Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Page 15
DV. LAUGÁÉDAGUR1. OKTÖBÉR1983.
15
SNÁKA-
HOFK)
Eitt af sérkennilegustu hofum
Austurlanda er hið svonefnda
Snákamusteri í héraðinu Arakan í
Burma.
Þetta mannvirki er tæplega sextán
metrar á hæð og minnir ytra útlit
þess á upphringaðan snák. Gengt er
inn í þessa furðulegu byggingu þar
sem er bænahús búddhatrúarfólks.
Fólk sem bitið hefur verið af eitr-
uðum snákum er fært til þessa must-
eris — oft frá fjarlægum stöðum —
þarsemþaðerlátið biðjast fyrir svo
þaö megi eiga von um að halda líf i.
Lækningarmáttur þessa sérkenni-
lega hofs hefur ekki verið staðfestur,
en víst er að búddhatrúarfólk það
sem lent hefur í gini banvænna snáka
skundar þangað fljótt.
ljAðu
MÉR
EYRA
Marquis de Pélier, bóndi nokkur
á Bretagne-skaga í Frakklandi,
hefði betur látið það ógert að hvísla
nokkur vinsamleg orð í eyru
drottningar Lúðvíks XVI, er þau
hittust af tilviljun í anddyri í leik-
húsi nokkru í París þann annars
ágæta dag sautjánda júní árið 1786.
Kóngi Lúðvíki fannst þetta hvisl
bóndans í eyru konu sinnar ekki
vera tilhlýðilegt og benti fylgdar-
mönnum sínum því á að fangelsa
manninn.
Aumingja Pélier mátti dúsa í
fangelsi öll stjómarár Lúðviks
XVI., því hinn síðarnefndi vildi
með engu móti fyrirgefa honum
þessa saklausu yfirsjón meöan
hann hafði aldur og vald til. Þegar
Lúðvík var allur átti að taka mál
Pélier til dómsmeðferðar og var
hann í því sambandi fluttur úr dý-
flissunni í höfuðborginni til fanga-
búða nálægt borginni Lourdes. En
áður en mál hans komst í dómsali
þar blossaði franska byltingin upp
með öllum sínum látum og stjóm-
leysi um tíma og féll mál aumingja
Pélier þar með í gleymsku í nokkur
ár.
Þegar félagi Napóleon komst til
valda um og eftir aldamótin 1800
átti að nýju að dusta rykið af máli
Pélier, en þá lagði Bonaparte út i
styr jöld sem umtumaöi ekki aöeins
lífi allra Frakka heldur líka stjórn-
kerfi þeirra. Og aftur féll mál Péli-
erígleymsku.
Það var ekki fyrr en árið 1836,
þegar drottning Lúðviks XVI. hafði
hvílt bein sín (og eyru) undir
grænni torfu í fjömtíu og þrjú ár,
að vesalings Marquis de Pélier var
leystur úr haldi. Hann var þá vel
kominn á efri ár, eöa sjötíu og
tveggja ára, og búinn að sitja í
varðhaldi í rétt fimmtíu ár fyrir
aö hafa hvíslað nokkmm vinsam-
legum orðum í eyra drottningar
sinnar. Þung refsing það, ætti
mönnumaðþykja.
Elliárum sínum varði Pélier á
jörð sinni á Bretagne-skaga þar
sem hann notaöi tímann í lestur
góöra bóka sem var nokkuð sem
hann hafði ekki fengiö en alltaf
langað að gera i marga herrans
áratugi.
Faðir hans hafði haft böðulstitilinn
á undan honum og reyndar höfðu
forfeður hans verið böðlar að atvinnu
langt aftur i aldir, þannig að segja
má að þessi merkilegi starfi hafi ver-
ið arfgengur.
Charles-Baptiste Sanson var eini
sonur föður síns og er sá síðamefndi
lést af slysförum á miðjum aldri var
ekki um annað að ræða, sakir hefðar,
en sonurinn tæki við af honum þrátt
fýrir ungan aldur.
Fyrstu árin sem stráklingurinn
gegndi böðulsstarfinu í heimaborg
sinni, Paris, haföi hann ávallt sér við
hlið aöstoðarmann sem sá um aö
reiða sveðjuna á loft og fella að hálsi
sakamannanna þar eö snáðinn hafði
enn ekki náð kröftum i það faglega
verk.
Eftir þvi sem aldurinn kom yfir
hann náði hann þó tökum á starfinu
og gat sinnt því einn og óstuddur, án
aðstoðarmanns.
Heimssagan greinir ekki frá yngri Sanson sem tók við þeim starfa að-
bööli en snáöanum Charles-Baptiste einssjö áraaðaldri.
ÁSTKÆR
EIGINKONA
Varla hefur nein eiginkona sýnt
manni sínum jafnmikla hjartahlýju
og franska hefðarfrúin Marguerite
Therese.
Hennar ástkæri eiginmaður féll í
stríði Frakka og Þjóðver ja við Alten-
heim í Þýskalandi þann þrítugasta
júli árið 1675.
Ekkjan lifði mann sinn í tuttugu og
niu ár, en allan þann tíma geymdi
hún hjarta hins fallna húsbónda sins
í gagnsæju glerhylki á borði í stof-
unni heima hjá sér. Begg ja vegna við
hylkið lét hún tvö vaxkerti loga í sí-
fellu. Og ekki nóg með þetta, heldur
sat ekkjan samfellt í sjö tíma á
hverjum degi fyrir framan glerhylk-
ið og starði í hjarta elskhuga síns,
full söknuðar og trega.
Verður ekki annað sagt um
Marguerite Therese en hún hafi
verið trú manni sfnum alla ævi.
BÖÐULLINN UNGI
Opið
ALLAN
Z'WS
URCVRLL
STÆRSTA BIFREIÐASTÖÐ BORGA^
ae
|