Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1983, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1983, Blaðsíða 21
DV. LAUGARDAGUR15. OKTOBER1983. BIBLÍUSAFNARI ÖLLU TRÚLAUS stínrt Ragnar Þorsteinsson. heldur hann á bibliunni i isku þýðingunni, en sem gt er var Stalín ættaður frá tðinu Grúsíu í Rússlandi. Texti: nuHdur Ernir íúnarsson Myndir: nar Ólason narinn Ragnar Þorsteins- iaki hans má sjá safnið i i eru guðsbækur á eitt <g sextíu tungumálum, aimsmetl DV-myndir Einar Ólason. Ragnar heldur nákvæma spjaldskrá yfir biblíusafn sitt, enda nauðsyn til, þar sem meira en þúsund guðsbækur hvila i hillum hans. Hann flettír hár upp að einu eintaki sínu. im að eigin sögn. Það er ili, en menn hafa komist að ingumál sem tH er i heim- ú að þetta einstaka mál sá tg sumir halda, sökk i hafið Baskabyggðir eru á Norður- Hár gefur að IHa eina af biblíum Ragnars, en þessi er á máli fámenns indiána-þjóðflokks i Ameriku, sem menn háldu lengi að ættí sár ekkert ritmál. Hið gagnstæða kom hins vegar í Ijós fyrír fáum árum og þá var biblian umsvifalaust þýdd á þetta mál. Eintak Ragnars er eitt af örfáum sem til eru i heiminum. J I starfi mínu og hversu mér hefur gengið vel í því að þeir hafna al- gjörlega borgun fyrir viðvikið. Þannig að verð þessa safns míns í peningum er ekki ljóst. Eflaust er það þó dýrmætt. Að minnsta kosti hafa margir spurt mig hvort safnið sé falt, og bjóða þá jafnvel háar greiðslur.” — En það hefur aö sjálfsögðu ekki hvarflaö aö Ragnari að selja þetta ævistarf sitt. Hann er spurður að þvi hvort hann sé farinn að huga að því hvað verði um safnið eftir hans dag. „Það er stóra vandamálið á mínum bæ,” svarar hann og heldur áfram: ,,Eg hef oft verið spurður sömu spurningar og þú spyrð. En ég hef engu getaö svarað því að jafnan hefur þetta verið óráðið hjá mér. Eg á marga erfingja en vil samt ekki að safnið tvístrist á milli þeirra. A endanum verður það sennilega ofan á að einhver stofnun hljóti hnossið.” Aldrei glapist af guðsorðum — Ragnar er trúleysingi og hefur aldrei á sinni ævi „glapist á guðsorðum”, eins og hann segir sjálfur. Mörgum hlýtur að þykja skrítið að slíkur maður skuli hafa safn- aðbókinnihelguífjóraáratugi. . . „Þessi söfnun mín er og hefur ætíð verið algjörlega óháö trúnni. Það er einvörðungu vegna tungumála- áhugans að ég sinni þessu efni. Og biblian varð fyrir valinu sem fyrr segir, aðeins vegna þess . að hún er sú bók sem til er á flestum málum. Þrátt fyrir trúleysi mitt hef ég samt alltaf haft talsverðan áhuga á trúmálum. Eg hef til dæmis bæði lesiö Kóraninn og Mormónabókina spjald- anna á milli og haft ánægju af. . . ” — En hefurðu lesið kristnu bibliuna, sem þú safnar? „Nei, þótt ótrúlegt megi virðast, þá hef ég aldrei gefið mér tíma til að lesa hana alla. Eg hef samt lesið dágóðan hlutaaf henni.” — Hvernig hefur þér líkað sú lesning? „Það eru mörg gullkom í bibliunni. Þar er víða mikil lífsspeki og þar er líka margt fallega sagt...” —En? ,,... lQcamikið bull. Það sem ég met í biblíunni eru orðskviðir Salómons og Predikarinn. En sjálfar trúarkenningarnar: Þær falla ekki að mínum smekk. Það er ekki til í mér að trúa á guð. Það er mér alveg ósjálfrátt og ég get ekkert að því gert. Ég hef einfaldlega aldrei frelsast eða orðið uppljómaður af verkum frelsarans. Svo finn ég lika enga þörf hjá mér fyrir trúna.” Kynni við Jóhannes úr Kötlum — Ragnar er Dalamaður og fæddist á sama bæ og Jóhannes skáld úr Kötlum. Þeir voru æskufélagar og ólust upp saman, þó svo að Jóhannes væri nokkru eldri en Ragnar. „Jóhannes var yndislegur maður. Hann var ákaflega góð