Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1983, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1983, Blaðsíða 24
Jiftrt,* .Tno^ia'V'> Í4f CjIP^AiIO A r'.lT*. T T 7#T 22 ’ DV. LAUGARDAGUR15. OKTOBEE1983. Það er víða slátur- tíð um þessar mundir Nú er hafin sláturtíð víðar en hér í Breiöholtinu og í tilefni af því að nú fer verö hækkandi á kindakjöti minnkaði ég birgðir landsmanna um þrjá skrokka ekki alls fyrir löngu enda jókst kaupmáttur ráöstöfunar- tekna minna dálítið um þetta leyti þar sem fyrirtæki nokkurt niðri í bæ hætti þá að vera meðeigandi í frysti- kistunni minni. Þegar við bjuggum við þjóðveg 711 tókum við ekki síður þátt í sláturgerð en aðrir og ég hvatti konuna mína dæmalaust vel til dáða í þessum efn- um í fyrsta sinn sem hún minntist á að taka slátur en dró fremur úr því þaðan í frá því að konan mín hafði nefnilega bjargfasta trú á því að ég gæti saumaö keppi meö einhverju sem hún kallaöi stoppunál. Ég gat að sjálfsögðu ómögulega skilið hvernig henni gat dottiö önnur eins endemis vitleysa í hug, jafn- greind kona og hún væri og hefði þar að auki séð mig reka nagla í vegg og þar fyrir utan væri þaö alls ekki sæmandi afkomendum víkinganna að berjast með stoppunál og spotta við blóðmörskeppi. En ég komst ekki upp með neitt múöur frekar en vant er þvi að saumaskapur kemur víkingum ekki hið minnsta við, hann flokkast undir jafnrétti kynjanna ásamt uppvaski og afþurrkun sem blessaðar eiginkonurnar okkar hafa afsalað sér í hendur okkar af hjart- ans lítillæti. Eg var því fyrr en varði kominn með stoppunál af stærstu gerð í hendumar og byrjaður að reyna að þræöa seglgarnið í nálaraugað sem var að sjálfsögðu allt of lítið og þar að auki á sífelldri hreyfingu. Þegar ég haföi dundaö við þetta dágóða stund fór konan mín aö hlæja aö mér og tala um klaufaskap og annað í þeim dúr og svo mikið þurfti hún aö masa um þetta aö ég komst varla að til að segja henni að þaulvön saumakona eins og hún ætti að vita að þessar stoppunálar væru gerðar fyrir tvinna en ekki þennan andskot- ans kaðal sem ég væri með í höndun- um. Fyrir einhverja slembilukku kom hún þó kaðlinum í gegnum nálar- augaö og ég f ór að sauma. Eg saumaði hvem einasta kepp og vandaöi mig þessi ósköp og til marks um hve vinnubrögðin vom samræmd þá láku þeir allir með tölu, þegar búið að setja gumsið í þá og konan mín fór að kreista þá til að jafna í þeim eins og hún kallaði þaö, spraut- aðist þetta í allar áttir rétt eins og hún væri að skreyta margar rjóma- tertur í einu. Mér fannst þetta dálítið spaugilegt í fyrstu en ég verð hins vegar að viðurkenna þaö að mér var ekki beint hlátur í hug þegar ég Háaloftið Benedikt Axelsson settist við, ásamt konu minni, að bjarga því sem bjargað varð af sláturgeröinni. Það gerðist ýmislegt fleira mark- vert í þessari sláturtíö okkar og þess vegna var það svo sem ekkert til að bæta skapið að hundar sveitarinnar átu um nóttina um það bil öll sviðin okkar sem við höfðum sett út á tröppur til aö halda þeim köldum þar sem frystikistan var full af slátur- keppum saumuðum með kontór-i .sting. Það var þá sem ég lagöi til aö hundahald yröi bannað í sveitum. Þjóðlegur siður Og nú er sem sagt enn ein slátur- tíðin hafin og menn spyrja hver annan hvort þeir séu búnir að taka / > ir tf 5cuna> » / +ssaJ: irtfT itOU^cffC. %cco þcáJVrCr rni^ I Sveit Sævars Þnrbjörnssonar bikarmeistari BSÍ 1983 Sveit Sævars Þorbjörnssonar frá Bridgefélagi Reykjavíkur sigraði í úr- slitaleik bikarkeppni Bridgesambands Islands, sem spilaður var sl. helgi. Andstæðingur Sævars var sveit Gests Jónssonar, sem haföi sigrað sveit Karis Sigurhjartarsonar í undan- úrslitum með aðeins 2 impum. Sævar hafði hins vegar unniö sveit Olafs Lárussonar með nokkrum mun. Úrslitaleikurinn var sýndur á töflu og hafði sveit Sævars forystu allan leikinn. l.lota: Sævar 53—Gestur 28 2. lota: Sævar 38—Gestur 43 Staða 91—71 3.1ota: Sævar 58—Gestur 24 Staöa 149-97 4. lota: Sævar 45—Gestur 50 Heildarúrslit: Sævar 194—Gestur 147. 