Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Síða 13
Nokkur atriða úr sjónvarpsmyndafíokknum Fontamara sem gerður er eftir sögu Ignazio Silone.
Sósíalisti án flokks-
kristinn maður án kirkju
- nokkur ord um Iganzio Silone, höfund hlnnar merkilegu sögu Fontamara, en samnefndir
sjónvarpsþættir hafa nú leyst Dallasflokkinn af hólmi um sinn á dagskrá sjónvarpsins
á miövikudagskvöldum
Fontamara nefnist sem kunnugt er
framhaldsflokkurinn ítalski sem sjón-
varpið sýnir nú á miðvikudagskvöld-
um. Heiti þáttarins er tilbúið nafn
(Rammalind eða Beiskibrunnur) á
fjallaþorpi í Abruzzohéraði á Italiu, en
þar er einna harðbýlast og hrjóstr-
ugast í því langa og mjóa landí.
Að líkindum hafði höfundur skáld-
sögunnar, sem sjónvarpsmyndin sam-
nefnda er gerð eftir, Iganzio Silone
(1900—1978), í huga sinn eigin fæðing-
arstað, Pescina dei Marsi. Þar minnir
fátt á Dallas og aörar stórborgir.
Sagan gerist í upphafi valdatíðar
fasista á þriðja áratugnum og lýsir því
hvernig þorpsbúar kynnast þeim
harkalega veruleik. Inn í fléttast svo
ástar- og baráttusaga Bernardos og
Elviru.
Höfundurinn barðist virkri
baráttu gegn fasistum
Fontamara er tengd ævi höfundar-
ins, Secondo Tranquilli (I. Silone er
skáldheiti), og ættjörð hans, fjalllend-
inu i Abruzzo, eins og vikið var að. Á
fimmtánda ári varð hann fyrir því
gífurlega áfalli að missa báða foreldra
sína og fimm systkini í jarðskjálfta,
sem þama eru tíðir.
Samúö og skilningur með fátæku
bændafólki og verkalýð dafnaði í
brjósti Silones en honum var mjög í
nöp við þjóðernisbrölt og öfgar upp-
rennandi fasistahreyfingar. Hann
gerðist liðsmaður sósíalista og hóf að
skrifa í ýmis verkalýðsblöð. Smám
saman tók hann einarðari afstööu gegn
fasistum í skrifum sínum og fékk aö
súpa seyðið af þvi. Reyndu svartstakk-
ar t.d. margoft að kveikja í skrifstof-
um Verkamannsins (D Lavoratore) i
Triesta, sem hann ritstýrði.
Árið 1921 klofnaöi Sósíalistaflokkur
Itah'u og Silone var einn af þeim sem
þannig stofnuðu Kommúnistaflokkinn.
Brátt var hann kominn út í mjög virka
baráttu gegn hinum fasisku yfirvöld-
um og baröist til dæmis með skærulið-
um. Gekk svo til 1930 að hann hraktist
úr landi til Sviss, þá illa á sig kominn.
Kommúnisminn hafði brugðist vonum
hans — Stalin ekki hans maður og hann
haf ði sagt skilið við flokkinn.
Skósólaslit á
leiðinni til frægðar
I bænum fagra, Davos í Grau-
bunden, kom hann sér fyrir og skrifaöi
á stuttum tíma skáldsöguna Fonta-
mara. I þrjú ár sleit hann skósólum
sínum á gangi milli útgefenda. Loks
var verkiö gefið út 1933 i Ziirich (á
þýsku) og skömmu síðar á ítölsku í
París. Bókin var þýdd á fleiri mál og
vakti feikna athygli þ.e.a.s. utan
Italíu, því illa gekk að smygla henni
inn þar, reyndar varð Silone ekki
þekktur í heimalandi sínu fyrr en tals-
vert löngu eftir stríðið; þarkom Fonta-
mara út 1953. Hafði þá hin alþjóðlega
frægð knúið italska gagnrýnendur til
aö gefa gaum að þvi sem kallaö var
f yr ir brigðið Silone (D caso Silone).
Silone var einn af fáum rithöf undum
sem gagnrýndu fasismann beint. I
skáldsögum hans, einkum Fontamara,
eru sannverðugar og hrærandi lýsing-
ar á kjörum ítalskrar alþýðu og jafn-
framt deilt á — og ekki án gamansemi
— andlega úrkynjun fasistatímabils-
ins. Þá má segja að trúarlegur tónn
hljómi alls staðar meira og minna hjá
honum.
Ekki er rétt að rekja söguþráðinn í
Fontamara hér, honum er fylgt allnáiö
í kvikmyndinni, sem hefur verið sýnd
víða við góðan orðstír. I sjónvarpsút-
gáfunni gætir nokkuö mállýsku þeirrar
sem töluð er í Abruzzo og víkur tals-
vert frá hreinni ítölsku.
Eitt verka Silone
til í íslenskri
þýðingu
Ein bók eftir Silone hefur komið út á
íslensku: Leyndarmál Lúkasar (AB í
þýðingu Jóns Oskars). Það er hnitmið-
uð skáldsaga, sem varð feikivinsæl er
hún kom út fyrst á Italíu (1956).
Stærsta verk hans er skáldsagan Vín
og brauð (Vino e Pane) sem hann
skrifaði næst á eftir Fontamara og er
um margt keimlík henni. Hún gerist
líka í Abruzzo; reyndar eru bemsku-
slóðir Silones í öllum verkum hans.
„Sjáið bara Silone,” sagði Albert
Camus, „svo nátengdur ættjörð sinni
en samt svo mikill Evrópumaður”,
Þannig var Silone í senn rígbundinn og
ægifrjáls, trúr uppruna sínum en al-
þjóðlegur í hugsun.
Silone hóf aftur stjómmálaafskipti
heimkominn til Italíu aöstríðinu loknu,
þ.e. innan Sósíalistaflokksins en þegar
flokkurinn klofnaði enn 1948 vildi hann
hvorugum megin vera og lýsti sig
„sósíalista án flokks, kristinn mann án
kirkju”.
t
D
D
0
rv
EF PÚSTKERF/Ð B/LAR, ÞA
BÆTUM VIÐ ÞAÐ FUÓTT OG VEL
Verkstæðið er opið virka daga
frá kl. 8—18, nema föstudaga
frá kl. 8-16.
Lokað laugardaga.
Hafðu þetta í huga næst þegar þú þarft að endurnýja.
Sendum í póstkröfu hvert á land sem er.
ALLT í PÚSTKERFIÐ
0
Bílavörubúóin Skeifunni 2
PinnPIN 82944
Pi'iehnr»«cu4(ctiWti
Púströraverkstæói
83466
OPIÐÍDAGIO-4 Vörumarkaðnrinii hl. eiðistorgiii
OPIÐ í DAG FRÁ 9-12 í ÖLLUM DEILDUM ÁRMÚLA 1a.