Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Page 17
• J*W í mfr’Sfrrmr»r»« _ , ....
DV. LAUGARDAGUR17. SEPTEMBER1983.
9r komu við sögu í morðinu á lækninum.
óiastýran fræga til vinstri og nýja vinkon-
til hægri.
Herman Tamower, enner höfunda
Scarsdaie-kúrsins, en henn var
myrtur fyrir nokkru.
staklega fyrir framlag hennar við
samningu bókarinnar...
„Jú, jú, oft er þetta nefnt við mig af
blaðamönnum. Sannleikurinn er sá að
hún kom aldrei nálægt þessari bók. Dr.
Tamower óskaði eftir því að henni yrði
þakkað. Hann var mikill öðlingsmaður
sem var svo rakkaður niður af blöðun-
um eftir morðið. Herman hafði reynt
að losna úr sambandi sínu við þessa
konu i tvö ár og ætlaði aö giftast Lynn
Tryforos. Skólastýran ók 6 klukkutima
leið með byssu og byssugögn. Eg tel
það augljóst að hún ætlaði að myrða
þau bæði, Hi og Lynne. Hún var sem
betur fer ekki hjá honum þegar þessi
voðaverknaður var framinn. í raun-
inni talaði Jean Harris í mín eyru held-
ur illa um bókina og fannst það fyrir
neðan virðingu hjartalæknis að sinna
Baker ásamt aiginkonu sinni
Nataiio.
megrunarmálum. Þetta tvennt er þó
óneitanlega skylt hvort öðru. Eftir
moröið dundu yfir alls konar undarleg
skrif þar sem morðiö var réttlætt. Ein
blaöakona reyndi að „pumpa” mig um
vin minn Hi Tarnower. Hún sagði mér
það umbúðalaust að hún væri Jean
Harris og Jean Harris væri hún sjálf!!
Konugreyið lifði sig kannski sterkt inn
í atburðarásina. Ég hef hins vegar
aldrei getað viðurkennt að hægt sé að
taka lif annarrar persónu án þess að
vera refsaö harðlega fyrir.”
Herra Baker, þennan
Ifkama átt þú
— Hvert er erindið með lslandsferð-
innl?
„Við Natalie höfum lengi ætlað hing-
að. Fyrir tveimur árum vorum við að
því komin að ferðast hingaö. Það var
eitthvert félag sem stendur fyrir ævin-
týraferðum. Okkur skildist að maður
ætti að taka land frá opnum báti og
vaða til strandar gegnum ísjakana...
Okkur leist ekki á það, satt að segja.
Auðvitað var þetta misheppnaður
auglýsingaáróður. En nú erum við
komin til að ræða viö útgefendur okkar
hér og auðvitað reyni ég að örva sölu
bókarinnar hér eins og ég geri alls
staðar. Eg veit að þetta er góð bók,
kúrinn virkar. Alltaf er ég að hitta fólk
sem þakkar mér, líka hérna í Reykja-
vík. Það eru bestu launin. Einu sinni
sneri ung stúlka sér að mér og sagði
bara svona blátt áfram: „Herra
Baker, þennan líkama átt þú!” Ég
vissi ekki hvemig ég átti að bregðast
við þessu en áttaöi mig svo. Hún hafði
lést um heil ósköp og satt að segja var
hún vel vaxin, stúlkan, og ég var bara
ánægður með að vera eigandi slíks lík-
ama.
Hér á landi hefur hvert ævintýrið
rekið annað. Þetta land er alveg ein-
stakt, svo ómengað og fallegt. Og svo
er það maturinn! Maður verður alltaf
að passa sig. Hér er mikið lostæti á
borðum. Líklega hefur maður þyngst í
ferðinni. Svarið við því verður Scars-
dale-fæði í ca 5 daga og þar með fara
aukakílóin. Við Natalie höfum marg-
háttaða reynslu af þessu,” sagði
Samm Sinclair Baker að lokum.
-klp
RÁÐSKONA - FÓSTRA
óskast á heimili í Reykjavik i byrjun nóvember, framtiðarstarf.
Þrennt verður i heimili, hjón og ungbarn. Verður að vera
þroskuð og bárnelsk. í boði eru góð laun og séribúð á staðn-
um.
Vinsamlegast sendið nafn, símanúmer og greinargóðar
upptýsingar um menntun, heimilishagi, aldur, fyrri störf og
annað það sem skipt getur máli til auglýsingadeildar DV sem
fyrst merkt „ Öryggi".
RITARI ÓSKAST
Viðskiptaráðuneytið óskar að ráða ritara frá 1. október nk.
Góð kunnátta í vélritun og ensku nauðsynleg.
Umsóknir sendist viðskiptaráðuneytinu Arnarhvoli fyrir
25. þ.m.
Reykjavík, 15. september 1983.
FORSTÖÐUMAÐUR
ÓSKAST
fyrir verndaðan vinnustað sem fyrirhugað er að taki til
starfa í Kópavogi. Forstöðumaðurinn skal m.a. undirbúa
rekstrarþætti vinnustaðarins, útvega og velja verkefni, sjá
um aðföng og sölu framleiðsluafurða og annast rekstrar-
stjóm vinnustaðarins.
Umsækjandi þarf að gefa hafiö störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 1. okt. og liggja umsóknareyðublöð
frammi á félagsmálastofnun Kópavogs. Nánari upplýsingar
veita félagsmálastjóri og atvinnumálafulltrúi í símum 41570
og 46863.
Félagsmálastofnun Kópavogs
Digranesvegi 12.
í Beint flug í sólina !
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
■
"I
I
I
I
Sumarauki á strönd Benidorm í þrjár vikur. Beint flug
báðar leiðir, möguleiki á að hafa viðkomu í London
eða Amsterdam á heimleið.
Sérstaklega heppileg ferð fyrir aldraða. Þeim til að-
stoðar verður Gréta Halldórs, hjúkrunarfræðingur
frá Akureyri.
Sértilboð — verð frá 16.670f í íbúðum.
verð frá 20.910r á hóteli með fullu fæði.
Staðgreiðsluafsláttur — barnaafsláttur og hagstæð
greiðslukjör.
Notið þetta einstaka tækifæri og njótið þess að fram-
lengja sumarið... á Spáni
Ó<
<o
<o
CÁ <
FERÐA..
MIÐSTODIIMj
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133.