Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Side 23
' ÖV. LÁÚGÁÍttíÁtitJÍÍ l’ ökföBER 1983. 23 ,Hverjir eru bestir?" Að þessu sinni verður brugðið nokkuð út af vanan- um hér á poppsíðunni. Það sem hœst ber í rokkheimin- um í nútíð verður látið liggja milli hluta en hugað lítillega að fortiðinni. Ástœðan er einfaldlega sú að á fjörur mínar hefur rekið skemmtilega bók sem nefnist „The Illustrated Book Of Rock Records — a book of lists”. Bókin er eftir tvo breska blaðamenn sem lengi hafa ritað um rokktónlistina fyrir þarlend blöð og bókina unnu þeir fyrir Virginfyrirtœkið sem gaf hana út á síðasta ári. Sem nafngiftin ber með sér hefur bókin að geytna lista og runur yfir ólíklegustu fyrir- bœri innan rokksins og hér er einmitt œtlunin að birta nokkra lista úr bókinni. Vœntanlega fá fleiri listar úr bók þessari að fljóta með síðar í vetur. Mest seldu smáskífurnar Þaö er best aö byrja á smáskífun- um. Samkvæmt ofangreindri bók eru eftirtaldar smáskífur hinar söluhæstu allra tima: 1. White Christmas — Bing Crosby (yfir 30 milljón ein- tökl. 2. Rock Around the Clock — Bill Haley & The Comets (yfir 17 milljón eintök). 3. I Want To Hold Your Hand — Beatles (yfir 12 milljón eintök). 4. It's Now Or Never — Elvis Presley (yfir 10 milljón eintök). 5. Hound Dog/Don’t Be Cruel — Elvis Presley (yfir 9 milljón eintök). 6. I'm a Believer — Monkees (yf ir 8 milljón eitök). 7. Diana — Paul Anka (yfir 9 milljón eintök). 8. Hey Jude — Beatles (yfir 8 milljón eintök). 9. Those Were The Days — Mary Hopkin (yfir 8 milljón eintök). 10. Rudolph The Red-Nosed Reindeer — Gene Autry (yfir 7 milljón eintök). I næstu tíu sætum koma síðan Silent Night (Bing Crosby), Can’t Buy Me Love (Beatles), Sugar Sugar (Archies), Mull Of Kintyre (Wings), You’re The One That I Want (Tra- volta og Olivia Newton-John), You Light Up My Life (Debby Boone), She Loves You (Beatles), I’U Be There (Jackson 5), Paper Doll (Mills Brothers) og YMCA (Village People). White Christmas kom fyrst út áriö 1942 og enn selst skífan grimmt fyrir hver jól. Þá er stöðug eftirspurn eftir rokkabillíinu hans Bill Haleys og plötum Bítlanna og Presleys. Söluhæstu breiðskífurnar Þegar kemur að söluhæstu breið- skifunum er nokkuð erfiðara um vik. Þá verður af einhverjum ástæðum að reiða sig meira á áætlanir og get- gátur og þar sem breiðskífur seljast margar hverjar á löngum tíma má búast við stöðugum breytingum á þessum lista. En samkvæmt heimild okkar lítur listinn þannig út: 1. Saturday Night Fever (1977). 2. Grease (1978). 3. The Sound Of Music (1965). 4. Seargeant Pepper's Lonely Heart Club Band — Beatles (1967). 5. Bridge Over Troubled Water — Simon Er Garfunkel (1970). 6. The Beatles (hvíta albúmið) (1968). 7. Abbey Road - Beatles (1969). 8. Tapestry — Carole King (1971). 9. South Pacific (1958). 10. Sing We Now Of Christmas — Harry Simeone Chorale (1958). 