Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Page 14
Í88I HSSjVISTSu’h?. U HtTOAnHAnTI m vr ROKKSPILDAN ROKKSPILDAN ROKKSPILDAIM Troðfull Höll á fridartónleikum — góð stemmning, góð mitsík, góð umgjörd Þeir sem voru o£ seinir að kaupa miða á hljómleikana „Við krefjumst framtíðar” í Laugardalshöll um síðustu helgi mega svo sannarlega naga sig í handarbökin. Þeir hafa þó væntanlega getað fengiö reykinn af réttunum með því að virða fyrir sér 15—20 metra háu horrorfígúruna með rauðu augun sem hékk framan á Höllinni. Þaö var Ogsmá sem átti heiðurinn af þeirri fígúru. Ogsmá kom víðar við. Fyrirtækið stóð fyrir skreytingum í fremsta salnum. Þar var 36 metra langt mál- verk, og á gólfinu var flugvélarflak afgirt með gaddavír. Þegar líöa tók á kvöldið kom Ogsmá sér fyrir á þeim slóðum og spilaði rokkabillý með lág- marksgræjum. Því miður sá ég þetta ekki, því að ég var of upptekinn frammi í sal. Svart og sykurlaust Þegar inn í aöalsalinn var komiö mátti sjá palla mikla meöfram hlið- unum. Þar hafði Svart og sykurlaust komið sér fyrir með margs konar sýningar. Á einum stað var fólk á sólarströnd, annarsstaðar var 6 eða 7 sjónvörpum hrúgað upp í haug, kveikt á þeim og látið loga, og fyrir ofan dansaði svört fígúra umvafin rauðum, sjálflýsandi böndum. Hirð Lúðvíks 14. var mætt á svæðið, og um gólf gengu fígúrurnar hræðilegu sem farið höfðu um bæinn dagana á undan hljómleikunum. Skipst var á aö lýsa upp einstök svið, þannig að úr varð fjölbreytilegt, sjálfstætt sjó til hliðar við hljómleikana. Nýjung. Tónlistin Sama kröftuga sköpunargleðin var uppi á teningunum á tónleikasviðinu. Hljómsveitirnar fimm sem Iéku þama voru hver annarri betri. Fyrst komu Svart og sykurlaust. (Það er líka hljómsveit eins og Ogsmáfyrirtækið) með drungalega músik, líklega framleidda meö synthesizerum. Sú tónlist var eins og inngangur til aö setja fólk í rétta stemmningu og tókst það. Næst á dagskrá var Kukl, þar sem saman eru komnir undir einu nafni margir af þekktustu hljómlistar- mönnum landsins, Björk Guðmunds- dóttir, Einar öm Benediktsson, Sig- tryggur Baldursson, Birgir Mogen- sen, Guölaugur Ottarsson og Einar Melax. Sú hljómsveit gaf út plötu um síðustu helgi, tveggja laga plötu sem gefur nokkuð góða hugmynd um það sérstæða sánd sem hljómsveitin hefur komið sér upp á skömmum tíma. Þetta er pönkabillýmúsík í þyngri kantinum, ný túlkun á rokk- tónlist sem ég hef aldrei heyrt áður. Uppákoma í miðbænum Föstudaginn fyrir friðarkonsertinn stóðu nokkrir af þeim, sem þar komu fram, fyrir uppákomu í miðbænum. Um kl. 5.30 geystist hljómsveitin Ogsmá inn í Austurstræti meö hljóð- færi sín. Skömmu síðar komu aðdá- endur hljómsveitarinnar, um tuttugu öskrandi stúlkur, og stilltu sér upp fýrir framan. Mikinn mannfjöida dreif á skömmum tíma að, og hefði hljómsveitin þurft að hafa öflugri magnara á gíturunum. Söngvarinn söng í kalllúður og trommarinn hafði bara tvær trommur. Hljómsveitin lék bráðskemmtilega rokkabillýtón- list sína um stund, en svo komu tíu mótorhjólatöffarar á svæðið með gríðarlegum hávaða. Þeir stilltu sér upp innan um áhorfendur og þeyttu hjól sín í takt við hljómsveitina í síð- asta laginu. Að þvi búnu hurfu hl jóm- sveit, aðdáendur og mótorhjólatöff- ararábraut. Ekki bar á öðru en að fólk skemmti sérvel. Megma i Krókódílamanninum. Næst var Egó. Hún sýndi og sannaði að hér er á ferðinni hljóm- sveit sem ekki verður auðveldlega rutt af stallinum: Vinsælasta hljóm- sveit landsins. Eftir slappa byrjun með nýjum mannskap hefur Egó fundiö sina leið að hjörtum fólks. Keyrslan á hljómsveitinni var mjög góð, krafturinn og örvæntingin hæfði stemmningunni þetta kvöld. Næst á svið var Ikarus. Likt og Kukl er þessi hljómsveit ný, varð til í kringum plötu Tolla Morthens, The Boys From Chicago. Eins og Kukl hefur hún náð miklum tökum á því, sem hún er að gera, spilar