Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1983, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1983, Blaðsíða 33
DV. LAUGARDAGUR15. OKTOBER1983. Menning Menning menn á skipulag, en hvort mönnum er eiginlegra fer víst aö mestu eftir skapgerð hvers og eins. Á sviði stjórnmála hafa menn týnt niður hugmyndafræðilegum ágreinings- efnum, rótum allra deilna; minjum um slíkan ágreining skýtur öðru hverju upp, orðum eins og „íhald”, „kommúnisti”, „lýöræðissinni” en undantekningarlaust í rakalausu samhengi við það sem á undan fer og eftir í þeirri ræðu. Hið gamla tilefni samlyndis að líkur sæki líkan heim hefur lifað öll hin. Olíkindalæti, sem fyrr voru íslendingum nauðsynleg til afkomu, hafa haldist viö sem einkenni samskipta í landinu þótt við nú þurfum síður en fyrirrennarar okkar að brynja okkur með slíku háttalagi fyrir óblíöum náttúruöflum og viö teljumst nú sjálfum okkur ráðandi, þau eru hinu influtta þjóð- skipulagi, lýðræðinu, eitur. Við ræðum verðgildi hæfileika. Frænd- semi viö hvem skuli skera úr um hvort viðkomandi skuli fá embætti eða ekki. Hvort pólitísk forréttindi eigi að fylgja fjársterkum ættum. Viö ræðum ekki k jama máls. Skólun og bókmenntir Hiö versta við ófrjóa stjórnmála- umræðu er að þrætuaöilar hætta sjálfir, ef ekki linnir, að sjá það sem er fyrir því sem á að vera, að þeirra hyggju. Raunsæi í einni eða annarri mynd er ómögulegt vegna slíks þver- girðings innan íslenska stjórnmála- geirans. Hin rótslitric pólitíska vit- und Ieiðir til magnleysis æ fleiri að hafa áhrif á eigið lif eða annarra með stjórnsemd. Á líðandi stund leiðir blindur blindan í veröld hendinga. Stjórnmálamenn hafa ekki vald yfir almenningi né sjálfum sér, almenn- ingur ekki yfir þeim. Þróun í þjóðfélaginu verður með öðrum hætti en yfirbygging þess segir til um, hún verður fyrir tilstilli skólunar (inn- rætingar) og fyrir tilstilli bók- mennta,— en þar á hvíla óæskilegar hömlur. Aðalaðsetur Borgarbókasafnsins í Reykjavík er gamalt einbýlishús; í höfuðborg landsins; höfuðvígi Sjálf- stæðisflokksins um langt skeið; að hálfnuðum síðari hluta tuttugustu aldar höfðu forsvarsmenn lýðræðis í landinu ekki náð lengra en þetta í pólitískum þroska. Hins vegar hefur kaupsýslan, eini unginn sem þrifist hefur í hreiðri hins gamla sam- bræðings íhaldsmanna og frjáls- lyndra, sú sem hefur að markmiði að gera að veruleika draum miðstéttar um sömu velmegun sér til handa og var aöalsmanna, hún hefur náð að setja þann svip á bókagerð í landinu að bækur eru aö útliti líkari því að heyri til Viktoríutímabilinu en nútímanum; svo hégómlegur er allur þeirra búnaður. Skáldskapur Gunnar Gunnarsson skrifaöi í grein að við samningu skáldskapar sé rithöfundurinn einn meö guði. Hér um árið tók Laxness stærra upp í sig í viðtali í sjónvarpi við danskan bók- menntafræðing og sagði að höfundur væri innan marka verks síns guð. Stórt orð Hákot. Það er hámark vits- munalegs einstaklingsframtaks að semja skáldskap og undravert er, þegar tekið er miö að þeirri staö- reynd • hve lítinn gaum þeir menn gefa skálskaparviðleitninni, sem í orði krefjast þess að þjóðfélags- gerðin vemdi og stuðli að einstaklingsframtaki í landinu, slikir menn hafa yfirleitt reynst ónæmir fyrir skáldskap samtíðar sinnar, til skamms tíma sveiuðu þeir í hvert sinn sem þeir heyrðu á rithöfund minnst. Margir sjálfstæöismenn þykjast hafa pólitíska samvisku en eru raunar feyrupollar í menningu sem fúnar öll ef ekki er lagt til hennar jafnt og af henni tekið. Ef inn í herbúðir hægrisinna spyrst að maður hafi sent frá sér skáldverk er hann óöara stimplaður vinstrisinni af þeim sem þar hafa hreiðrað um sig: „hann er örugglega sósialisti”, og ef höfundurinn neitar þessu af gefnu tilefni eða segir að pólitísk sannfæring sín og skáldskapur séu óskyld mál, er hann þar með af sömu talinn hafa í frammi fláttskap og undirferli og þar af leiðandi sé maðurinn kommúnisti. Sósíalistar taka skáldskap alvarlega, vilja að hann sé virkt framlag til