarleysi að ætla sér
að ráðstafa stórum vinnustöðum í
hendur einkaaðilum, án þess aö huga
aö þeim áhrifum sem slíkt hefði á af-
komu og félagslega velferð starfs-
fólksins. -JSS.
Stjórnarnefnd ríkisspítalanna:
„Uppsagnir hafa
ekki veríð ræddar
„Uppsagnir starfsmanna vegna
fyrirhugaðra útboða á verkþáttum í
starfsemi spítalanna hafa ekki veriö
ræddar í stjómarnefnd, og
uppsagnir jafnhliða því sem útboð
fara fram hafa aldrei verið fyrir-
hugaöar.”
Svo segir m.a. í yfirlýsingu frá
stjómarnefnd ríkisspítalanna, vegna
fréttaflutnings fjölmiðla af fyrir-
huguöum útboðum ríkisspítalanna.
Segir ennfremur að fari útboð
fram, eins og nú sé gert ráð fyrhy
muni stjórnamefnd kanna, þegar
þar að komi, hvort hagkvæmt teljist
að taka þeim. Muni hún leggja
tillögur sínar þar að lútandi fyrir
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra til endanlegrar á-
kvörðunar.
-JSS.
K/NC
'tonunVN
SKÁPAR
CROWN Læstir með lykli
og talnalás.
CROWN Eldtraustir og
þjófheldir, fram-
leiddir eftir hin-
um stranga JIS
staðli.
CROH/N 10 stærðir fyrir-
liggjandi, henta
minni fyrirtækj-
um og einstak-
lingum eða stór-
fyrirtækjum og
stofnunum.
CROiVN Eigum einnig til
3 stærðir diskettu-
skápa- datasafe
HALLARMÚLA 2 - SfMI 83211
Pepsi Áskomn!
52%
völdu Pepsi
af þeim sem tóku afstöðu
<L 4719
Coke 4429
Jafn gott 165
Alls 9313
Láttu bragÖiÖ ráÖa
Kynning á starfseminni, flugvélar,
flugmatur, skemmtiatriði. kvikmyndir,
happdrætti, ferðakynningar.
Sérstök dagskrá fyrir böm.
OpiÖ kl. 11.00 — 20.00 báða dagana.
Ókeypís aðgangur.