Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1983, Page 5
DV. MIÐVIKUDAGUR19. OKTOBER1983.
5
LANGFARI
ÍSKOÐUN
Viðamikilli skoðun á einni af DC-8
þotum Flugleiða lauk á Keflavíkur-
flugvelli í gær. Þotan, TF-FLB, sem nú
heitir Langfari, fór í flug á ný í gær-
kvöldi.
Þetta var í fyrsta sinn sem svo-
kölluð C-skoðun var að öllu leyti fram-
kvæmd hérlendis. Upphaflega átti aö
gera hana í Luxemburg en því var
breytt þegar ljóst var að kostnaður
yrði ekki meiri hérlendis. C-skoðunin
er sú næststærsta sem gerð er á
vélinni.
Milli 40 og 60 flugvirkjar unnu að
skoðuninni þann vikutíma sem hún
tók. Undir venjulegum kringum-
stæðum vinna annars 2 til 3 flugvirkjar
á vegum Flugleiða á Keflavíkurflug-
velli við almennt eftirlit á vélunum. Ef
þurfa þykir er kaliað út aukaliö frá
Reykjavík.
— Heiðar, Keflavik.
DCS þotan Langfari meöan á C-skoöuninni stóð / stærsta fíugskýli
Kefíavikurfíugvafíar. D V-mynd: Heiðar Baldursson.
Alþingi:
Gengið frá skipan
í f járveitinganef nd
— konur f nefndinni í fyrsta sinn
Gengið var frá skipan í fjárveitinga-
nefnd á fundi Sameinaðs þings í fyrra-
dag. Áður hafði frumvarp um
breytingar á lögum vegna fjölgunar
nefndarmanna úr níu í tíu, verið keyrt
með hraði í gegnum báðar deildir
þingsins.
Fjárveitinganefnd skipa eftirtaldir
þingmenn: Frá Sjálfstæðisflokki
Lárus Jónsson, Ámi Johnsen, Pálmi
Jónsson og Friðjón Þórðarson, frá
Framsóknarflokki Þórarinn Sigur jóns-
son og Guðmundur Bjamason, frá
Alþýðuflokki Karvel Pálmason, frá
Alþýðubandalagi Geir Gunnarsson, frá
Bandalagi jafnaðarmanna Kristín
Kvaran og frá Samtökum um
kvennalista Kristín Halldórsdóttir.
Þær Kristín Kvaran og Kristín
Halldórsdóttir eru fyrstu konumar
sem sæti taka í fjárveitinganefnd
Alþingis.
Ef aö líkum lætur verður Lárus
Jónsson (S) kosinn formaður nefnd-
arinnar.
-SþS.
íslenska hljómsveitin:
Frá nýja heiminum
Fyrstu áskriftartónleikar íslensku
hljómsveitarinnar, af sex á öðm
starfsári, verða haldnir í Neskirkju,
fimmtudaginn 10. nóvember kl. 20.30.
Á tónleikunum, sem bera yfirskriftina
Frá nýja heiminum, verða flutt sex
tónverk sem tengjast Suður- og
Norður-Ameríku. Hljómsveitin mun
frumflytja tónverkið SummerSoft,
eftir Mark W. Phillips, samið sérstak-
lega fyrir Islensku hljómsveitina. Þá
mun Ánna Guðný Guðmundsdóttir
píanóleikari flytja Þrjár Jazz Píanó
Prelúdíur eftir eitt ástsælasta tónskáld
Bandarikjanna, George Gershwin.
Annar einleikari kemur fram á
þessum tónleikum, Pétur Jónasson,
sem leikur einn vinsælasta gítarkon-
sert tónbókmenntanna, konsert brasil-
íska tónskáldsins Heitor Villa-Lobos.
Síðari hluti tónleikanna hefst meö triói
eftir Charles Ives, Largo, sem leikið
verður af Sigurði I. Snorrasyni, Hlif
Sigurjónsdóttur og Önnu Guðnýju
Guðmundsdóttur. Þá mun Kristinn
Sigmundsson flytja nokkra negra-
söngva, en Kristinn hefur vakið mikla
athygli á undanfömum misserum fyrir
vandaðan söng. Lokaverk þessara
amerísku tónleika er hljómsveitar-
verkið Three Latin-American Sketches
eftir Aaron Copland, en í verkum hans
birtist tjáningargleði Ameríkubúans í
sinni fjörugustu mynd. Verkið er í raun
tveir dansar í blóðheitum suður-
amerískum stíl auk milliþáttar er ber
yfirskriftina „Paisaje Mexicano”
(mexikanskt landslag). Stjórnandi á
þessum fyrstu tónleikum verður
Guðmundur Emilsson.