sál og fyrir utan það að vera stórskáld mátti hann ekkert aumt sjá. Hann var afar næmur á tilfinningar manna og reyndar mannseðlið allt, enda kemur það fram íljóðum hans.” — Ragnar segir mér sögu af því þegar hann var að koma í heiminn. „Þannig var að Jóhannes svaf í sama herbergi og móðir mín og aðeins þunnt þil skildi rúm þeirra að. Hann varð því eðlilega var við það þegar mamma var aö undirbúa komu mína i þessa veröld. Hann sagði mér síðar meir að fyrst hefði hann heyrtóhugn- anlegt öskur sem síðan hefði faríð heldur hjaðnandi, þangað til i bæinn barst svo ámátlegt og linkulegt væl að hann hélt að breimandi köttur væri gólandi viö rúmgaflinn hjá sér. Það mun þá hafa verið fyrsta viðbragð mitt við alheiminum. ” Rétt með hörmungum að ég nenni að kjósa — Strax á unglingsaidri fór Ragnar að fást við stjórnmál og er hann var kominn nokkuð fram yfir tvítugt bauð hann sig meira að segja fram til þings fyrir Sósíalistaflokkinn. „Æ, ég hef nú aldrei haft neinn sér- stakan áhuga á pólitík,” staðhæfir hann nú á sjötugsaldri. ,,Ég þvældist samt einhvern veginn inn í hana. Sem betur fer komst ég ekki inn á þing þarna rúmlega tvítugur að aldri, enda kannski aldrei von til þess þar eð ég var settur á frambóðslistann svona meira til þess eins að einhver skipaði sætið en að sá hinn sami fengi einhver atkvæði. Og nú er það rétt með hönmungum að ég nenni að kjósa,” segir Ragnar og brosir að minningunni um gömul af- skiptiaf pólitík. Stalín er minn maður — Stalín hreif þig þegar hann komst til valda austur í Rússiá. Og enn ertu eldheiturStalínisti. „Það er alveg rétt. Ég fékk snemma mjög mikiö álit á Stalín karlinum. Og ég hef ennþá mikið álit á verkum hans og honum sjálfum. Eg tel að þessi fræga ræða Krússjovs um glæpi Stalíns hafi verið að mestu upplogin. Enda var Krússjov um árabii hægri hönd Stalíns í öllum framkvæmdum. Og ef hann hefur verið að ljúga að heimsbyggðinni í áratugi um framkvæmd kommúnism- ans í Rússlandi, þá finnst mér afar ó- trúiegt aö hann hafi allt í einu fariö aö segja satt í þessari frægu ræðu sinni. Mér finnst Staiin hafa verið sterkur persónuleiki og frábær stjórnmála- maður. Sjálfur Churchill sagði líka eftir fyrsta fund sinn og Stalíns: „Það er mikiii skaöi að ég skuli ekki hafa kynnst þessum manni f yrr! ” ” — Hinar illræmdu hreinsarnir Stalíns, sem fólk talar um, eru því hjóm í þínum eyrum. „Já, það er fjarri mér að trúa glæpaverkum upp á þennan mann. Hann var fyrst og fremst útsjónar- samur stjórnandi og skipuleggjandi sem tókst af kunnáttusemi og ótvíræðum hæfileikum að byggja há- reist stórveldi Rússlands á þeim grunni sem Lenin hafði látiö honum eftirviðfráfallsitt.” Ætli hann myndi ekki brosa lymskulega — Ragnar sótti félaga Stalin heim vorið 1952. Til Rússlands var honum boðið ásamt níu öðrum verkalýös- frömuðum ofan af Islandi, en um þetta leyti var Ragnar búsettur í Olafsfirði og gegndi meðal annars formennsku í verkalýðsfélagi plássins. „Eg sá foringjann á Rauða torginu í þessari ferð þar sem fram fóru fyrsta maí hátíðarhöldin. Tilkomumikil sjón, get ég sagt þér, þó svo Stalín hafi verið orðinn heldur hrumur þegar þarna var komiö sögu: Þetta var líka í siöasta skiptið sem hann kom opinberlega fram á Rauða torginu, en hann dó blessaður í mars árið eftir.” — Stalin var guðfræðingur. Ef hann væri nú á lífi, Ragnar, heldurðu þá ekki að honum myndi lítast vel á bibliusafniö þitt? „Eg vona það. Ætli hann myndi samt ekki brosa lymskulega ef hann kæmist að því aö sjálfur trúleysinginn væriaðgaufa viöþetta. .. ” -SER.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.