1 sveit Sævars spiluöu auk hans: Hörður Blöndal, Jón Baldursson, Sig- urður Sverrisson og Valur Sigurðsson. Siguröur Sverrisson er hugmynda- ríkur spilari og í spilinu í dag, sem er frá úrslitaleiknum, reynir hann að grugga vatniö fyrir andstæðingunum með frábærum árangri. Suður gefur, allir utan hættu. Norhur * 732 109875 0 G764 *9 Vf.nTUK AuíTL'k * K84 *D6 V DG63 O Á95 OK108 * 653 SUOUK * ÁG1095 VÁK4 OD32 *G8 * ÁKD10742 I lokaöa salnum sátu n-s Sigurður og Valur, en a-v Gestur Jónsson og Sverrir Kristinsson. Þar gengu sagnir áþessaleið: Suður Vestur Norður Austur 1 s pass 2 L! pass 2 G pass 4 S pass pass pass Siguröur fylgir skemmtilega eftir blekkisögn sinni með fjögurra spaða sögninni, því hann telur yfirgnæfandi líkur á því, að a-v geti unnið úttekt. Varla er hægt að ásaka Gest fyrir að komast ekki í fimmlaufagame-ið, en við skulum líta á árangurinn í opna salnum. Þar spiluöu n-s Sigfús ö. Ámason og Jón P. Sigurjónsson, en a-v Jón Baldursson og Höröur Blöndal. Nú fóru sagnir nokkuö á annan veg: Suöur Vestur Norður Austur 1S pass 1G 2L pass 3L pass 3G pass pass pass Margir hefðu eflaust sagt tvö grönd á spU vesturs í stað þriggja laufa, en austur hafði ekki áhyggjur af hálita- fyrirstööunum og renndi sér í þrjú grönd. Engin leið er að hnekkja því spiU og eftir spaðatíuútspil suöurs vann Jón fimm grönd með því að spila strax á spaðakóng. Sigurður og Valur höfðu oröið tvo niður í lokaöa salnum og tapaö 100 og sveit Sævar græddi því 8 impa á spilinu. Bridgefélag Selfoss og nágr. » ÚrsUt eftir 3. umferð af Höskuldar- mótinuð. okt. 1983. 1. Vilhjálmur—Þórður Stig 379 2. Kristján—Gunnar 377 3. Eygló—Valey 355 4. Brynjólfur—Bjami 354 5. Sigurpáll—Gunnar 348 6. Sigfús—Kristmann 347 7. Ragnar— Iiannes 343 8. Hermann—Magnús 338 9. Kristján—Valgarð 334 10. Guðmundur—Jón Bjami 330 11. Gestur-Sæmundur 315 12. Leif—Runólfur 312 13. Úlfar—Tómas 309 14. Gunnlaugur—Eriingur 306 15. Bjami—Hörður 304 16. Guðjón—Hrannar 302 17. Stefán—Þorvaldur 285 18. Sigurður—Þorvarður 284 19. I.eifur—I.eiflir 281 20. Sigurður Reynir—Valgcir 277 Minningarmótið um Höskuld Sigur- geirsson er jafnframt aðal- tvímenningskeppni félagsins, og á eftir að spUa tvær umferðir enn. Stóra-flóridanamótið sem haldið verður 15. okt. nk. er nú fuUbókað þar sem 40 pör hafa skráð sig í keppnina. Bridgesamband íslands Islandsmót kvenna verður haldið 21. og 22. okt. Spilað verður með baromet- erfyrirkomulagi og hefst spUa- mennska kl. 8, og er áætlað að keppni ljúki kl. 6 á laugardeginum. Þær konur sem hafa ekki nú þegar látið skrá sig geta skráð sig í síma 18350 í síöasta lagi á mánudag eöa hjá Bridgefélagi kvenna á mánudagskvöld. íslandsmót í blönduðum flokki (parakeppni) verður haldið 23. okt. SpUaðar veröa tvær umferðir með Mitehel fyrirkomulagi, ein um daginn og önnur um kvöldiö. Bæði mótin verða spiluð í Hótel Heklu. Tekið verður við þátttöku i blandaða flokkinn tU föstudags. Bikarkeppnin Þeir sem ekki hafa sent inn skýrslu um spUara í vinningssveitum eru beðnir um aö gera það sem fyrst. XSS Bridge Stefán Guðjohnsen Bridgefélag Kópavogs Eftir aðra umferð í hausttvímenningi félagsins er staðan þessi: stig Vilhjálmur Sigurðss.