Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1983, Qupperneq 21
DV. MIÐVIKUDAGUH19. OKTÓBER1983.
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Verður kallað á Kirby?
til að taka vift iandsiiðinu í knattspyrnu. Mikill áhugi á því
Hver verður næsti landsliðsþjálfari
tslands í knattspyrnu? Verður það
Islendingur eða verður leitað út fyrir
landsteinana eftir þjálfara? Þessum
spumingum hafa menn velt fyrir sér
að undanfömu. Tony Knapp, fyrrum
landsllðsþjálfari íslands, hefur verið
nefndur en hann er þó út úr myndinni
þar sem hann hefur skrifað undir
samning við norska 2. deildarfélagið
Vidar frá Stafangri.
Það er ljóst að ef kallað verður á
erlendan þjálfara verður það þjálfari
sem hefur starfað hér og þekkir til
allra aðstæöna hér á landi. Þá er ekki
um auðugan garð að gresja en óneitan-
lega beinast augu manna til Englands
— en þar er George Kirby, fyrrum
þjálfari Skagamanna, en það hefur
lengi verið vitað aö hann hefur rennt
hýru auga til íslenska landsliðsins.
Kirby starfar nú ekki sem knatt-
spymuþjálfari eða framkvæmdastjóri
í Englandi, eins og hann hefur gert
undanfarin ár — var siðast fram-
kvæmdastjóri Halifax 1982, en kom
þaöan til Akraness.
Kirby náði mjög góðum árangri
þegar hann var með Skagamenn og án
efa næði hann góðum árangri með
landsliöið. DV hefur hlerað að menn
innan KSI hafi áhuga á því að fá Kirby
til að stjóma landsliðinu í undankeppni
heimsmeistarakeppninar í knatt-
spymu sem hefst á næsta ári.
-SOS
Evrópuslagur í knattspyrnu:
„Slátrarinn frá Bilbao”
á ferð á Anfield Road
að hann tæki á sprett ef hann fengi
— Ég er ekki ofsafenginn og grófur
knattspymumaður, sagði spánski leik-
maðurinn Andoni Goicoachea, þegar
hann kom til Englands í gær, þar sem
hann mun leika með Atletic Bilbao
gegn Liverpool í Evrópukeppni meist-
araliða í kvöld. Golcoechea er þekktur
undir nafninu „slátrarinn frá Bilbao”
eftir að hann braut grófiega á Diego
Maradona þannig að Maradona verður
fimm mánuði frá keppni.
Það verða þeir Ian Rush og Kenny
Dalglish sem verða andstæðingar
Goicoechea og er reiknað meö aö þessi
spánski ieikmaöur verði látinn hafa
gætur á Dalglish.
— Mínir menn mega aldrei sofna á
verðinum þegar þeir eru í baráttu við
Goicoechea. Dalglish verður að gæta
sín sjálfur, sagði Joe Fagan, fram-
kvæmdastjóri Liverpool.
— Eg get ekki sagt hvað gerðist,
þegar Maradona meiddist. Hef trú á að
þetta hafi verið óhapp, sem getur alltaf
gerst í knattspymu — hvort sem það er
á Spáni eða hér í Englandi, sagði Fag-
an.
ys ac ili In nál \_
fr\ r 1 ic m 1V }
1 Fagan fór til Spánar á dögunum, til
að „njósna” um Bilbao-liðið og sá það
tapa 1—4 í Sevilla. — Það var mér eng-
in hjálp að sjá þann leik því að ég veit
að Bilbao getur meira heldur en það
sýndi í Sevilla, sagði Fagan.
„Höfum gætur á Cruyff"
Tottenham mætir Feyenoord í
London en þar verður knattspyrnu-
kappinn Johan Cruyff í sviðsljósinu á
White Hart Lane. — Þótt Cruyff sé orð-
inn gamall verðum við aö hafa gætur-á
honum allan leikinn og koma í veg fyr-
ir að hann nái að byggja upp sóknarlot-
ur, sagði Keith Burkinshaw, fram-
kvæmdastjóri Tottenham.
