Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Síða 7
DV. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983.
Þóp Gnnnarsson, sparlsjóðsstjóri
og lærður loftskeytamaður:
Alveg út
úr kor t -
inusem
loft-
skeyta-
maðnr
vera allt í öllu og þvælast á milli þess
sem mér eldri starfsmenn héldu að ég
gæti gert i það aö verða svona nokkurs
konar skrifstofustjóri sparisjóðsins.
Síðan liðu bara tiltölulega fá ár í þvi
starfi þar til ég var orðinn aðstoðar-
sparisjóðsstjóri og núna sparisjóðs-
stjóri.
En þó ég hlaupi svona yfir í nokkrum
orðum þá eru tuttugu og tvö ár sem
þetta hef ur verið aö gerast.
Alveg út úr kortinu
sem loftskeytamaður í dag
Eina gagnið sem ég hef haft af loft-
skeytanáminu er innsýn í öll radíóraf-
magnstæki en það hefur ekki haft
mikla hagnýta þýðingu í því starfi sem
ég er í núna. Sú menntun sem má seg ja
aö ég hafi í dag til aö sinna sparisjóðs-
stjórastarfinu er náttúrlega eingöngu
gagnfræðapróf eins og það var á
þessum árum og svo bara það sem ég
hef lært í skóla lífsins. Þá má nú
nokkuð læra þar gegnum árin,” segir
Þór.
„Eina starfið sem ég hef verið í sem
tengist loftskeytum eru f jórir mánuðir
á radióverkstæði Landssímans milli
fyrsta og annars bekkjar i loftskeyta-
skóianum. Og það væri alveg út úr
kortinu að ætla að fara að starfa sem
loftskeytamaður í dag. Því þó svo að
ég geti mótað morsstafi í rólegheitum
á morslykli þá tæki það alveg lágmark
þrjá til fjóra mánuði að ná upp ein-
hverri leikni þannig að maður gæti
nýtt morsið eðUlega.
MikUl þáttur í þessu námi var við-
geröir á tækjum, sendum, lóran-
tækjum og radar. Síðan gerist það í
kjölfar þess að ég lýk náminu að
það verður alger bylting í byggingu
þessara tækja. Eg lærði á nánast
aUt sem lampatæki. Það voru engin
transistortæki komin á markaðinn. OU
sú menntun sem ég hafði á sínum tíma
er því fyrir bí má segja.
En það hefur nú þurft að fylgjast
með þróuninni líka við að vinna í giari-
sjóðnum. Þegar ég byrjaði að vinna
hér í sparisjóðnum var aUt bókhald
handskrifað. Það var tU ein ritvél.
Tvær eða þrjár rafknúnar reiknivélar
og þrjár tU f jórar handknúnar reikni-
vélar. Smám saman fengum við raf-
knúnar reiknivélar. Þetta handvirka
kerfi var við lýði alveg fram í maí ’65.
Þá fengum við bókhaldsvélar sem var
alger bylting. Með tUkomu þessara
véla náði ég forskoti á þá starfemenn
sem unnu hérna þá og ekki höföu unniö
með svona vélum. Eg var fljótur að til-
einka mér kerfið og á skömmum tima
kominn fram úr hinum. Eg hafði verið
svo heppinn að skömmu eftir að ég
byrjaði hérna fór ég á bankamanna-
skólann og þar komst ég í samband við
marga í bönkum í Reykjavík þannig að
þangaö gat ég með tUtöiulega ein-
földum hætti sótt upplýsingar um
þróun í bókhaldi og afgreiðsluhætti og
slíkt.
Allt handskrifað
Þór segir hvemig aUt hafi verið
unnið meö handskrift. Eina ritvélin
sem var tU var notuð til að skrifa bréf
til annarra banka og sparisjóöa. Eg
skrifaði nú frekar Ula á þessum árum
og lítið betur í dag. Svona svipaö og þú
ert að gera,” segir Þór og bendir á
blaðamann sem streitist við. ,,Svona
iUiesanlegt. Það kom fyrir að ég þurfti
að skrifa athugasemd meö stofnun
sparisjóðsbókar. Og þaö fór iUa hjá
mér og tók mikið pláss á örkinni. Eitt
sinn endaði með því að ég tók örkina úr
og vélritaði. Ég gat vel vélritað, hafði
lært það í loftskeytaskólanum.