- Sturla Geirsson 491 GrímurThorarenscn-Guðm.Pálsson 482 Guðrún Hinriksd.—Haukur Hanness. 475 Stefán Pálsson-Rúnar Magnússon 462 Síöasta umferð verður spUuð næsta fimmtudag. Laugardaginn 8/10 var keppni mUU Selfoss og Kópavogs í sveitakeppni. Sex sveitir mættu, úrsUt uröu: B.S. B.K. Stig Þórður Sigurðsson- Friðjón Þórhaliss. 20—0 Kristján M. Gunnarss.- Ragnar Björnsson 16—4 Valgarð Blöndal-Björn Halldórss. 0—20 Sig. Hjaltason-Sig. Vilhjálmsson 2—18 Brynjólfur Gestss.-Sig. Sigurjónsson 0—20 Sigurður Gestsson-Grímur Thorarensen 14—6 Samtals: Selfyssingar 52. Kópavogur68. TBK Aðalfundur félagsms var haldinn að Hótel Sögu mánudaginn 10. október kl. 20.30. Meðal annars á dagskrá var verðiaunaafhending og stjómarkjör. Fráfarandi formaður, S.S., gaf ekki kost á sér tU endurkjörs. Núverandi stjórn er skipuð þessum mönnum: Formaöur: Tryggvi Gíslason. Varaformaður: Gísli Tryggvason. Ritari: Karl Nikulásson. Gjaldkeri: Rafn Kristjánsson. Áhaldavörður: Bragi Jónsson. Varamennístjórn: Anton R. Gunnarsson blaðafuUtrúi, Ingólf ur Böðvarsson. Síðastliðinn fimmtudag var áfram haldiö hausttvímenningskeppni félagsins í Domus Medica aö venju, þ.e.a.s. 2. kvöldið af 5. Spilaðer í tveim 14 para riðlum. Hæstu skor fengu. A-riðill Ingóifur Böðvarss.-Bragi Jónssou 204 Þorfinnur Karlsson-Gunni. Kristjánss. 194 Helgi Ingvarsson-Gissur S. Ingólfsson 192 B-riðUI Sigtryggur Sigurðss.-Guðmundur Péturss. 199 Stefán Guðjohnsen- Þórir Sigurðsson 187 BenedUit Olgcirss.-Eymundur Sigurðss. 186 Eftir tvö kvöld er staöan þessi: Stig IngólfurBöðvarss.-Bragi Jónss. 367 Anton Gunnarss.-Friðjón ÞórhaUss. 366 Stefán Guðjohnsen- Þórir Sigurðsson 364 Sigtryggur Sigurðsson- Guðm. Pétursson 358 Þorfinnur Karlsson-Gunnl. Kjartansson 354 Benedlkt Olgeirsson- Eymundur Sigurðsson 350 Gunnlaugur Óskarss.-Helgi Einarss. 341 Guðrún Jörgensen-Þorsteinn Kristjánss. 332 Keppninni veröur svo fram haldiö næstkomandi fimmtudag kl. 19.30. Keppnisstjóri er Agnar Jörgensen. Bridgefélag Reykjavíkur Nú er lokiö þremur kvöldum af fjórum í hausttvímenningi félagsins. Þessi pör eru efst og spila þau í A-riðli síðasta kvöldið: Jón Baldurss.-Hörður Blöndal 552 Guðlaugur Jóhannss.-Orn Arnþórss. 547 HermannLáruss.-ÓlafurLáruss. 544 Jón Ásbjörnsson-Símon' Símonars. 542 Hörður Arnþórss.-Jón Hjaltas. 520 Guðmundur Sveinsson-Þorgeir Eyjólfss. 512 HelgiNielsen-AlisonDorash 508 JónP. Sigurjónss.-Sigfús Árnas. 508 Ásgelr Stefánss.-Jakob Kristinss. 504 Georg Sverrisson-Kristján Blöndal 501 Ásmundur Pálss.-Karl Sigurhjartars. 501 Hallgrímur Hailgrímss,- Sigm.Stefánss. 495 Sigurður Sverriss.-Valur Sigurðss. 4985 Hrólfur Hjaltason- Jónas P. Eriingss. 494 Síðasta umferöin verður spiluð nk. miðvikudag 19. okt., en 26. okt. hefst aðalsveitakeppni félagsins og eru væntanlegar þátttökusveitir minntar á aðskrásigsemfyrst. MeðaIskorl56. Eins og kunnugt er af fréttum sigraði bandaríska sveitin þá itölsku í æsispenn- andi úrslitaleik um heimsmeistaratitilinn. Sveitirnar skiptust á um forystuna þar til í lokin að aðeins skildu 5 impar. Myndin sýnir sigurvegarana hampa Bermuda- bikarnum. Talið frá vinstri: Bob Mamman, Mike Becker, Bobby Wolff, Peter Weichsel, Ron Rubin, Joe Musumeci fyrirliði, Alan Sontag. Fjórir þessara bridge- meistara spiluðu á Stórmóti Flugleiða og Bridgefélags Reykjavíkur fyrir tveim- ur árum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.