viðhalds og breytinga samfélags. Hægrisinnum er hann ekki alvörumál nema sem sósíalismi. Og í öðru fáránlegu lagi kannski ef höfundur er látinn. Undan þessum samstillta vilja láta virkir höfundar, oft án nákvæmrar yfir- vegunar, gerast allaballar og eru þó sumir áfram Geirfuglar í hjarta sínu. Kenningar Karls Jung Niðurlæging manns getur varla oröið meiri en aö hann vinni óvitað að framgangi málefna andstæðings síns, réttara sagt þess aöila sem yfir- lýstur vilji hans er að berjast gegn. Skemmtilega skýringu á slíkum afkáraskap gaf austurríski sál- fræöingurinn Karl Jung og fer vel á að hafa hana til hliðsjónar þessu máli þótt ekki væri af öðru en því að hver jum manni hentan að kunna skil á goðsögulegum hliðstæðum við félagsleg fyrirbæri. Jung segir djúp- stæða, óvitaða hugarstarfsemi öölast persónugervi í goðheimum drauma, Jung kallar persónusvið Skugga. Maður, sem er illa haldinn af efnis- hyggju, getur ekki skiliö aö gervið er hluti af honum sjálfum heldur tengir þaö ósjálfrátt öðrum einstaklingi eða hóp manna, auðveldlega því að um- heimurinn er sama manni lítið meira en framlenging af honum sjálfum. Maöur sem vekur upp slíkan Móra og sendir andstæðingi sínum verður sjálfum sér sundurþykkur ef hann elur á óvildarhuga sínum í garð þess aðila. Slík yfirborðsmennska hefur reyndar fryst vitsmuni stórra sam- býlishópa: Skuggi margra manna hefur í einu lagi orðið að andstæöingi sem ærilegum úrræðum er beitt til að fyrirkoma í eitt skipti fyrir öll. (Píslarsaga Jóns Magnússonar er sígilt dæmi úr íslenskum bókmennt- um um slíkan persónuklofning). Ekki er aöeins pólitískt heldur einnig heilsufarslega séð mikilvægt að þekkja sjálfan sig frá andstæðingi sínum. Oræður ótti fer í magann, fyrir hjartað og í höfuðið. Heilsu- lindir eru margar, allt frá leirböðum til jógastöðva, sem lappa upp á menn eftir að þeir eru sligaðir orðnir af að hlaupa um með púkann á herðunum — þjóðsöguminnið er arabískt og sammerkt framangreindum. Þeim sem losa menn við hann hefur á hinn bóginn fækkað, þaö er verk bókmennta. Mikilvægi bókasafna Bókmenntir eru afar stór vettvangur, sögulega skoöað, í heild verður þeim líkt við huldumannkyn sem fylgt hefur hinu, brugðiö upp spegli handa því til að sjá sig í hvenær sem þanþoli mennsku þess hefur veriö ofboðið, gefið forvitni og ímyndunarafli svigrúm þegar hengingaról einhvers kerfisins hefur hert svo að blóðrásinni að hugur manns hefur ekki getað starfað. Þetta þekkja Islendingar. Þær hafa verið þjóðinni lind. En gætum upp- sprettunnar! Ef sú lind mengast tærist gróðurinn og ef uppsprettan stíflast leggst þjóðmenningin undir fokskafla yfirborðsmennskunnar. „Vera má að ég sé ekki sammála þér en ég mun verja rétt þinn til að segja hvaðeina,” ritaöi Voltaire, sá sem vildi upplýsa alþýðu í Frakk- landi forðum daga. Bókasöfn hafa alla tíð verið virki einstaklingsfrelsis og þaö gefur auga leið að þau eru sér- lega mikilvæg á málsvæði sem er svo h'tiö sem hið íslenska. Fram aö tíð prentlistar vígðust menn inn í bóka- söfn eins og launhelgar; síðan hefur verið að verki á Vesturlöndum virk pólitík á þá átt að gera þau aðgengi- leg öllum almenningi. Nema að gerræðislegt stjórnarfar flokkar þau nú eins og alltaf undir hættusvæði. Bókasöfn eru þjónustustofnanir. Þau gera almenningi bókmenntir aögengilegar núorðið, koma í veg fyrir að efnamenn eigi greiðari aðgang aö bókmenntun en aðrir og raunar opna þau öllum jafnt leið að bókmenntum óháð rúmi og tíma i þeim mæh sem mönnum er á annað borð fært aö vera það vísvitað. Með milhgöngu lýðkjörins ríkisvalds afla menn sér með eflrngu bókasafna tækifæris til að uppgötva einstakl- ingseðli sitt og annarra. 33 GOLF-EIGENDUR Eigum fyrirliggjandi: frambretti, framsvuntur, hood, pústkerfi, dempara, aurhlífar, kúplingspressur, kúplingsdiska og kúplingslegur. Póstsendum. BÍLHLUTIR H/F Síðumúla 8, Rvík., sími 38365. furöu*®? ótru^ á litlum sJflosarX^awuti'smvr' veröor að P^-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.