Einn af eldri starfsmönnunum
komst í það og ég fékk hinar mestu
ákúrur fyrir og varð að taka blaðið úr
og henda því og skrifa það með miklu
klúðri. Þetta segir ég ekki til að hnýta i
þetta fólk sem nú er látið heldur
eingöngu tU að segja hvaða sjónarmið
réöu hér á þessum árum. Smám
saman færðist þetta svo út í að breyt-
ingar áttu sér stað. Það má eiginlega
segja að við lægjum á því laginu hér,
sem vildum breyta, að í hvert skipti
sem einhver af eldri starfsmönnum
varð veikur eða fór í fri var rokið tU og
kerfinu breytt á meðan hann var í
burtu. Þetta fannst manni alveg
sjálfsagt á þessum árum,” segir Þór
og brosir og verður svo alvarlegur.
„En eftir á að hyggja var þetta ægUegt
álag á þetta fólk sem ár eftir ár hafði
bara unnið í ákveðnum f arvegi.
En þetta var gert i fullu samráði við
sparisjóðsstjóra, sem þá var Matthías
A. Maöiiesen, og smám saman tókst að
þróa bókhaldið upp í mjög gott bók-
haldskerfi þannig að í dag, þegar búið
er að kúvenda öUu og setja i tölv-
ur hjá Reiknistofu bankanna, hjálpum
við gjarnan öðrum sparisjóðum við aö
skipulegg ja bókhald sitt.”
Þú hefur lært starf þitt smám saman
ígegnumárin?
„Fyrsti vísirinn sem ég fékk af þvi
að geta sett mig inn í starfið var nám-
skeið á vegum bankaskólans. Þar opn-
aðist kunningsskapur við stórán hóp
manna á svipuðum aldri og ég var
sjálfur og suma eldri. Og ég gat leitað
tU þessara manna því að þeir voru aUir
persónulegir kunningjar mínir. Sumir
af þessum mönnum eru núna í aDs kyns
lykUstöðum í bankakerfinu. Þeir sem
hafa ílengst. Þessa menn gat maður
heimsótt, fengið hjá þeim hugmyndir
og eyðublöð sem hefði verið töluvert
þungur róður að útbúa sjálfur og alls
ekki verið eins vel hugsað því þetta
voru allt saman hlutir sem þeir voru
búnir að þróa. Eini hluturinn sem var
notaöur í sparisjóðnum þegar ég byrj-
aði og er til enn héma er ritvéUn sem
ég hef sagt frá. Nú sitjum við héma
með ýmiskonar búnað og ég býst við aö
eftir tvö tU þrjú ár verði búið að kass-
era þessu öllu og komin ný tæki og bún-
aður tU að koma á beinlínuvinnslu. ”
Með þessum orðum kveðjum við
sparisjóðsstjórann sem Iærði aö verða
loftskeytamaður en situr hú inni á
skrifstofu með míkrófUmuskjá við
hUðina á skrifborðinu og elektróníska
reiknivél fyrir framan sig.
Mann sem auk þess að hafa lært eitt
og starfað við annað getur raunar stát-
að af því að hafa byr jað sem sendiU hjá
fyrirtækinu sem hann nú stjómar.
i
Snillingurimv sem þú getur
tekib tíl morgunverbar.... SHARR
Nú loksins færðu raunverulega hjálp með örtölvu.
Nýja SHARP PC 1500 vasa-örtölvan er snillingur sem þú getur
tekið með þér á fundi, fyrirlestra og að morgunverðarborðinu.
PC 1500 hefur BASIC forritunarmál og möguleika sem aðeins
stærri smátölvur hafa.
Þegar PC 1500 er tengd við hinn fullkomna 4 lita prentara,
er hún ein af öflugustu vasa-örtölvum í heimi.
Útreikninga má gera hvenær sem er, með vissu
um nákvæmar og öruggar niðurstöður.
Áætlanir, færslur, söluyfirlit o.fl. nauðsynleg gögn má
endurvinna á auðveldan og fljótvirkan hátt, og fá
niðurstöður jafnhraðan með einu handtaki. Með öðrum
orðum: PC 1500 vefst ekki tunga um tönn.
Stórt minnisrými allt að 11.5K bætar.
4ra lita útprentun, 6 forrita lyklar.