111. til 20. sæti eru eru The Dark Side Of The Moon (Pink Floyd), West Side Story, Rumours (Fleetwood Mac), My Fair Lady, Mary Poppins, Meet The Beatles, The First Family (Vaughn Meader), Hair, Songs In The Key Of Life (Stevie Wonder) og Whipped Cream And Other Delights upplögum, sérstaklega söngleikimir (Herb Alpert). Þær plötur sem eru í fyrstu 10 sætunum hafa allar selst í yfir 10 milljónum eintaka en áætluð sala Laugardagskvöldsæðisins er yfir 30 milljón skifur. Margar fyrrtaldar svo og Bítlaplöturnar. Þær söluhæstu á síðasta áratug Viö skulum enn um sinn halda breiðskífa seljast enn í stórum okkur við söluhæstu breiðskífumar og kanna hvaða breiðskífur náðu mestri sölu í Bretlandi og Banda- ríkjunum á síöasta áratug. I Bretlandi lítur dæmiö þannig út (útgáfuár í sviga): 1. Bridge Over Troubled Water (1970), 2. The Dark Side Of The Moon (1974), 3. Tubular Bells — Mike Oldfield (1973), 4. 20 Golden Greats — Beach Boys (1976), 5. Simon & Garfunkel’s Greatest Hits (1974), 6. Elvis’ Greatest Hits (1975), 7. Band On The Run — Wings (1974), 8. 20 Golden Greats — Shadows (1977), 9. The Sound Of Bread — Bread (1976), 10.20 Golden Greats - DianaRoss &TheSurpremes (1977). Bandaríska dæmið er sett fram með meiri fyrirvörum en hið breska. Þar em tölur nokkuö á reiki og eftir- Earandi listi er því að nokkru byggður á líkum: 1. Saturday Night Fever, 2. Grease, 3. Bridge Over Troubled Water, 4. Tapestry, 5. The Of The Moon, 6. Rumours, 7. Song In The Key Of Life, 8. Jesus Christ Superstar, 9. Let It Be (Beatl- es), 10.Hey Jude (Beatles). Nafntoguðustu bootleg-plöturnar Bootleg-plötur komu fyrst fram á síðustu árum 7. áratugarins. Þótt hér sé um að ræða ólöglegar útgáfur með ýmist live- eða stúdíóinnihaldi hefur reynst erf itt að koma höndum yfir þá sem að þeim standa. Fyrsta bootleg- platan sem náði verulegum vinsældum var Great White Wonder sem hafði að geyma áður óútgefið efni með Bob Dylan og The Band. Margir telja að þessí plata haf i selst í nokkrum milijónum eintaka og nefna sumir töluna 6 milljónir. Sem að líkum lætur er nær ómögulegt að gefa upp vinsælustu bootleg- plötumar sem boðnar hafa verið til kaups. Höfundar heimildar okkar I telja sig þó geta talið upp þær tíu bootleg-plötur sem mestri hyUi hafa náö. 1. Great White Wonder (Bob Dylan), 2. Liv’r Than You’Il Ever Be (Rolling Stones), 3. Yellow Matter Custard (Beatles), 4. Live On Blue- berry Hill (Led Zeppelin), 5. I Wanna Be A Rock’n’RoU Star (Elvis Presley), 6. Royal Albert Hall 1966 (Bob Dylan), 7. Bright Lights, Big City (Rolling Stones), 8. Omayyad (Pink Floyd), 9. My God (Jethro TuU), 10. Live At Shea Stadium: The Last Live Show (Beatles). Af nafngiftum . . . Að síðustu skulum við Uta á nokkrar nafngiftir á smáskifum. Auðvitað er eitt lag hvorum megin á slíkum skif um sem yfirleitt eiga ekk- ert sameiginlegt nema hvað þau eru flutt af sömu Ustamönnum. Stund- um bregður þó við að laganöfnin smella skemmtUega saman — oftast óvUjandi. Hér eru nokkur dæmi: Ara You Lonesoma Tonight/I Gotta Know (Presley). Who's Making Love/I'm Trying (Johnnie Taylor). Which Way Do I Get Home/On a Green Line Bus (Splinter). Mary Mary/The Complete Man (Cat Stevens). Try My World/No Thanks (Georgie Fame). Don't Mess Up A Good Thing/Jerk Loose (Fontella Bass & Bobby McClure). Dear Delilah/The Dead Boot (Grapefruit). Need Your Love So Bad/Stop Messin' Around (Fleetwood Mac). Go/Stop (Sounds Incorporated). I'm a Man/Can't Get Enough Of It (Spencer David Group). -TT.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.