Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1983, Síða 37
DV. MIÐVIKUDAGUR19. OKTOBER1983.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
frá Herragarðinum og brúðarkjóH frá Hjá Báru. Þær
sem eru handlagnar geta klippt svona kjól niöur úr gömlu
J- Brúðguminn er dulitið
frímúraralegur í kjótfötunum. Það eru þau Victor Urbancic
og Hólmfríður Karísdóttir sem þama þykjast ganga upp að
altarinu.
en betra að vera í góðum pels utanyfir. Það var Heiðdís
Þetta mun kallað sportfatnaður. Hlýtur
. y jt fvrír Þá sent ekki
hvað fyrir P ,nnapfata
sultarólarnar. Innanm
~—■.*, Hordquist.
sultaruia...
og Brynja
Líkvagninn ó hraðri siglingu suður Arnarnesið. Undir stýri er Þórhallur
Sigurðsson leikari.
DV-myndir S.
Líkvagn
undir
Þjóð-
skáldið
Hvað er Þórhallur Sigurösson
leikari aö gera á likvagni, Ford, ár-
gerö 1937, á hraöri siglingu suður
Arnamesið? Þannig spurði einn af
snuðrurum Sviðsljóssins er hann
rakst á Þórhall á þessu forláta farar-
tæki í síðustu viku.
Svarið reyndist vera að Þórhallur
var að fara til útfarar þjóöskáldsins
en bein hans átti að grafa í Hafnar-
firði þennán góðviðrisdag. Hvaða
þjóðskálds? Nú auðvitað Jónasar
Hallgrímssonar, því bein hans höfðu
verið grafin upp í Danmörku og flutt
til landsins. Eins og margir munu
kannast við er þetta eitt atriði í
Atómstöðinni eftir Halldór Laxness
ai nú er verið að vinna að kvikmynd
sem byggð er á þeirri mögnuöu
skáldsögu.
Líkvagninn var í eigu Hauks
Jónssonar trésmiöameistara i
Hafnarfirði sem hafði það aukastarf
að aka Hafnfirðingum hinstu ferð-
ina. Notaði hann þennan Ford til
þeirra hluta í 29 ár eða til ársins
1966. Síðan hefur líkvagninn staðið í
geymslu hjá Byggðasafni Hafnar-
fjarðar. Þurfti nokkuð til að koma
honum í gang aftur en það tókst með
aðstoð Péturs G. Jónssonar starfs-
manns Þjóðminjasafnsins.
Haukur Jónsson smíðaði sjálfur
yfirbygginguna á vagninn en út-
skurðinn annaðist Ríkharður Jóns-
son og er þaö mikið hagleiksverk
ems og sjá má af myndunum.
Fyrir kvikmyndunina var sett á
likvagninn númerið R-46 en það er
eftirlíking af númeri sem var á göml-
um likvagni í Reykjavik. Eitt sinn
voru til þrír líkvagnar af þessari
gerð í Reykjavík en því miður fyrir
áhugamenn um fornbíla er enginn
þeirra til lengur. Vonandi fer ekki
eins fyrir þessum hafnfirska glæsi-
vagni.
Hér mó sjð fagurlega skreytta yfirbygginguna ó Ford ðrgerð '37. Yfir-
bygginguna smiðaði Haukur Jónsson og Ríkharður Jónsson skar út.