Hin nýja PC 1500 er bylting í vasa-örtölvum - og frá SHARP,
þar sem frábærar hugmyndir verða að veruleika.
Tæknlupplýslngar
PC 1500 VASA-ÖRTÖLVA:
Reiknisstafafjöldi:
Forritunarmál
CPU (miöeining)
Minni
Minnisverndun
Skermur
10 stafir (mantissa) 2 stafir (exp.)
BASIC
C-MOs 8-bita CPU
ROM. 16K bætar
RAM: 3.5K bætar. stækkanlegt í 11 5K bæta
C-MOS rafhlaöa „back-up"
7 x 156 punkta grafískur
(Enskt lyklaborö meö litlum og stórum
stöfum, ásamt tölustöfum og sértáknum)
CE 150 grafískur litaprentarí/Stýrelnlng fyrir segulband:
GRAFÍSKUR PRENTARI:
Útprentun talna
Prentarakerfi
Prentmáti
Stærö talna
Prentstefna
Lágmarksskrefalengd
Innbyggö eilíföarrafhlaöa
Staölaöir 18 tölustafir (eöa 36.18.
12.9, 7.6. 5.4 tölust. að vild)
X-Y ása teiknara kerfi
Grafískur
9 stæröir frá 1,2 x 0.8 mm — 10,8 x 7,2 mm
Hægri, vinstri. upp, niöur
0.2 mm
SEGULBANDSSTÝRING: Allt aö tvö segulbönd tengjanleg
CE 151 MINNISEINING: 4-K bætar C-MOS RAM
CE 155 MINNISEINING: 8-K bætar C-MOS RAM
HUOMBÆRI^ESií
HUOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999/17244
tfúsptf
HVÍLD - MEGRUN
LÍKAMSRÆKT -
ÚTIVERA
Leitið ekki langt yfir skammt
VETRARFRÍIÐ
• ÞARFTU AÐ MISSA NOKKUR
AUKAKÍLÖ?
• ÞARFNASTU HVILDAR?
• VILTU LOSNA FRÁ AMSTRI
HVERSDAGSINS?
VIÐ HÖFUM LAUSNINA
Sérhæft starfsfólk svo sem læknir, íþróttakennarar, sjúkraþjálfi, leiðsögumenn
og lipurt hótelstarfsfólk mun sjá til þess að þér líði sem best.
Dagskrá:
ÁRDEGI:
Kl. 08.00 Vakiö gegnum hátalarakerfi hússins
með léttri tónlist og líkamsteygjum.
Kl. 08.15 Borið á herbergi heitt sítrónuvatn,
drukkið meðan klæðst er (íþrótta-
galli).
Kl. 08.30 Morgunleikfimiísal.málogvog.
Kl. 09.30 Morgunverður.
Kl. 10.30 Sund — gufa — heitur pottur.
Kl. 11.00 Frjáls timi.
Kl. 12.00 Hádegisverður.
SIÐDEGI:
Kl. 13.00 Hvíld.
Kl. 14.00 Gönguferðmeð
fararstjóra.
Kl. 15.00 Létt miðdegiskaffi
Kl. 15.30 Nudd.
Kl. 17.00 Frjáls tími.
Kl. 19.00 Kvöldverður.
KVÖLD:
Kl. 20.30 Kvöldvaka.
Stutt ganga fyrir svefn.
Verð á mann á viku:
Kr. 9.750
Kr. 10.350
2
1
m m/baði.
m m/baði.
Innifalið í þessu verði er:
Gisting, allar máltíðir, læknisskoöun, sund, gufa, heitur pottur,
leikfimi, nudd, gönguferðir með fararstjórn, fræðileg erindi, flug
og transfer flugvöllur — hótel — flugvöllur.
ATH. Hámarksfjöldi í hópi er 20 manns. Áskilinn er réttur til
breytinga á ofangreindu verði.
Til áramóta:
1. vika 02/10 -09/10 '83
2. vika 16/10-23/10 '83
3. vika 06/11-13/11 '83
4. vika 20/11-27/11 83
Söluaðilar:
Hótel Húsavík,
Ferðaskrifstofa rikisins,
Ferðaskrifstofan Úrval,
Ferðaskrifstofan Útsýn
og ferðaskrifstofur víða
um land.
a
Húsavik
Sími 96-41220