— Við verðum einnig að hafa góðar
gætur á Ruud Gullit, hinum 20 ára
sóknarleikmanni Feyenoord, sem skor-
aðitvömörk fyrir Hollendinga gegn
Irum í Dublin,’ ’ sagði Burkinshaw.
Það verður víða barist í Evrópu-
keppninni i kvöld og í blaðinu á morg-
un segjum við frá þeirri baráttu.
■SOS
Ályktun stjórnar KSÍ:
„Eðlilegast að
vfsa Eyjamönnum
í 2. deild”
r, hótelstjóri Hótel Húsavíkur
útvega 190 manns gistingu á Húsavík?
— Við erum með 34 tveggja manna
herbergi þannig að 68 fulltrúar geta
búið hér á hótelinu. Það er hægt að
bæta rúmum í stærstu tveggja manna
herbergin þannig að gistiaðstaða fyrir
tíu manns til viðbótar skapaðist hér á
hótelinu. Nú, þá er reiknað með aö 27
fulltrúar gisti í veiðihúsinu, þetta er
aðstaöa fyrir 105 fulltrúa. Ef full-
trúamir verða 150—190 verður að
útvega öðrum gistingu á annan hátt —
t.d. í skólanum hér — og þá eru
möguleikar á að fulltrúar Húsvikinga
taki f ulltrúa heim til sin til gistingar, sagði
Auður.
— Við munum reyna allar leiðir til
að útvega fulltrúum viðunandi gistiað-
stöðu.sagðiAuður.
-SOS
Auður Gunnarsdóttir hóteistjóri.
Að undanfömu hefur verið mikið
rætt og ritað um Eyjamálið. Stjóm KSÍ
tók máiið fyrir á fundi á dögunum. Þar
sem margir hafa spurst fyrir um hvað
stjóm KSl samþykkti á fundi sínum,
höfum við fengið greinargerð stjómar
KSl um málið sem var tekið fyrir
fimmtudaginn 13. október, en eftirfar-
andivar skráði fundarbók KSÍ:
Stjórn Knattspymusambands Is-
lands hefur á fundi sinum i dag rætt að
nýju mál Iþróttabandalags Vest-
mannaeyja og úrskurð aganefndar
sem kveðinn var upp vegna þátttöku
leikmanns IBV í leik þess við UBK,
eftir að aganefnd hafði dæmt viðkom-
andi leikmann í þriggja leikja bann.
Stjórnin staðfestir að aganefnd hefur
úrskurðað eins og starfsreglur nefnd-
arinnar mæla fyrir um, þ.e. að IBV
skuli visað úr keppni og sæta sekt að
upphæö kr. 5.000.
Mismunandi viðhorf og óvissa er
uppi um það, annars vegar hvemig
túlka beri orðalagið „að vísa úr
keppni” sbr. 6. gr. 8. tölul. starfsreglna
aganefndar, og hins vegar hvort IBV
dæmist úr leik í 1. deild á næsta ári,
auk þeirra tveggja liða sem fæst stig
hlutu og eiga ella að falla niður.
Samkvæmt lögum um Knattspymu-
samband tslands skal stjóm K.S.I.
fara með æðsta vald i málefnum sam-
bandsins milli þinga (9. gr.) og stjórn-
in skal setja nauðsynleg bráðabirgða-
ákvæði og skera úr ágreiningi um
knattspyrnumál (10. gr.) Stjórn K.S.I.
telur sig hafa vald og skyldu til að taka
afstöðu til þessa máls sem hér um
ræðir.
Fyrir það fyrsta lítur stjóm K.S.I.
svo á að aðeins tvö félög skuli færast |
milli deilda eins og skýrt er kveðið á
um í 21. gr. reglugerðar um knatt-
spymumót. Það þýðir að ef einu liði er
vísað úr keppni, þá er það annaö af
þeim tveim liðum sem falla niður um
deild. Þessu til rökstuönings má benda
á að ef liði, sem hafnað hefur í neðsta
sæti í deild er vísað úr keppni yrði það í
hæsta máta ósanngjarnt ef þriðja
neðsta liðið félli niður um deild, en sú
yrði raunin á ef litið er sjálfstætt á
brottvísun úr deild eða keppni til við-
bótar við þau lið sem að öðrum kosti
eiga að falla niöur.