Nú stendur yfir söfnun áskrifenda,
en aUs verða 400 áskriftarkort seld og
er við það miðað að þau seljist öll fyrir
upphaf starfsárs. Því gefst ekki kostur
á miðum í lausasölu. Umsóknir um
áskrift þurfa að hafa borist skrifstofu
hljómsveitarinnar að Frikirkjuvegi 11
fyrir 28. október, annaðhvort
bréfleiðis eða símleiðis í síma 22035.
Aðgöngumiöar á fyrstu tónleikana
verða afhentir á skrifstofu
hljómsveitarinnar 1.—5. nóvember.
Áskriftargjald er kr. 1.600 sem greiða
má í tvennu lagi, fyrir 5. nóvember og
fyrir 10. desember. Þeir sem kjósa að
styrkja hljómsveitina sérstaklega geta
gerst styrktarfélagar en þeir greiða
kr. 2.400 fyrir áskrift, sem greiða má
með sama hætti.
Kristinn Guðmundur
Sigmundsson Emilsson,
fíytur nokkra stjórnandi
negrasöngva. ísiensku
hljómsveitarinnar.
Fangará Litla-Hraunikœra sig ekki um að vera hluti af starfskynningu lögrelgunnar í Grindavík.
og senda ríkissaksóknara bréf
naður á frétta sem borist hafa þess efnis að Grunnskólar
/attur af skólakrakkar í Grindavík hafi und- birtingar m
ra þess á anfarin haust fengið að skoða ljós- hafi verið
ksóknari, myndir af sakamönnum á starfs- kynningu lc
fram á kynningu hjá lögreglunni þar í bæ. ár.
ábyrgir „Hér er um mannréttindamál að Þórður Bj
inguopin- ræða og brot á ákvæðum stjómar- kannaðist \
r meöal skrárinnar um friðhelgi ein- umrætt bréi
1 á Litla- staklingsins,” segir ennfremur í það frekar.
sóknara í bréfinu. verðurímáli
la vegna Halldór Ingvarsson, yfirkennari
Toyota Corolla Liftback SE érg.
'81, akinn 30.000 km, drapplit
aður.
Varð kr. 280.000.
Toyota Carina XE 1,8 árg. '82, ak-
inn 12.000 km, Ijósgrœnn.
Verð kr. 295.000.
Toyota Carina DL árg. '80, sjálf-
skiptur, ekinn 30.000 km, brúnn.
Verð kr. 210.000.
Toyota Cressida GL árg. '80, ekinn
65.000 km, drapplitaður.
Verð kr. 240.000.
Toyota Crown disil árg. '82, ekinn
90.000 km, rauður.
Verðkr. 450.000.
Toyotá Carina GL árg. '81, ekinn
47.000 km, rauður.
Verð kr. 256.000.
BS1'<
Toyota Corolla Liftback árg. 78,
ekinn 85.000 km.blár.
Verð kr. 130.000.
Toyota Cressida station árg. 78,
sjálfskiptur, eklnn 78.000 km,
grssnn.
Verðkr. 150.000.
Mazda 620 2,0 árg. '80, sjálfmkipt
ur, ekinn 30.000 km, brúnn.
Verðkr. 200.000.
Subaru 4x4 érg. '81, ekinn 51.000
km, drapplitaður.
Verð kr. 280.000.
Toyota Hi-Aceárg. '81, bensin, ek-
inn 85.000 km, hvitur.
Varðkr. 265.000.
Skipti möguleg á ódýrari bíl.
Toyota Starlet árg. 79, ekinn
74.000 km, grár.
Verðkr. 115.000.
TOYÖTA
Toyota Corolla GL árg. '82,
sjálfsk., ekinn 22.000 km, brúnn.
Verð kr. 260.000.
Toyota Tercel árg. '82, 4 dyra, 5
gíra, ekinn 32.000 km, drapplit-
aður.
Verö kr. 240.000.
SALURINN
Nýbýlavegi 8, sími 44144