Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Side 13
ió
3. verðlaun Kristín Briem. Nafn: Sumarið
sinn hátt. I öðru sæti varð mynd
Einars Halldórssonar, vel út-
færð og nákvæm mynd. Þó svo
að myndefnið geti vart talist
frumlegt er myndin tæknilega
vel gerð. Myndskurðurinn og
myndbyggingin er, þrátt fyrir
leifturhraða, furðu nákvæm.
Ljósmyndaranum hefur tekist
að „frysta” augnablikið! I
þriðja sæti er, eins og fyrr segir,
Kristín Briem með mynd sem
byggist á inntakinu. tslenska
sumarið er sett á svið með sól-
gleraugu, regnhlíf, sólaroliu og
svaladrykk! I svart-hvíta
flokknum varð Kristinn Helga-
son í fyrsta sæti með einfaida og
skemmtilega mynd. Hún er vel
unnin auk þess sem hún sýnir
okkur brot af hversdagsleikan-
um út frá mjög sérstöku sjónar-
horni. I öðru sæti varð mynd
Davíðs Þorsteinssonar sem er
eínnig einföld og afar hefðbund-
in. Þó svo að myndskurðurinn
mætti vera öllu nákvæmari kem-
ur hann ekki að sök því það er
birtan sem gefur myndinni gildi.
Baldur Kristjánsson á mynd í 3.
sæti og er hún ein af fáum mynd-
um sem lýsir hita og sól enda
tekin á erlendri grund. Myndin
er einföld, skemmtilega samsett
uppstiliing og miðlar vel
áhyggjuleysi sumarfrísins!
■
B
(