Á þessu keppnistimabili lenti IBI í
neðsta sæti i 1. deild, en IBK i þvi næst-
neösta. Þar sem IBV hefur verið vísað
úr keppni fellur það félag niður í stað
IBK.
I öðru lagi vill stjóm K.S.I. túlka
orðalagið „að visa úr keppni” á þá
leið að með því sé átt við viðkomandi
deild enda sýnist sú refsing vera eðli-
leg miöað við alla málavexti og hlið-
stæð brot. Þetta þýðir að IBV er vísað
úr þeirri keppni sem það hefur tekið
þátt í, þ.e. 1. deildarkeppninni og fær-
ist samkvæmt því i næstu deild fyrir
neðan, þ.e. 2. deild keppnistimabilið
1984.
Stjórn K.S.Í. samþykklr þvi eftirfarandi
bráðabirg&aákvœði sem bætist aftan við
reglugerð um knattspymumót:
• „Keppnistimabilið 1984 skal lið íþrótta-
bandalags Vestmannaeyja skipa sæti i 2.
deild 1. aldursflokks.”
Akvæði þetta verður borið upp á næsta árs-
þingi til staðfestingar.
• Auk þess samþykkir stjóra K.S.t. að flytja á
ársþingi 1983 tillögu um breytingar á starfs-
reglum aganefndar.
Knattspyrnusamband tslands.
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
0 Sören Lerby — lelkmaður Bayern
Múnchen.
Lerby klár
í slaginn
— með Dönum
gegnUngverjum
Sören Lerby, sem leikur með Bayem
Múnchen, er kominn að nýju í danska
landsliðshópinn, sem hefur verið valinn
fyrir hinn þýðingarmikia Evrópuieik gegn
Ungverjum í Búdapest 26. október. Lerby
gat ekki ieikið með Dönum gegn Luxem-
borgarmönnum vegna meiðsla.
Sepp Piontek, landsliðsþjálfari Dana,
hefur vaiiö alla sterkustu atvinnumenn
Danmerkur i landsliðshóp sinn nema
Frank Arnesen hjá Anderiecht sem á við
meiðsU í hné að stríða.
Danir þurfa aðeins að fá tvö stig út úr
leikjum sinum gegn Ungverjum og Grikkj-
um til að tryggja sér farseðilinn til Frakk-
lands, þar sem úrsUtakeppni EM fer fram
næsta sumar.
-SOS
FH leikur báða
leikina á íslandi
— hefur fengið skeyti frá
ísrael þar sem ísraels-
menn þiggja boð FH-inga
FH-ingar Ieika báða lelkl sina gegn
Maccabi Tel Aviv i IHF-bikarkeppninni
hér á landi. FH-ingar hafa fengið skcyti
frá tsrael þar sem tsraelsmenn tUkynna
að þeir séu tUbúnir að leika báða leikina á
tslandi 18. og 20. nóvember.
FH-ingar hafa mikinn hug á að leika
fyrri Icikinn í LaugardaishöUinni og seinni
leikinn síöan í Hafnarfirði. Það eru miklir
möguleikar fyrir þá að komast áfram í
keppninni.
tsraelska Uöið sló gríska félagið
Paneljnios út í fyrstu umferðinni — vann
26—20 í Grikklandi en 33—18 í israel. FH-
ingar sátu yfir í fyrstu umferð.
-SOS
Ólafur ráðinn
þ jálfari Fylkis
Ölafur Magnússon, fyrrum markvörður
Valsmanna i knattspyrnu, sem lék með
Fylki sl. sumar, hefur verið ráðlnn þjálfari
3. deUdarUðs Fyikls og jafnframt mun
hann ieika með félaginu næsta sumar.
-SOS.
íþróttir