hart og drífandi pönk-rokk. Ikarus eru Bragi Purrkur Olafsson og Kristján úr iss!, og Kommi úr Q4U. Með Ikarus syngja svo þeir Tolli Morthens og Megas. Tolli söng fyrst. Þeir sem hlustað hafa á þlötuna hans geta nokkum veginn gert sér í hugarlund hvernig krafturinn var, ef þeir margfalda með tveimur eða þremur. Fróbært. Svo kom Megas. Það var mjög skemmtileg reynsla að sjá manninn koma þarna fram, eftir 5 ára hlé, og syngja á stærstu hljómleikum sem hér hafa verið haldnir lengi. Það er eins og hann hafi beðið eftir því að sjá hreyfinguna sem hann átti þátt i að gróðursetja á árunum fyrir 1979, vaxa og blómgast, þar til tími var kominn til fyrir hann að stíga fram á ný. tslenskri rokktónlist er ómetan- legur styrkur í því að fá hann fram á sjónarsviðið á ný. Ekki voru kanónurnar búnar. Að koma fram á eftir Bubba, Tolla og Megasi hlýtur að vera erfitt, en Von- brigði sýndu það og sönnuöu að hún gat það og slapp vel frá því. Þeir kumpánar héldu áfram þeirri keyrslu og þehn krafti sem einkennt hafði alla tónleikana. Hljóðfæraleik- urinn er orðinn frábær, og hljómlist- in er mjög tjáningarrík. Síðastir á dagskrá voru CRASS, anarkistamir frá Bretlandi. Þeir höfðu fyrir hljómleikana lýst því yfir að þetta væru ekki þeirra hljómleik- ar, þeir væru ekki stjömumar. Þeir brugðust við þeim vanda að vera breskar „stjömur” á íslenskri friðarhátíð með því að vera með erf- iöasta og torskildasta prógrammið þetta kvöld. Þeir bjrjuðu á því að sýna torræða og flókna kvikmynd. Inn í hana kom Annie Anxiety söng- kona í CRASS og söng eitt lag með sérstæðum undirleik. Síðan hélt kvikmyndin áfram, en eftir skamma hríö byrjaöi hljómsveitin að spila. Hún var eins og stórskotahríð, tíu sinnum harðari en allar íslensku hljómsveitimar, eins og harmleikur atómstyrjaldar tónsettur. Þetta, ásamt kvikmyndinni var heldur mik- ið fyrir áhorfenduraa, sem þegar höfðu hlustað á fjögurra tíma dag- skrá með höröu rokki. Þeir fóru að tinast burt. Mér finnst að CRASS sé eina er- lenda hljómsveitin sem hefði getað spilaö þama og sloppið frá því eins og hún gerði, með fullri listrænni DV-myndir Ragnar Th. sæmd, og með því að sýna jafnframt fulla virðingu fyrir friðarbaráttu Is- lendinga. Salurinn Eg hef aldrei orðið vitni aö öðru eins samspili listamanna og áhorf- enda og þetta kvöld. Andrúmsloftið var rafmagnað og þegar fulltrúar er- lendra friðarhreyfinga héldu stutt ávörp, fagnaði gjörvallur salurinn. Fólk var raunverulega komið þama til að krefjast framtíðar og sýndi að það er ástæða til þess. Þótt Höllin væri troðfull var lítið um skrílslæti og fyllirí, mun minna en á mun fá- mennari konsertum fyrr í sumar í Höllinni. Ýmsir forráðamenn Alþýðubanda- lagsins vom þama á sveimi og einn þeirra kom á bak við sviö til að óska mönnum til hamingju með árangur- inn. Honum var heldur fálega tekið, því að hreyfingin „Við krefjumst framtíðar” er ekki flokkspólitísk og vffl helst ekki að einhverjir stjóm- málaflokkar séu að eigna sér hana. Þetta, er eins og kom fram þetta kvöld, hreyfings fólksins, venjulegs fólks sem engu hefur að tapa nema framtíðinni. Þess má geta að lokum sem dæmi um stemmninguna og sköpunar- gleöina sem fólst í hljómleikunum og undirbúningi þeirra, að meðlimir CRASS létu svo um mælt að svona tónleikar sæjust ekki á Englandi nema hjá þeim sem allra mestan pening hafa, eins og David Bowie. Hins vegar var öll vinna við „Við kref jumst framtíðar” unnin ókeypis. Þetta var sigur, sigur fyrir íslenska rokktónlist og sigur fýrir íslenska friöarbaráttu. Aðstandendur hljómleikanna höfðu leyfi fyrir tæplega 4000 manns og seldu alla þá miöa. Reikna má með að töluverður fjöldi í viðbót hafi komist inn, en fjöldi manns þurfti frá aðhverfa. Bubbi vmtfmr frioarfananum. Umsjón: Árni Daníel DV. LAUGARDAGUR17. SEPTEMBER1983.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.